Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 13
Sunnudagur 7. mai 1978. 13 Esra S. Pétursson læknir: Sálarlífið Sálkönnunin heitir bæklingur eftir sænska heimspekinginn Alf Ahlberg. Bókadeild Menningar- sjóðs gaf hann út 1938 i þýðingu Jóns Magnússonar. í bókinni er stutt (64 bls.) yfirlit um fyrstu og helztu kenningar Freuds. Heimspekilegt og skáldlegt við- horf, sem mun vera eiginlegt höfundinum, setur oft mark á skoðanir hans. Er það aö vonum þar eð mannúðarstefna er oft sameiginleg sálkönnun, heim- speki og skáldskap. Gott dæmi er lýsing hans á draumlifi frá sjónarmiði sálkönnunar. „ÍDraumurinn er eins og krampakennd tilraun til þess að losa sig við illa anda i undir- djúpunum .. en ... hann er einnig tjáning viðleitni vorrar til ein- ingar og heildarsamhengis, hann er ef til vill dásamlegasta opinberunin á mætti lifsins til þess að endurnýjast og skapa. Táknmyndir draumsins eru tengingar, lifrænar nýmyndan- ir, er breyta hráefninu i lifandi heildir, sem fella má inn i sam- hengi h'fs vors.” Fleiri lýsingar á aðferðum og kenningum sálkönnunar fylgja. Siðan fer höfundur nokkrum orðum um mismunandi mat manna á henni. Það hefur i'erið mjög breytilegtfrá þvi hún kom fram skömmu fyrir alda- mótin. Skipzt hafa á ofsóknir og ofdýrkun, ofmat og vanmat. Raunhæfara gildismat á sál- könnun hefur mátt finna á seinni árum einkum i löndum þar sem hún hefur verið svo lengi iðkuð að reynsluþekking hefur fengizt á henni. Skipar hún þann sess þar sem henni ber i hópi lækningaaðferða og fræði- greina um sálarlifið. „Þegar ég tók sjálfur að beita sálkönnun við sálfræðilegar rannsóknir á þriðja tug aldar- innar,” segir norski prófessor- inn Harald Schjelderup. 1. „var sálkönnun ennþá tortryggð af langflestum læknum og sálfræð- ingum. Það var næstum álitið kasta rýrð á eiginlega visinda- mennsku að leggja alvarlega stund á hana .. Nú horfa málin allt öðruvisi við .. Sálkönnunar aðferðin er nú almennt viður- kennd meðal fremstu sérfræð- inga sem hornsteinn visinda- legra rannsókna á reynslu og atferli mannsins.” Bók Schelderups, Furður sálarlifsins, kom út 1963 i þýð- ingu Gylfa Ásmundssonar og Þórs Edward Jakobssonar. Fyrri hluti hennar fjallar um reynsluvisindi þau, sem rann- sóknir sálkönnunar á dulvitund- inni leiddu i ljós. Kjarni þeirra rannsóknaraðferða eru hin svo- nefndu frjálsu hugrenninga- tengsl. Skýringin og lýsingin á þeim felst i eftirfarandi leið- beiningu um iðkun þeirra, sem Freud uppgötvaði og notaði fyrstur manna. Sjúklingnum er boðið að slaka á og setja sig i hvildarstellingar og skýra siðan afdráttar- og undanbragðalaust frá öllu sem honum kemur i hug. Þannig getur honum tekizt að rekja jafnóðum allar tilfinn- ingar sinar, hugsanir og endur- minningar um leið og þær kom- ast upp á yfirborð meðvitundar- innar og verða þar efst i huga. Honum er leiðbeint að gera það fordóma- og gagnrýnislaust og án þess að reyna að vega og Áttunda grein meta hvort honum finnist þær merkilegar eða skipta máli. Einkum ber að varast að velja eða hafna þvi sem honum kem- ur i hug, jafnvel þó honum finn- ist það vera litilvægt, óþægilegt eða ruglingslegt. Með þvi að skýra jafnt og þétt frá þvi sem er efst i huga rýmist i sifellt fyrir dýpri tilfinningum sem siðan fá svigrúm, svo að segja, til að skjóta upp kollinum úr dýpri lögum hugans. Þar hafa þær legið i kafi undir fargi varnarkerfa sjálfsins, ýmist „gleymdar” eða „bældar” og valdið þarmargs konar erfið- leikum, togstreitu og sálar- flækjum. Hafaþærsiðan seytlað fram sem einkenni taugaveikl- unar, sálarstrið og mistök. En