Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 24

Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 24
24 [MT 7. Mi l»7t. Anthon Mohr: Árni og Berit FERÐALOK barnatíminn Ævintýraför um Kyrrahafið og Suður-Ameríku Það var ákveðið að í'jórirhvitumennirnir og tveir burðarmennimir, Sinchi og Mayti, skyldu mynda tvennar klifur- þrenningar þennan dag- inn. Talið er að bezt sé að þrir og þrir bindi sig saman á sama vað, þeg- ar klifið er á háfjöll i hættulegum klettum. Er þá kaðallinn um 25 metra langur, og eru þá um 10 metrar á milli manna. í annarri klifur- tauginni var Clay verk- fræðingur bundinn fremstur, þar næst Árni, en Indiáninn Mayto sið- astur. í hinni tauginni var Sinchi fyrstur, þar næst Wilsonprófessor og siðastur Grainger sjálf- ur foringi fararinnar. Árni var ánægður yfir að lenda ,,í bandi” með Clay verkfræðingi. Hann bar mikið traust til hans. Hann var svo rólegur og öruggur i allri framkomu. Þar sem Clay verkfræðingur hafði forystuna var öðr- um óhætt að feta i hans fótspor. . Hinir burðar- mennirnar áttu að biða við, þar til báðir þremenningarnir voru komnirupp á næsta stall og hefðu fengið þar góða fótfestu. Þá ætluðu þeir að renna niður grönnum kaðli og draga matar- forðann og annan fra- angur til sin. Fyrsta klukkutimann var gangan ekki mjög erfið, en leiðin var að mestu leyti hjarnskaflar og urðu þeir að höggva sér spor i hjarnið. Enn- þá var niðamyrkur og urðu þeir að notast við ljósið frá vasaljósunum, og tafði það mjög ferð- ina, og urðu þeir nokkuð á eftir áætlun. En áfram þokuðust þeir fet fyrir fet. Um klukkan fjögur voru þeir komnir að bergsyllunni, sem þeir ætluðu að reyna að feta sig eftir upp á næsta klettabelti. Þessisylla lá skáhallt utan i fjallinu. þarna var næstum snjólaust, aðeins berar klettasyllur. Sinchi ráð- lagði þeim nú að skipta um skó. Þeir tóku af sér gaddaskóna, sem þeir notuðu á hjarninu en settu á sig mjúka gúmmiskó. Þeir voru léttari og ekki eins hálir á nöktum klettunum. Gaddaskóna létu þeir hanga um hálsinn eða á öxlinni. Eftir þennan umbúnað lögðu þeir af stað upp sylluna eða bergstallinn. Sinchi fór fyrstur. Hann hafði bundið bjart vasa- ljós a brjóstið og fetaði sig mjúklega eins og kötttur um klettana. Hann þreifaði fyrir sér með fótum og höndum, fann fótfestu hér og handfestu þar og vó sig þannig áfram. Árni fylgdi með spenningi ljósinu, sem þokaðist upp eftir klettunum (maðurinn sjálfur sást ekki vegna myrkurs). Nú fann Árni ekki til kuldans. Ennþá gat þettaorðið skemmtilegt. Allt i einu hætti ljósið að hreyfast. Annaðhvort hafði Sinchi lent i ógöng- um, eða hann var kom- inn upp á stall, þar sem hann hafði fengið góða fótfestu — og var nú að festa kaðalendann um steinnibbu eða á annan hátt. Litil stund leið en svo heyrðist ómur af orðun- um „come on”(komið). Var það merki til þeirra Wilsons og Graingers um að koma á eftir. Wilson kveikti á vasa- ljósinu og fór að feta sig af stað þessa hættulegu leið. Árna fannst líða heil eilifð áður en hann komst á stallinn hjá Sinchi. Grainger var allmikið fljótari. Nú kom röðin að Clay verkfræðingi og Árna. Á meðan Grainger var á leiðinni, fór Clay að færa sig i áttina. Árni og Mayto fylgdu honum eftir nokkra metra. Clay fór að feta sig upp stallinn. Það gekk hægt en öruggt. Árni reyndi að fylgjast með hverri hans hreyfingu. Á með- an hann smátt og smátt rakti taugina, sem