Tíminn - 07.05.1978, Page 14
14
Sunnudagur 7. mai 1978.
TÍMINN HEIMSÆKIR HVOLSVÖLL
Ólafur Sigfússon
stööugt þarf aö vinna aö I ört
vaxandi þorpi.
Fólksfjölgun hefur veriö mjög
mikil og langt fram yfir lands-
meðaltal og fjölmörg hús byggö
ár hvert. M.a. er það vegna þess
að hér er auðvelt aö byggja og
byggingarkostnaður þvi lægri,
en viöa annars staöar. Einnig
hefur kaupfélagið veitt fólki
góöa fyrirgreiðslu meöan það
stendur i byggingarfram-
kvæmdum.
Sveitarfélagið er nú að ganga
fram byggingu sex leigu og
söluibúða, og fyrirhugað er að
framhald verði á slikum bygg-
ingum.
Hreppsnefnd hefur lagt á-
herslu á að efla hér atvinnulif og
stuðla að aukinni framleiðslu.
Nefndin hefur haft forgöngu um
byggingu tveggja húsa, sem sið-
an hafa verið seld undir iðnað-
arframleiðslu. Annaö húsiö
keypti Kaupfélag Rangæinga og
rekur þar saumastofu, en i hinu
húsinu er plastverksmiðjan
Bjallaplast. Þar eru framleidd
rör fyrir raflagnir og ýmsar
aðrar plastvörur. 1 þessari
verksmiðju vinna niu menn að
jafnaði, en stundum færri.
Af framtiðarverkefnum hér i
Hvolhreppi má nefna að nú á
næstu dögum veröur smiði
heilsugæslustöðvar boöin út.
Stöð þessi á að risa hér á Hvols-
velli og mun þjóna fimm hrepp-
um i austanverðri Rangárvalla-
sýslu. Aætlað er að þessi bygg-
ing verði komin i gagnið eftir
tvö til þrjú ár. í tengslum við
þessa heilsugæslustöð verða
sífean byggöar ibúðir fyrir aldr-
aöa. Það er Fljótshliðin og
Hvolhreppur, sem hafa sam-
vinnu um þá byggingu og verður
10 ibúða sambýlishús byggt i
fyrsta áfanga. Framkvæmdir
hefjast i sumar, en ekki er á-
kveðið hvenær byggingunni lýk-
•ur- Mó
— svo ekki verði atvinnuleysi þeg-
ar virkjun Hrauneyjarfoss lýkur
Matthlas Pétursson.
Atvinnumálanefnd Rangár-
vallasýslu var skipuð fyrir ári
siðan og er hlutverk hennar að
leita lausnar á þeim vanda sem
NÝ Ima í BYRON
Getum nu boðið Byron sófasettið í
nýrri útgáfu.
Enn glæsilegra en áður!
Hvort sem er i leðri eða áklæði eftir
eigin vali.
S|on er sögu rikari.
Lítið inn og skoðið þetta nýja sett —
ásamt öllu öðru sem við höf um upp
á að bjóða í húsgögnum.
Skeifu-verð — Skeifu-gæði —
Skeifu-skilmálar.
VERIÐ VELKOMIN!
.Slfeifi
m SMIDJUVHGi
SMIDJUVF.GI 6 SIMI 44544
við blasir þegar virkjunarfram-
kvæmdum i sýslunni lýkur,
sagði Matthías Pétursson skrif-
stofustjori Kaupfélags Rangæ-
inga og ritari atvinnumála-
nefndar i samtali viö Timann
nýlega. Margt fólk héðan úr
sýslu hefur vinnu við virkjunar-
framkvæmdirnar og ef ekkert
veröur að gert blasir hér við at-
vinnuleysi og stöðnun, þegar
þeim framkvæmdum lýkur. Þá
er hætt við að likt fari fyrir
byggðunum hér og fór fyrir
fjölda sildarbæja, þegar sildin
hvarf og við blasti atvinnuleysi
og stöðnun.
Aðalverkefni nefndarinnar til
þessa er að kanna hve þörfin
fyrir atvinnutækifæri verður
mikil. Jafnframt höfum við at-
hugað hvaöa opinbera aðstoð er
unnt að fá við atvinnuupp-
byggingu og loks höfum við gert
á þvi könnun hve mikið væri
unnt að efla fyrirtæki hér i
sýslu, ef þau fá aðstoð til þess að
byggja sig enn frekar upp.
