Tíminn - 10.09.1978, Blaðsíða 27

Tíminn - 10.09.1978, Blaðsíða 27
Sunnudagur 10. september 1978 Roxy Music-endurvakin Breska stórhljómsveitin Roxy Musio sem leystist upp í árslok 1975 hefur nú verið endurreist og má án alls efa telja það með merkustu atburðum poppsög- unnar á þessu ári. Þaö eru þeir Bryan Ferry, Phil Manzanera, Andy Mackay og Phil Thompson sem hafa tek- ið upp þráðinn þar sem frá var horfið eftir útkomu hljómplöt- unnar „Siren” haustið 1975, en á þeirri plötu var m.a. að finna topp lagið „Love is the Drug”. Þeir fjórmenningarnir æfa um þessar mundir á sveitasetri Ferrys og þvi vantar aðeins Eddie Jobson sem nú er i hljómsveit Bill Brufords, UK, til þess að myndin frá ’75 sé fullkomnuö. Að sögn Simon Puxley útgáfu- stjóra Roxy Music verður liðs- skipan hljómsveitarinnar að mestu óbreytt i fyrstu, en auk þeirra fjögurra, sem nefndir hafa verið, æfir enn einn með þeim en hann hefur ekki verið nafngreindur enn sem komið er og verið getur að siðar meir verði jafnvel tveim liðsmönnum bætt við þannig að Roxy Music yrði þannig sjö manna band i framtiðinni. Búist er við þvi aö a.m.k. einum hljómborðs- og synthesyzer leikara verði bætt i hópinn, en eins og kunnugt er var það Brian Eno sem fyrstur reið á vaðið i hljómsveitinni sem slikur og siðar Jobson, þannig að það verður ekki létt verk að finna mann sem haldið getur merki þeirra á lofti. Að öllu óbreyttu mun Mazanera sjá áfram um gitarleik, Mackay um saxófóninn, Thompson um trommurnar, og svo virðist sem bassaleikurinn muni komast á fastan kjöl i fyrsta sinn, þvi að Ferry ætlar sjálfur að sjá um hann auk söngsins. Eftir þvi sem komist hefur verið næst mun Roxy Music starfa á föstum grunni i fram- tiðinni, þ.e. meðlimir hennar munu láta sólóáform mæta afgangi, en á sinum tima voru flest allir meðlimir hljóm- sveitarinnar komnir á kaf I vinnu að eigin hagsmunum og varð það framar ööru til þess aö hön leystist upp. Þvi er búist við þvi að „The Bride Stripped Bare”, nýjasta sólóplata Ferrys, „Resolving Contradictions”, væntanleg sólóplata Mackays og fullgerð plata Manzanera sem ekki hef- ur enn verið skirð, verði siðustu sólóplötur þeirra i bili a.m.k. Að lokum fyrir þá sem ekki þekktu til Roxy Music, skal þaö upplýst hér, að þegar hljóm- sveitin var stofnuð árið 1971 þótti hún strax með þeim merkilegri sem þá störfuðu og ekki spilltu þrjár fyrstu plöturn- ar fyrir: Roxy Music (1972), For your Plesure (1972) og Stranded (1973), en siðan fór að halla und- an fæti með Country Life (1974), sem var algjörlega misheppn- uð, og Siren (1975), sem var heiðarleg tilraun til að endur- Brian Ferry heimta forna frægð en ekkert meira. Að mati undirritaðs hafði Roxy Music gifurleg áhrif á allt tónlistarlif, enda voru þeir um margt á árunum 1972- 1973 langt á undan sinni samtið og segja má að þá hafi grunnur- inn að punk/new wave verið lagður ef hægt er að komast svo að orði, þvi að það er svo ótrúlega margt af þvi besta i nýbylgjunni nú sem svarar til þess sem Roxy Music gerðu á þessum árum. —ESE Gylfi Ægisson — Blindhæð upp í mót Geimsteinn 6S 108/Fálkinn Blindhæð upp i mót er þriðja plata sjóarans si- káta, eða Gylfa Ægissonar eins og hann heitir vist fullu nafni, og er ég ekki frá þvi að þeim sem finnst gaman að honum á annað borð finnist Blindhæðin það besta sem frá honum hefur komiö hingaö til. Áður en lengra er haldið er rétt að taka þaö fram til að forðast misskilning að ég hef persónulega ekk- ert gaman af því sem Gylfi Ægisson býður upp á á þessari plötu, en ég geri mér hins vegar ljóst að til eru þeir sem teyga tónlist hans i sig eins og áfengt vin og það án þess að fá timburmenn og þvi verður einnig leitast við að skyggnast yfir Blindhæöina til þess að fá úr þvi skoriö