Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 25
Sunnudagur 7. mai 1978.
25
Hugheilar þakkir til þeirra fjölmörgu viðsvegar um land
sem heiðruðu minningu
Snorra Sigfússonar
fyrrverandi námsstjóra
og sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall hans og
jarðarför.
F.h. barna hans og annarra vandamanna,
Bjarnveig Bjarnadóttir.
Þaö er eins og aö hafa sérstakan nuddara í baöherberginu heima hjá sér,
slík eru áhrif vatnsnuddtækisins frá Grohe.
Frábær uppfinning sem er oröin geysivinsæl erlendis.
Tilvaiiö fyrir þá sem þjást af vöövabólgu, gigt og þess háttar. Hægt er aö mýkja
og herða bununa að vild, nuddtækið gefur 19-24 lítra meö 8.500 slögum á mfnútu.
Já, þaö er ekkert jafn ferskt og gott vatnsnudd.
En munið að þaö er betra aö hafa „orginal" og þaö er GROHE.
Grohe er brautryöjandi og leiðandi fyrirtæki, á sviði blöndunartækja.
YK
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
KÓPAVOGS NÝBÝLAVEGI 8 SÍMI:41000
Jörð til leigu
Jörðin Sveinungseyri i Gufudalshreppi, A-
Barðastrandarsýslu er laus til ábúðar i
vor 1978, eða i haust.
Bústofn og vélar geta fengizt leigðar eða
keyptar.
Tilboð óskast sem fyrst.
Upplýsingar gefa Sæmundur M. óskars-
son, Sveinungstungu (Nökkvavogur 62,
simi 3-76-53), eða Kristinn óskarsson,
Kúrlandi 1, Reykjavik, simi 8-57-62.
Júlíus Ingimarsson
bifreiðastjóri frá Akureyri
Július Ingimarsson fæddist að
Litla-Hóli i Hrafnagilshreppi í
Eyjafirði 10. janúar 1903. Hann
lézt i Landsspitalanum i' Reykja-
vik 30. april 1978. Útför hans verð-
ur gerð frá Fossvogskapellu
mánudaginn 8. mai n.k. kl. 15.
Foreldrar Júliusar voru hjónin
Sigurbjörg Jónsdóttir og Ingimar
Hallgrimsson, bóndi á Litla-Hóli.
Ingimar var einn af stofnendum
Kaupfélags Eyfirðinga. Hann var
einn stofnenda á lifi þegar minnzt
var fimmtiu ára afmælis kaup-
féla gsins.
Þau hjónin áttu þrjár dætur
sem allar eru á lifi. Þær eru:
Sigrún, búsett i Reykjavik, gift
Hans Jörgenssyni, skólastjóra.
Birna, búsett á Akureyri, var
gift norskum manni, Jóhannesi
Væhle, sem látinn er fyrir all-
mörgum árum.
Helga, búsett á Akureyri, var
gift Svafari Helgasyni, verk-
smiðjustjóra Smjörlikisgerðar
KEA. Svafar lézt fyrir skömmu.
Ingimar var tvíkvæntur. Hann
eignaðist dóttur með fyrri konu
sinni. Eiginkonan lézt fyrir aldur
fram. Þessi hálfsystir Júliusar
heitir Hrefna. Hún er á tiræðis-
aldri og dvelur á Elliheimilinu
Grund.
Július var i fööurgaröi fram-
undir tvitugsaldur. Arið 1922 inn-
ritaðist hann i Bændaskólann á
Hvanneyri og brautskráðist það-
an vorið 1924. Að námi toknu sneri
hann aftur heim að Litla-Hóli til
foreldra sinna og starfaði við bú-
reksturinn um nokkurra ára
skeiö.
Um þessar mundir var bila- og
vélaöld að ganga i garð á Islandi.
Eins og titt er með unga menn
hreifst Július af þessari nýju
tækni. Arið 1928 festir hann kaup
á vörubil og tekur að sér mjólkur-
flutninga fyrir bændur i Hrafna-
gilshreppi. Mjólkina fluttihann til
Akureyrar. Július starfaði að
þessum flutningum á annan ára-
tug. Meðan á mjólkurflutningun-
um stóð hafði Július keypt sér
fólksbil og stundaði hann leigu-
bilsakstur á Akureyri um árabil.
Arið 1930 kvæntist Július Jór-
unni Guðmundsdóttur frá Urriða-
koti i Garðahreppi. Þau hjónin
eignuðust einn son, Ragnar,
skólastjóra og borgarfulltrúa i
Reykjavik. Ragnar er gif tur Jónu
Guðmundsdóttur, ættaðri úr
Ólafsfirði. Ragnar og Jóna eiga
fimm börn.