batt þá saman, reyndi hann að festa sér i minni, hvernig Clay beitti höndum og fótum. Loks kippti Clay léttilega i taugina og það merki til Árna um það, að hann væri kominn alla leið. Árni kveikti á vasaljós- inu sinu og lagði út á hættusvæðið. ísöxin hékk i leðuról um vinstri úlnliðinn. Fyrstu fimm, sex skrefin gengu ágætlega. Árni hafði vandlega sett á sig hvar bezt var að fóta sig og það flýtti fyr- ir. En svo byrjuðu erfið- leikarnir. Syllan mjókk- aði, svo að hvergi virtist fótfesta, og á fimm til sex metra bili virtist lika hvergi handfesta i berginu. Neðan undir virtist ginandi gjá. Árni lét ljósið falla á klettana og athugaði þá gaum- gæfilega. Jú, þarna sá hann sprungu, sem hann gat tyllt i hægri fæti og þarna virtist tak á kelttanibbu fyrir hægri hendi. Árni teygði sig eins langt og hann gat, án þess að sleppa taki með vinstri hendi. Hann náði rétt með fingur- gómunum. En — nei, hann var ekki nógu arm- langur. Arni fann hvernig blóðið steig hon- um til höfuðs, en köldum svita sló út um hann all- an. Hann hafði nær þvi misst jafnvægið en tókst þó að þoka sér aftur á bak i sömu spor. Hann vissi ekkert hvað hann ætti að taka til bragðs. Að hugsa sér það, að hann skyldi ekki duga jafnvel og hinir. „Reyndu aftur”, sagði Clay rólega. ,,Það er betri handfesta dálitið hærra og nær. Reyndu að ná þvi taki með vinstri hendi”. Árni reyndi að stilla sig og hugsa rólega. Lik- lega hafði hann ekki þrýst sér nógu vel upp að klettunum. Það hefur liklega verið of mikið loft á milli hans og standbergsins, þess vegna náði hann ekki tökum. Árni færði vinstri hönd til og náði góðu taki, svo þreifaði hann fyrir sér með hægri fæti, þar til að hann fékk fótfestu. Nú varð að hrökkva eða stökkva. Hver vöðvi i likama hans var spennt- . ur. Hann þrýsti sér að klettunum og teygði hægri arm eins langt og hann gat upp á við og til hliðar. Þarna fann hann fyrir rauf eða sprungu, sem hann gat tyllt fing- urgómunum i. Nú á hann lika handfestu fyr- ir vinstri hönd. Það var áriðandi að ná þar lika góðu taki. Hann hugsaði sig um brot úr sekundu. Svo sleppti hann af taki vinstri handar — og hékk á meðan á fingur- gómum hægri handar — en flutti vinstri hönd varlega eftir berginu, þar til hann náði góðu taki i rauf i klettunum. Siðan lyfti hann sér gætilega, náði nýju taki hærra með hægri hönd, en setti hægri fót þar sem hægri hönd hafði verið. í sama bili fann hann, að þrifið var sterklega i öxlina á hon- um og honum lyft upp á stallinn, þar sem hann var öruggur og úr allri hættu. Það voru hinir löngu og hraustu arm- leggir Clays verkfræð- ings, sem lyftu honum þennan siðasta spöl. Hann var kominn upp með hinum. 7. Þarna voru þeir staddir á þröngum klettastalli. Til hægri handar voru þverhniptir klettar, en það sýndi sig, að mögulegt var að klöngrast skáhalt upp til hægri. Varþar snarbrött hjarnbreiða. Árni skipti i flýti um skó og setti á sig gaddaskóna. — Fyrra ,, trióið” var þeg- ar komið mörg skref upp i hjarnbreiðuna. Gekk þeim vel upp hjarnið. Þegar hærra kom upp, urðu þeir að vikja til vinstri, þar sem þeir rákust á nakinn kletta- rana, sem var ókleifur. Þegar Árni kom þar, sá hann, að þeir voru beint upp af klettastallinum, þar sem burðarmenn- imir biðu. Sinchi kom þá upp einskonar ,, samgöngu- leið” til burðarmann- anna. Fjallöxinni hafði

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.