Tíminn - 10.09.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 10.09.1978, Blaðsíða 7
Sunnudagur 10, september 1978 1'ímmn menn og málefni Hér eigum við verk að vinna Um áratugabil hafa áhrif og staöa Framsóknarflokksins tryggt þjóöinni umbætur og fram- farirán öfga, og flokkurinn hefur veriö þjóölegur og frjálslyndur umbótavalkostur i stjórnmálun- um, andspænis völdum auö- hyggju og hægri stefnu, en flokk- ur þeirra afla, Sjálfstæöisflokk- urinn, hefur notiö yfirburöa i krafti aöstööu bæöi i atvinnulifi, opinberum stofnunum og hjá Reykjavikurborg. Allan þennan tima hafa hægri menn haft hinn versta þokka á Framsóknarflokknum. Astæöan til þess er aö sjálfsögöu sú aö hann stóö i vegi fyrir þeim og kom i veg fyrir aö óskastaöa þeirra kæmi upp á stjórnmálasviöinu, nefnilega aö þeir gætu túlkaö stjórnmálin einfaldlega sem átök lýöræöissinnaös hægri flokks annars vegar og rauöra bylt- ingarsinna hins vegar, hverju nafni sem þeir nefndu sig hverju sinni. Þennan sama tima hefur Framsóknarflokkurinn veriö sem fleinn i holdi sósialista af öllum geröum. Þeirra óskastaöa hefur vitanlega veriösúaö eiga aöeins i höggi viö öfgaflokk hægri manna, og geta taliö fólki trú um aö sósialisminn sé eini valkosturinn. Þaö er ekki aö undra aö þessir aöilar hafa um árabii reynt hvaö þeir getað hafa til að koma ræki- legu höggi á Framsóknarflokk- inn. Frá hægri hefur þaö verið sagt að Framsóknarmenn séu litiö skárri en „kommar”, en sósialistarnir, „frá vinstri”, hafa sagt aö Framsóknarmaddaman sé einhver mesta afturhaldstík landsins. Allt kom f yrir ekki f öllum þess- um áróöurshamagangi, og um- bótasókn þjóðarinnar hélt áfram, lengst af jöfn og stööug eftir þvi sem aöstæöur leyföu, en öfgalaus. Djúpsett ráð en grunnhyggni þó Þegar „Viöreisnarstjórnin” var mynduö lágu þar að baki djúpsett ráö Sjálfstæöismanna og Alþýðuflokksmanna. Þau djúp- settu ráö voru þó ekki betur igrunduð en svo aö þau hvildu á þeirri forsendu aö Framáoknar- flokkurinn væri stefnulaus tæki- færisflokkur sem liföi á fyrir- greiðslu og misbeitingu valdaað- stööu Meö þvi að sniðganga Framsóknarmenn meö öllu hlytu þeir aö missa öll áhrif og fýlgiö myndi hrynja af flokknum. Var þarna búiö aö semja svo um aö ihaldið veitti krötum brautargengi til aö „hiröa” þetta fylgi af götu sinni, og tæki Alþýöu- flokkurinn siöan sæti Fram- sóknarflokksins i islenskum stjórnmálum. 1 staöinn skyldu jafnaöarmenn færa Sjálfstæöis- flokknum skyldugan part af fyrra Framsóknarfylgi í landinu, en af þvi átti að leiða aö Sjálfstæöis- flokkurinn yröi alhliöa borgara- legur breiðfylkingarflokkur meö visa von um hreinan meirihluta i kosningum viö og viö. Þessar hugleiöingar i upphafi sjöunda áratugarins studdust vitanlega viö alls kyns merkilega speki, einkum útlenda. Var aftur og aftur bent á flokkaskipan i ýmsum þeim Evrópulöndum sem forystumenn „Viöreisnarstjórn- arinnar” þekktu best til og mátu mest. Var þaö stundum haft á orði aö rikisstjórnin væri nokkurs konar „Grosse Koalition”, en slikt orð viðhafa Þjóöverjar um samstjórn tveggja stærstu flokk- anna i