Þá tóku þau Július og Jórunn til
sin fósturbarn, Hildi Jónsdóttur.
Dvaldi Hildur hjá jieim frá sjö
ára aldriþartil húngiftist. Eigin-
maður hennar er Jón Stefánsson,
aðalbókari hjá Kaupfélagi Ey-
firðinga.
Július og Jórunn slitu samvist-
um árið 1954. Sama ár flyzt hann
búferlum til Keflavikur og ræðst
til starfa á Keflavikurflugvelli og
vann þar til æviloka.
Fyrstu árin syðra, vann Július
hjá verktökum viö ýmis störf.
Snemma árs 1957 hóf hann störf
við afgreiðslu millilandaflugvéla,
fyrst hjá flugmálastjórn og siðar
hjá Loftleiðum hf. Þessum störf-
um gegndi hann óslitið þar til
hann náði eftirlaunaaldri, en þá
varö hann að hætta störfum i
samræmi við afskriftareglur vel-
ferðarþjóðfélagsins.
Það kom fljótt á daginn að
Július undi illa aðgerðarleysi
eftirlaunalifsins, enda haföi hon-
um aldrei fallið verk úr hendi frá
þvi hann var barnaö aldri. Hann
brauzt þess vegna fljótt út úr hin-
um helgasteini og tók til starfa á
nýjan leik. Hann réði sig aftur i
vinnu til flugmálastjórnar og tók
að sér að halda umhverfi flug-
stöðvarbyggingarinnar á Kefla-
vikurflugvelli hreinu. Þessi störf
annaðist hann af mikilli prýði
fram á siðasta dag.
Dugnaður og þrautseigja þessa
gamla manns, sem burðaðist með
pokann sinn um lóðina, hvernig
sem viðraði var aðdáunarverður.
Hætt er við að margur ungur
maðurinn hefði veifað læknisvott-
orðum þegar kaldast blés á heið-
inni, hefði hann staðið i sporum
Júliusar, sem var orðinn slitinn
og lúinn, eins og gefur að skilja,
og heilsan þar að auki farin að
bila.
Július kvæntist aftur árið 1963
eftirlifandi eiginkonu sinni, Olgu
Eliasdóttur. Olga er fædd og upp-
alin i Bolungarvik, dóttir hjón-
anna Jómnu Sveinbjörnsdóttur og
Eliasar Magnússonar, skipstjóra
og útgerðarmanns.
Július og Olga bjuggu i Kefla-
vik nær allan sinn búskap. Þar
áttu þaueinkar hlýlegt heimili og
notalegt ævikvöld. Þar var gott
aö koma. Þau voru prýðilega
samrýnd og undu glöð við sitt.
Þau Július og Olga hafa verið i
hópi beztu vina sem fjölskylda
min hefur eignazt um dagana.
Kynnin hafa staöið lengi, eða i
rúma tvo áratugi. Þau tóku börn
okkar ástfóstri, enda barngóð
meðafbrigðum. Segja má að þau
hafi gengiðbörnum okkar i afa og
ömmu stað, ef svo má að orði
kveða.
Oll þau ár sem við vorum búsett
á Keflavikurflugvelli var það föst
regla að Július og Olga kæmu i
heimsókn til okkar siðla á að-
fangadagskvöld. Einhvern veg-
inn var það þannig, að okkur
fannst að hátiðin gengi ekki al-
mennilega i garð fyrr en gömlu
hjónin birtust i dyragættinni.
A slikum stundum var gaman að
blanda geði viö Július, sem var
maður margfróöur og skemmti-
legur. Hann átti mjög auövelt
með að halda uppi samræðum,
enda af þeirri kynslóð sem vand-
ist á að nota öll skilningarvitin og
kunni þar af leiðandi að orða
hugsanir sinar, hvort heldur var
með tungu eða penna, og fáa
menn hefi ég séð skrifa fallegri
rithönd en Julius Ingimarsson.
Nú er Július vinur okkar allur,
en minningin um góðan dreng
mun lifa.
Ég og fjölskylda min sendum
eiginkonu Júliusar og öllum öör-
um sem um sárt eiga að binda
samúðarkveðjur.
Pétur Guðmundsson.
NÝJUNG!
VATNSNUDDTÆKIÐ FRÁ
GROHE
ER BYLTING