Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 32
Sýrð eik er
sígild eign
iftM
Ift
// I // ';\ TRÉSMIDJAN MEIÐUR
U | A SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Sunnudagur7. maí 1978 62. árgangur
— 94 tölublað
Gas úr mykju að verða
orkugjafi í Danmörku?
Þrjár stórar tilraunastöðvar verða reistar á næstu misserum
Meðal þjóöa heims er nú
margra ráða leitaö til þess að
fullnægja orkuþörfinni. Olían er
dýr, hún getur verið ægilegur
mengunarvaldur, og að þvi rek-
ur, að oliulindir jarðarinnar
verði þurrausnar. Afkjarnorku-
verum stendur aftur mikil ógn, I
rauninni veit enginn, hvaða dilk
þau gætu dregið á eftir sér, og
það er óleyst mál, hvaö gera
skal viö geislavirk úrgangsefni
frá þeim. Þetta hefur leitt til
þess, að nýrra úrræða er leitaö
af kappi. Byrjað er að reisa
stórar og traustar vindaflsstööv-
ar og hafnar eru tilraunir meö
notkun gass, sem myndast i úr-
gangsefnum, einkum í sam-
bandi viö landbúnað.
Það er dæmi um þetta, að
danska viðskiptamálaráöuneyt-
ið hefur ákveðiö að verja 150
milljónum króna til þess að
kanna, hvort hagkvæmt geti
verið að vinna gas Ur efnum,
sem til falla við landbúnað,
einkum mykju. Verður byrjað á
því aö rannsaka gasmyndunina
nákvæmlega og safna allri vitn-
eskju, sem tiltæk er um þetta
efni. Tæknistofnunin danska og
ráðgjafarstofnun um byggingar
og smiði véla munu koma upp
sérstakri þjónustu, sem miölar
fenginni vitneskju til þeirra,
sem fylgjast vilja með, og f
framhaldi af þessu verður sam-
in handbók, sem ætluö er þeim,
Forir, þar sem þvagi og mykju frá gripahúsum er blandaö saman,
eru vel failnar tii gasmyndunar. Ekkert af áburðarefnum fer for-
görðum, þótt gasiö væri nýtt. Auk þess veröur unnt aö draga úr
vondri lykt af áburöarleginum og útrýma þarmasýklum i honum.
tima. Nú er það einn þáttur
þess, sem gera skal, að koma
upp þremur tiiraunavinnslu-
stöðvum, og f sambandi við þær
verður kannað, hvaða aðferðir
henta bezt til þess að gera gasið
sem lyktarminnst, koma i veg
fyrir mengun i sambandi við
nýtingu og útrýma sýklum úr
innyflum dýra f saurnum. Getur
þetta út af fyrir sig haft mikla
þýðingu fyrir bændur. Loks
verður rannsakað rækilega,
hvaða úrgangsefni önnur en
mykja geta komið að gagni til
gasmyndunar og gasvinnslu.
Gefi tilraunastöðvarnar góða
raun, munu þær einkum verða
til mikils stuðnings litlum fyrir-
tækjum,sem orku þarfnast f tak
mörkuðu mæli Uti um sveitir. 1
öðru lagi myndi það hafa i för
meðsér, að hætt verður að nota
fóðurefni, eða iblöndur, sem
tortíma bakterium, þar eð slikt
kemur i' veg fyrir gasmyndun i
mykjunni eða saurnum.
Myndin sýnir þurrkara, þar sem notaö er gas úr iffrenum efnum.
Meö beizlun gass úr mykju er taliö, aö rekstrargrundvöllur hey-
köggla- og heymjölsverksmiöja kunni aö veröa miklu traustari en
áöur þar eö landbúnaöurinn legöi sjálfur tii orkuna.
sem vilja hagnýta slikt gas og
teikna og smiða útbúnaö handa
gasstöðvum.
Hafa Danir i huga, að hér er
ekki aðeins vannýtt orka, heldur
er gas i mykju og öðrum úr-
gangsefnum vanræktur fram-
leiðsluþáttur i landbúnaði og
þjóðhagslegt atriði, ef gera má
gasið að verzlunarvöru.
Þessi tegund gass myndast,
þegar sérstakar bakteriur
breyta lifrænum efnum i lukt-
um, súrefnissnauðum geymum.
1 gasinu er einkum metan og
koltvisýringur, sem ekki má að-
eins nota til brennslu, heldur
einnig sem orkugjafa handa
sprengimótorum, og þess
vegna er það nothæft til vinnslu
á raforku.