eins og heimspekingurinn Santayana segir, „Þeir eru dæmdir til að endurtaka fortiðina sem ekki tekst að muna hana visvitandi.” En hvernig uppgötvaðist nú þessi aðferð hinna frjálsu hug- renningatengsla? Freud hafði um skeið laðazt mjög að dá- leiðslumeðferð og náði nokkuð góðum árangri með suma þá sjúklinga, sem gott var að dá- leiða og þá vitanlega fyrst og fremst þá sem þjáðust af sefa- sýki. Sjúkdómseinkenni hurfu og sjúklingurinn virtist albata. En oft versnaði honum fljótt aftur. Freud reyndi þá að endurbæta dáleiðslu aðferðina og fór að knýja sjúklingana til að einbeitasérbeturtilað muna „gleymda” atburði. Einnig tók hann að spyrja þá i þaula og beitti fortölum. Dag nokkurn kvartaði sjúkl- ingurhans, Elisabeth R., undan þvi aðsífelldar spurningar hans trufluðu bara hugsanaferil hennar og bað hann að spyrja sig minna. Fraud tók þvi vel og fór þess i stað að hlusta með e nn meiri athygli á það sem sjúkl- ingurinn sagði. Um leið talaði og spurði hann minna sjálfur. Kom þá i ljós, að hin frjálsu hugrenningatengsl stjórnuðust sjálfkrafa af skapferli og endur- minningum sjúklingsins. Nutu þau sin betur eftir þvi sem bið- lund Freuds jókst og hann varð þolinmæðari, hlutlausari og umburðarlyndari, fjarri þvi að hafna og dæma tilfinningar, kenndir og hvatir sjúklingsins. Við það urðu skilyrðin betri til þess að’orsakir ií dulvitundinni að sálarflækjum og hugsýki kæmust alla leið upp i dagsljós meðvitundarinnar. Var þá opn- ari leið til dýpri greininga og könnunar á einstaklingseðli persónunnar. Manneskjan lærði að þekkja sjálfa sig betur, og virðing læknisins fyrir sérkenn- um einstaklingsins fór vaxandi. En hér, eins og viðar, er hæg- ara um að tala en i að komast. Leiðin er ekki öllum eins greið- fær og óíullkomin og stutt lýsing þessi kann að bera með sér. Sumum sjúklingum Schjelder- ups fannst hún harla torsótt. A fyrrihluta þeirrar leiðar veitist okkur erfittað komast i gegnum myrkviði varnarkerfa sjálfs okkar. Þau höfum við ofið um okkur i þeim tilgangi að draga úr kviða- og þunglyndistilfinn- ingum. Einn sjúklingurinn sagöi, að sér fyndist engulikara en að hann hefði verið krufinn, þá vitanlegai táknrænum skiln- ingi. Merkur kafli bókarinnar fjallar um eftirgrennslan, sem höfundurinn gerði á 28 sjúkling- um sem til hans höfðu leitað. Mun ég væntanlega ræða hann nánar i næsta þætti á fyrsta sunnudegi júnimánaðar. 1. Harald Schelderup. Furður sálarlifsins. Sálarrannsóknir og sálvisindi nútimans. 1 þýðingu Gylfa Asmundssonar og Þórs Edward Jakobssonar. Almenna Bókafélagið, 1963. NÝTT SÍMANÚMER 29022 m BREIÐFJÖRÐS ÆJ BLIKKSMIÐJA HE SIGTÚNI7 • PÓSTHÓLF 742 • SÍMI29022 Framkvæmdastjóri Staða framkvæmdastjóra við prjónastof- una Kötlu h.f. Vík i Mýrdal er hér með auglýst laus til umsóknar. Nánari upplýsingar veitir framkvæmda- stjóri, Vigfús Guðmundsson i sima (99)7225. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf ber að senda til prjónastofunnar Kötlu h.f., Vik i Mýrdal. Til sölu notað þakjárn. Selst ódýrt. Upplýsingar i sima (92)7102. Jörð til leigu Jörðin Klettur i Gufudalssveit, A-Barð., er laus til ábúðar i næstu fardögum. Bústofn og vélar eru til sölu á staðnum. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Sæmundsson i sima 95-3127, Hólmavik. Útilíf auglýsir Hnakkar nýkomnir Hubertus Island vestur-þýzk gæöavara. Hubertus- hnakkar eruhannaðirfyrir íslenzka hesta. Verö aöeins kr. 79.600.- Einnig pakistanskir hnakkar, mjög hagstættverö, kr. 42.350. útiiíf ( N v PÁctci Glæsibæ Sími 30350 Póstsendum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.