landi sinu. Eins og sumt fleira af þvi sem þeir „viöreisnarpostular” tóku sér fyrir hendur, mistókust ráöa- gerðir þeirra um aumlegan endi Framsóknarflokksins. Lá viö sjálft aö enn þá verr færi fyrir Alþýðuflokknum sjálfum. Stendur styrkum fótum I islenskum jarðvegi Astæöurnar til þess aö þessar fyrirætlanir mistókust voru margvislegar. Framsóknarflokk- urinn hélt velli og sóth frekar í sig veöriö en hitt. 1971 hófst undir forystu Framsóknarmanna al- hliöa framfaraskeiö i þjóölifinu, og má segja aö hrein bylting hafi siöan átt sér staö um land allt. Þegar til kom sannaöist þaö aö Framsóknarflokkurinn stendur styrkum fótum i islenskum jarö- vegi. Hann er samtök efnalega sjálfstæöra vinnandi manna af öllum stéttum atvinnuvegum og landshlutum sem vilja leysasam- eiginleg viöfangsefni meö sam- vinnu, samhjálp og félagshyggju án öfga, stofnanaveldis eöa einokunar, auövalds eöa alræöis. Og þegar til átti aö taka átti þessi stefna mikil itök i þjóöinni og samfélaginu, enda hefur hér ekki þróast sú óæskilega stétta- skipting sem viöa hefur oröiö i öörum löndum. Gleðin í rénun Þaö er ekki aö undra aö and- stæöingum Framsóknarflokksins létti mjög viö úrslit kosninganna í vor. Loks haföi rækilegu höggi veriö komið á þennan óþægilega flokk sem öll þessi árhaföi komiö i veg fyrir aö hinir sundurgeröar- mestu valdadraumar fengju aö rætast. Og þaö var fögnuöur jafnt meðal hægri manna sem sósialista af öllum gráöum og geröum. Gleöin er bersýnilega heldur i rénun eftir stjórnarmyndun Ólafs Jóhannessonar . Núer þaö komið I ljós hvaöa flokkur einn getur tek- iöaö sérforystuna i samstjórnán Sjálfstæöisflokksins.Nú er þaö aö sinni ekki dregið i efa hvaöa flokkur er forystuafl vinstri manna i landinu og frjálslyndra og þjóölegra umbótaafla. Vissulega er staöa Fram- sóknarflokksins oröin miklu sterkarienáhorföistum hriö eft- ir kosningarnar i vor og sumar. Og það má gera ráö fyrir aö mörgum Framsóknarmanninum þykisem núhafi „mikill öldungur veriö aö velli lagöur”, staöa flokksins sé sterk og fátt að ótt- ast. Viðhorf sem þetta er hættulegt og getur oröiö Framsóknar- flokknum stórskaölegt. Staöa flokksins og forystumanna hans eftir stjórnarmyndunina má ekki villa Framsóknarmönnum sýn. Þaö stendur óhaggaö aö flokkur- inn varö fyrir mjög alvarlegu áfalli i kosningunum, og þetta áfall hefur ekki veriö bætt enda ekki komið til kosninga á ný sem breytt gætu hlutföllum á Alþingi. Hér er þvi mikiö að vinna, og mikiö er að sönnu í húfi enn ef illa fer. Leita einnig þar að ástæðum og aðdraganda Nú er fyrir öllu aö menn dragi réttar ályktanir af þeim atburö- um sem gerst hafa. Framsóknar- menn veröa aö lita i eigin barm ogleita einnig þaraöástæöum og aðdraganda kosningaúrslitanna á þessu ári. Þaö gerir enga stoð aö menn skiptist á köpuryröum eöa kenni hver öfrum um, heldur veröa menn aö taka höndum saman um málefnalegar um- ræöur til að búa flokkinn sem best undir þá baráttu og þá sókn sem fram undan veröur aö vera. MáTflutningur og málafylgja Framsóknarmanna veröur aldrei of góö eöa of frábær. Þar má alltaf einhverju