hvað býr þar aö baki. Það sem teljast verður jákvætt á þessari plötu er i fyrsta lagi húmorinn sem býr i sumum textanna. og undirieikurinn, sem „fjölskyldan Geimsteinn” sá um. Þaö sem er miður er það aö sjóndeildarhringur Gyifa hefur ekki vikkað vitundarögn, a.m.k. kemur það ekki fram á piötunni. Þá er ótaliö útlit plötuum- slagsins en það er til hreinnar skammar og hefði varia gengið þegar Gylfi sendi frá sér sina fyrstu piötu. Og ekki veit ég hvað það á að þýða þegar þriðjungur myndanna, sem „skreyta” bak hliö um- siagsins, eru ekki I fókus, en vera má að sumum þyki það smekkiegt og við hæfi. Að lokum er rétt að geta þess að það er vel við hæfi að lagið „Minning um mann” sé endurvakið, en þaö heföi að ósekju mátt vera á betri plötu en þessari. —ESE Ian Dury—New Boots and Panties Hljómsveitin New Boots and Panties með ný- bylgju hljómiistarmanninum Ian Dury hefur nú um nokkurt skeiö verið hátt skrifuö á breska vinsælda- listanum og m.a. komst hún i hóp tiu söluhæstu hljómpiatna þar i landi. Trúlega á lagið „Wake up and make love to me” stærstan þátt f velgengni plöt unnar, en önnur lög eru ekkert sérstök að minu viti. Þegar talað er um vinsældir plötunnar I Bretlandi, ber að hafa það I huga að Dury hefur getið sér orð sem mikill furöufugl og frægð sem slikur og þykir vist ekkert slor að komast á hljómleika hjá honum. Þó að ég hafi látiö þau orð falla hér að framan, að önnur lög væru ekkert sérstök, þá er ekki þar meö sagt að þau séu léleg. Margt spilar inn I og ég held að þessari plötu sé fyrst og fremst ætlaö að vera fyndin. En það er ekki fyrir alla að skilja „absúrd” kimnigáfu Durys og bresk fyndni hefur nú alltaf verið sér á priki. Engir textar fylgja umslaginu og er það stór galli þegar um plötu sem þessa er að ræða. Undirleikur er góöur og Dury er ágætur i sfnu hlutverki enda hæfir það honum vel. Til marks um þá „fyndni” sem á plötunni er að finna er ekki úr vegi að vitna að lokum tii setningar á umslagi, sem er hæfilega rugluð eins'og platan öll: — This record was not produced and recorded at the Workhouse in the old Kent Road. — —ESE SEEZ 4/Karnabær ★ ★ ★+ 27 Staða viðskiþtafræðings i atvinnurekstrardeild Skattstofu Reykja- vikur er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 20. sept. n.k. Skattstjórinn i Reykjavik. Forstaða dagvistunar Sjálfsbjörg Landssamband fatlaðra óskar eftir að ráða karl eða konu til þess að veita forstöðu dagvistun (dagcenter) fyrir fatl- aða i Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12. Skriflegar umsóknir sendist i pósthólf 5147 fyrir 20. september. Rannsóknarmaður — Búfjárhirðing Við tilraunabúið Laugadælum, Hraun- gerðishreppi er staða rannsóknamanns II laus nú þegar og til 1. mai, 1979. Starfið er fólgið i framkvæmd búfjártil- rauna. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Allar frekari upplýsingar veitir Páll B. Ingimarsson, Laugadælum. Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Í Starf ritara 1; />; við sálfræðideild i Fellaskóla er laust til vý ; umsóknar. •/?* \ U vví Upplýsingar gefur forstöðumaður i sima :M 74050 M i” Umsóknum skal skila til fræðsluskrifstofu 'Vr y r? Reykjavikur fyrir 18. sept. n.k. v.-i'.A RÍKISSPÍTALARNIR Lausar stöður KLEPPSSPÍTALINN Staða FÉLAGSRAÐGJAFA við spitalann er laus til umsóknar. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist yfirfélags- ráðgjafa spitalans fyrir 29. sept. n.k. og veitir hann einnig allar upp- lýsingar i sima 38160. STARFSMAÐUR óskast að barna- heimili spitalans (vaktavinna). Upplýsingar gefur forstöðukona barnaheimilisins i sima 28160. Reykjavik, 10.9. 1978 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, Simi 29000

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.