Við teljum að þegar fram-
kvæmdum við Hrauneyjarfoss-
virkjun lýkur þurfi að vera til
staðar atvinnutækifæri fyrir tvö
til þrjú hundruð manns auk
þess, sem skapa þarf atvinnu-
tækifæri fyrir eðlilega ibúa-
aukningu. Fyrirtæki hér i sýslu
geta bætt verulega við sig fái
þau til þess aðstoð, og er þar
bæöi um að ræða þjónustufyrir-
tæki og framleiðslufyrirtæki.
En það þarf meira að koma til.
Hér veröa að risa ný fyrirtæki
og til uppbyggingar þeirra þurf-
um viö að fá opinbera aðstoð,
ekki siðri en útgerðarstaðir hafa
fengið viö skuttogarakaup og
uppbyggingu fiskvinnslunnar.
Við Rangæingar erum mjög
óánægðir meö hve mikið af hrá-
efni er flutt óunnið burt úr sýsl-
unni. Mjólkin er flutt til Selfoss
og unnið úr henni þar og kjöt, ull
og gærur eru fluttar enn lengra.
Við viljum vinna úr þessum vör-
um sjálfir þvi sú úrvinnsla
myndi skapa verulega atvinnu.
A sama hátt viljum við nota raf-
magnið, semíramleitt er i sýsl-
unni meir en nú er gert.
Mó.
Miklar byggingarframkvæmdir eru I ört vaxandi þorpi. Nú hefur Hvolhreppur keypt jörðina
Stórólfshvol auk annars lands I nágrenni þorpsins, svo nægjanlegt landrými er fyrir mun stærra þorp.
Gífurleg fólksfjölg-
un á Hvolsvelli
Nú búa um 520 manns á
Hvolsvelli, en I Hvolshreppi öll-
um eru um 700 Ibúar. Veruleg
fólksfjölgun hefur orðið i þorp-
inu siöustu árin, en fyrir 14 ár-
um siöan bjuggu milli 170 og 180
manris á Hvolsvelli. Atvinnu
hafa ibúarnir af þjónustu við
sveitirnar i kring og einnig er
bar svolitill framleiösluiðnaður.
Mikill hugur er i fóiki að efla
framleiðsluna enn frekar og nú
er starfandi atvinnumálanefnd I
Rangárvallasýslu, sem m.a.
hugar að þvi á hvern hátt unnt
verður að skapa framtiðar-
atvinnu fyrir það fólk, sem nú<
vinnur að uppbyggingu orku:
vera i sýslunni.
Kaupfélag Rangæinga er
aðalatvinnurekandinn á Hvols-
velli. Auk þess eru þar smærri
fyrirtæki og oponberir starfs-
menn hafa þar aðsetur.
Blaöamaður Timans hafði
stutta viðdvöl á Hvolsvelli fyrir
skömmu. 1 viðtölum viö Ibúana
kom glöggt i ljós að fólk er
óánægt með hve mikið af hrá-
efni er flutt óunnið burt úr hér-
aðinu. T.d. er mjög litill iðnaöur
úr landbúnaöarvörum I hér-
aðinu og meginþorri þeirra
orku, sem framleidd er i sýsl-
unni er flutt til notkunar i öðrum
landshlutum. mó.
Efla þarf at-
vinnuupp-
bygginguna
Skólamann
virki í
byggingu
— auk fjölmargra annarra fram-
kvæmda á vegum sveitarfélagsins
Stærsta verkefni Hvolshrepps
nú er bygging þeirra skóla-
mannvirkja sem nú er verið að
reisa á Hvolsvelli, sagði Olafur
Sigfússon oddviti I samtali við
Timann nýlega. Ætlun okkar er
að taka næsta haust I notkun
bætta aðstöðu fyrir unglinga-
skólann og af kappi er unniö aö
byggingu nýs húsnæðis fyrir
barnaskólann.
Við eigum og rekum skóla
með nágrannasveitarfélögun-
um fyrir þrjá efstu bekki grunn-
skólans og það er sá skóli sem
við erum nú að endurbæta. Hins
vegar erum við einir með skóla
fyriryngri bekkina sex. Búið er
að steypa nýja skólann upp og
verur þak sett á húsið á næst-
unni.
Siðar ætlum við að byggja
sundlaug og Iþróttahús við skól-
ann. Sem stendur geta ungling-
ar lokið skyldunáminu hér á
Hvolsvelli, en við stefnum að
þvi að geta boðið upp á nám i
fyrsta bekk framhaldsskóla.
önnur stór framkvæmd, sem
hefur verið i gangi á vegum
sveitarfélagsins, er lagning
vatnsveitu. Kostnaður við þá
framkvæmd er nú oröinn um 30
millj. kr. sem er mjög mikið
. fyrir ekki stærra þorp.
Þá erum við að vinna I gatna-
gerðarframkvæmdum og ýms-
um öörum verkefnum, sem