viö bæta, eða eitt- hvað brott fella svo að betur fari. Að sama skapi stendur flokks- starfiö alltaf til bóta og skipulag og starfsháttu þarf stööugt aö endurskoöa viö hæfi liöandi stundar. Flokkur sem vinnur að alhliöa framför og viðurkennir engar lokaöar endanlegar kenni- setningar má aldrei staöna sjálf- ur. Þaö er athyglisvert aö i kosn- ingunum á þessu ári tapaöi Framsóknarflokkurinn fylgi um land allt, i öllum kjördæmum. Hins vegar veröur aö segja þaö eins og þaöer aö fylgihans hrundi á Suövesturlandi, i kjördæmun- um Reykjavik og Reykjanesi. Hið foma Kjalarnesþing hefur sérstöðu Nú er þaö vissulega alvarlegt aö fylgi hrynji af flokki i tveimur samliggjandi kjördæmum, og gefur til kynna aö eitthvað hafi misfarist um málefni þess lands- hluta. En hiö forna Kjalarnesþing er ekki hvaða tvö kjördæmi sem vera skulu. A þessu svæöi búa meira en tv.eir þriöjungar lands- manna. A þessu svæöi hefur mest fólksfjölgun veriö um langt ára- bil, þótt nokkuö hafi lægt á spenn- unni fyrir tilstilli byggöastefnu Framsóknarmanna. Og þaö er rétt að itreka aö á þessu svæöi eru stjórnarstofnanir lýöveldisins og þaö fólk sem viö þær vinnur. Þarna eru flestar menntastofnanir þjóöarinnar, miöstöö iðnaöarins og hinna ört vaxandi þjónustugreina. Og þarna er hjarta launþegahreyf- inganna i' landinu. Kjalarnesþing hiö forna veröur þvf aö teljast þungamiöja nútimaþjóölifs enda þótt undir- stööuatvinnuvegirnir séu stund- aðir um öll byggðarlög landsins. Hvað sem þvi liður er þaö ljóst aö flokkur sem missir fótanna i þessum byggðarlögum er i mikl- um vanda staddur og á það mjög áhættu aö veröa settur til hliöar i þjóölifinu. Það gildir einu hvað Fram- sóknarmenn sjálfir margir hverj- ir vildu um þetta sagt hafa. Eins og þjóðháttum, þjóðlifi og at- vinnuskipan landsmanna er nú háttaö, veröurekki fram hjá þvi gengiö aö stjórnmálaflokkur sem raunverulega vill vera hlutgeng- ur veröur aö horfast i augu viö þessar staöreyndir. — Og jafnvel ef menn viija bakhverfast viö nútiöinni og hunsa framtiöina: Viö vitum hve margir búa á Vest- fjöröum, en vitum viö hve margir Vestfiröingar búa viö Faxafló- ann? Viö vitum og hve margir búa á Norðausturlandi, en hve margir Eyfiröingar, Þingeyingar og Norömýlingar eru nú búsettir syöra? Brjótast á ný í gegná Suðvesturlandi Það sem augljóslega er fram undan i sókn Framsóknarmanna er aö brjótast á ný gegn hindrun- um og mótbyr á Suövesturlandi. Og til þess verður flokkurinn aö sýna fólkinu á þessu svæöi raun- verulegan vilja. Þaö er ekki um það að ræöa aö hverfa frá byggðastefnunni, — nema siður væri: Þar sem yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar býr hljóta aö vera byggöir’. Byggöastefnan hlýtur hins vegar að taka miö af þeim glæsi- lega árangri sem þegar hefur náöst um land allt. Nú hlýtur aö vera komiö aö þvi aö móta byggöastefnunni verkefni i sam- ræmi viö þá áfanga sem náöst hafa. Tengt þessu er vitaskuld viö- horf flokksins til jafnræöis i kosn- ingarétti landsmanna. — Þaö skulu Framsóknarmenn vita aö ibúarnir i Kjalarnesþingi eru al- mennt mjög farnir