Langt er siðan menn byrjuðu
að þreifa fyrir sér um hagnýt-
ingu þessa gass, en þeim til-
raunum hefur ekki verið mikill
gaumur gefinn til skamms
Togarinn Júní
lagðist á hliðina
vestur af Garðskaga i fyrrinótt
JB — Um klukkan niu i fyrri-
nótt, kallaöi togarinn Júni, frá
Hafnarfirði, sem staddur var á
veiöum tuttugu til þrjátiu gráö-
ur vestur af Garösskaga á varð-
skip og tilkynnti aö sjór væri
kominn inn á vinnsluþilfar
skipsins og væri þaö farið að
hallast. Var skipinu siðan siglt
til hafnar f Hafnarfirði.
Er það kom þangaö um klukk-
an þrjú i fyrrinótt, beiö slökkvi-
bill á bryggjunni með tvær dæl-
ur. Var þá mikil siagsiöa komin
á skipiö. Um klukkan hálf fimm
var aftur kallaö á varðskip og
það beðið að koma með dælu inn
i Hafnarfjaröarhöfn sem þaö og
geröi. Kom varöskip þangaö um
hálf sex leytið og var þá 35
gráðu halli kominn á togarann.
Búiö var að dæla öllum sjó úr
skipinu um sjöleytiö i gær-
morgun.en það munu hafa verið
um hundrað lestir af sjó sem i
honum voru.
Togarinn var sem áöur segir á
veiðum þegar þetta geröist og
var hann meö um 150 tn. afla.
Veröur aflanum landað úr skip-
inu á morgun.
Er blaöið fór i prentun i gær,
lá ekki Ijóst fyrir hvaö heföi
valdiö þvi að sjór komst inn i
skipiö, en þegar skip eru á veið-
um, er sjó dælt inn á vinnsluþil-
far til að þvo það. Alitið er að
dælur sem hafi dælt út af þilfar-
inu aftur hafi bilað, en haldið
hafi veriö áfram aö dæla inn á
það eftir sem áður, og þvi fariö
sem fór.
Tveir bilar fuku út af vegi í
ofsaveðri í fyrrakvöld
JB — Aætlunarbill er var að flytja
fólk á leið frá Borgarnesi i
Munaöarnes, fauk út af veginum
undir Akrafjalli, skammt frá
Berjadalsá i fyrrakvöld meö
þeim afleiðingum, að flytja þurfti
um tuttugu af þrjátiu og fjórum
farþegum á sjúkrahúsið á
Akranesi. Ekki var þó um alvar-
leg slysaðræöa.
Læknar á Sjúkrahúsinu á
Akranesi gerðu að sárum fólksins
er voru smærri og stærri skurðir,
og var þvi slöan leyft að fara
heim. Fjórir eru ennþá á Sjúkra-
húsinu en eru allir vel haldnir.
Að sögn lögreglunnar á
Akranesi var afspyrnuveöur er
þetta gerðist og kemur rosalegur
strengur þarna meö ánni I
ákveöinni átt. Billinn valt eina
veltu og kom niður á hjólin. Á
mjög svipuðum slóðum varö ann-
aö likt slys, i fyrrakvöld, er jeppi
meö kerru fauk út af veginum.
Enginn meiddist við það.
Megas á
rúntinum
Islenzka sjónvarpið mun nú i
kvöld sýna hina margumtöluðu
kvikmynd Ballööuna um ólaf
Liljurós. Mynd þessi er eftir
Rósku og Manrico Pavolettoni
og fer heiðursmaöurinn Megas
þar með stórt hlutverk ásamt
þvi að útsetja alla tónlist.
Af Megas er annars það að
frétta aö hann skemmtir nú
landanum á meginlandinu, sem
sagt i þriggja vikna hljómleika-
ferðalagi i boði samtaka Is-
lendinga I Kaupmannahöfn,
Arósum og Lundi. Auk þess aö
skemmta á þessum stööum er
fyrirhugaö aðhann haldi hljóm-
leika i Osló, Stokkhólmi og
gömlu góðu Paris.
Þá er nú að vænta nýrrar
hljómplötu frá Megasi sem ber
heitið Núerég klæddur og kom-
inn á ról og hefur aö geyma
klassiskislenzkbarnalög. Nýtur
Megas aðstoðar Guðnýjar Guð-
mundsdóttur konsertmeistara
og Sinfóniuhljómsveitar íslands
og Scotts Gleckler sem starfar
einnig i Sinfóniunni. Haft er eft-
ir Megasi að platan sé fyrir alla
sem enn eru börn i anda.
Tvö önnur stórverk Megasar
bíðaútgáfu: Rokkverk sem gef-
ið verður út á tveim hljómplöt-
um og úrval úr Passiusálmum
Hallgrims Péturssonar, sem
upphaflega var flutt á páskum
1973.
Dægilegur sá gamli