aö velta þvi máli fyrir sér. Var flokkurinn „gamaldags” og ótrúlega ihaldssamur? Ein ályktunin sem dregin verður af úrslitunum i kosningun- um fyrrá þessu ári er sú aö fiokk- urinnhafi ekki náö úl unga fólks- ins nægilega. Svo viröist sem flokkurinn hafi i augum þess ver- iö of „gamaldags”, — hvaö svo sem þaö kánn aö merkja. Og þaö veröa Framsóknarmenn aö skilja aö þaö er ekki nóg aö hiusta á unga fólkið og óskir þess. Þaö veröur aö hafa unga fólkiö meö i ráöum og láta þaö setja sinn svip á starfiö. Vafalaust er aö á þessu sviöi veröa ungir Framsóknar- menn sjálfir aö standa sig miklu . betur en þeir hafa gert um langt árabil. Onnur ályktunin er sú aö flokk- urinn hafi ekki tekiö þaö úllit til kvenna eöa veitt konum þau tæki- færi til áhnfa sem sjálfsagt veröur aö teljast i núú'maþjóö- félagi. Margt bendir til þess aö Framsóknarflokkurinn hafi veriö ótrúlega fhaldssamur að þessu leyti. Þaö er ekki óskynsamleg regla i lögum Framsóknarflokks- ins aö yngri menn eigi jafnan aö minnsta kosti þriöjung fulltrúa á flokksþingi og i miöstjórn. Um slik hlutföll má vissulega deila, einkum þegar haft er i huga aö „yngri menn" teljast aö 35 ára aldri og undir þeim aldri er einu sinni meirihluti sjálfrar þjóöar- innar! En vafalaust væri þaö vel til fundið aö setja reglu i lög flokksins aö konur skuli aldrei vera færri en t.d. helmingur i þessum stofnunum flokksins. Tengsl rofin við launþega- hreyfingaraar? Loks veröur sú ályktun dregin af úrslitum kosninganna aö fiokk- urinn hafi rofnaö illilega úr tengslum viö fylgismenn sina i launþegahreyfingunum i landinu. Fiokkur sem ekki tekur slika áiyktun alvarlega er ilia staddur. Slikur er hlutur launþegahreyf- inganna i lýðfrjálsu velferöar- samfélagi aö þær hljóta aö njóta sérstakrar athygli, enda þótt viöurkennt sé aö verkefni þeirra eru ekki aö þjóna flokkspólitisk- um sérhagsmunum, fremur en verkefni stjórnmálaflokka séu aö ala á stéttasundrung. Sé þessi ály ktun réttmæt — þótt erfitt sé aö sanna af eöa á i þessu efni —, þá hlýtur aö leiða af þvi að Framsóknarflokkurinn veröur aö taka það mál til sérstakrar meö- ferðar og úrlausnar. Þaö er t.d. athugandi hvort allt er meö felldu þegar enginn framkvæmda- stjórnarmaður er úr hópi þeirra sem einkum láta sig mál laun- þegahreyfinganna varöa. Veltur alveg á okkur sjálfum Sagan hefur sannað þaö og sýnt, og þaö hefur verið staðfest enn einu sinni á þessu sumri, aö Framsóknarflokkurinn er besta svariö við auöhyggjunni annars vegar og sósialismanum hins vegar. Alhliöa þjóöieg og frjáls- lynd umbótastefna og félags- hyggja á sterkan hljómgrunn i islensku þjóðlifi. Framsóknar- flokkurinn á þvi að eiga alla möguleika og hafa alla buröi til þess aö veröa stærsti flokkur landsmanna fremur en sá minnsti. En hér veltur alveg á okkur Framsóknarmönnum sjálfum. Hér eigum við verk aö vinna. Sagt hefur verið aö orö séu til alls fyrst. Þær opinskáu umræöur sem Ti'minn vill vekja um þessi efni eiga aö geta orðið hvatinn til þeirrar endurnýjunar sem fram undan er. JS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.