Tíminn - 10.09.1978, Side 11
11
Sunnudagur XO. september 1978
likja eftir oröum þess og athöfnum.
Ábyrgö okkar, hinna eldri er þvi mikil.
Timamynd Róbert.
Byrjaöir þú ekki snemma aö
yrkja, þar sem þú haföir dæmi
föður þins fyrir þér?
— Nei, þaö get ég ekki sagt.
Hins vegar held ég, aö flest börn
hafi þetta eitthvað um hönd á ein-
hverju skeiði bernskuáranna.
Aftur á móti var annað, sem ég
held að mér hafi veriö meöfætt:
Það var löngunin til þess aö tala,
— og aö tala eins fallegt mál og
mér væri unnt. Ég var sett i skóla
hjá Guðrúnu frá Grafarholti þeg-
ar ég var fimm ára gömul. Hún
kenndi mér aö lesa, og ég vildi
kveða að öllum hljóðum og stöf-
um! Þegar oröiö „hnifur” kom
fyrir textanum, sem ég átti aö
lesa, vildi ég endilega segja: h-n-
i-f-u-r, — með sterku f-hljóöi, en
það var auðvitaö ekki samkvæmt
reglunum, og mér er ekki grun-
laust um að Guörún hafi verið i
hálfgerðum vandræðum meö mig
af þessum sökum. En þrátt fyrir
slikar öfgar þá langaöi mig mikiö
til þess að tala vel og fallega, þeg-
ar ég var barn. og mér bótti
óskaplega gaman að oröum strax
á barnsaldri. Ég var ekki gömul,
þegar sérkennileg og falleg orö
eöa oröatiltæki veittu mér hina
mestu gleði. En svo ég viki aftur
beint aö þvi sem þú spuröir, hvort
ég hefði ekki ort þegar ég var
barn, þá er þvi til að svara, að
ég held aö þaö sem ég reyndi á þvi
sviöi hafi sist verið merkilegra en
tilraunir annarra barna I þá átt.
— En núna — á fullorðins árun-
um?
— Nei, þetta er ósköp litiö, og i
raun og veru alls ekki orö á þvi
gerandi. Hinu neita ég ekki, aö
löngun til slikra hluta blundar
alltaf i mér, og kannski á ég eftir
aö gefa henni meiri gaum, — hver
veit? Maðurinn minn, Björn
Einarsson, á mjög létt meö aö
yrkja, og á meöan börn okkar
voru ung og við meira heima,
geröum viö talsvert mikiö af
þessu bæöi, okkur til skemmtun-
ar. En núna, siöan börnin stækk-
uðu og viö hjónin fórum bæöi aö
vinna utan heimilis, hefur þessi
„heimilisiöja” smátt saman ver-
iö lögð á hilluna.
— En þú hefur þó aö minnsta
kosti gert mikið af þvi að flytja
bókmenntir, m.a. I útvarp. Er það
ekki gaman?
— Jú, þaö er gaman, en að visu
misjafnlega gaman. Ég hef bæöi
flutt þaö sem ég hef skrifað sjálf
og annarra verk. 1 seinni tiö hef
ég einkum flutt stuttar sögur fyrir
börn og unglinga eftir Ingibjörgu
Siguröardóttur. Mér hefur þótt
gaman aö þessari vinnu, en þaö
er alltaf sérstakur hlutur aö flytja
verk annarra manna. Lesarinn
verður aö kynna sér verkið vel,
áöur en hann fer aö flytja þaö, —
og þá vaknar strax áleitin spurn-
ing: Höföar verkiö á einhvern
hátt til min, eöa lætur þaö mig
ósnortna meö öllu? Ef lesarinn
kemst ekki i neina tilfinningalega
snertingu viö efniö, er hætt viö aö
það komi niður á flutningnum.
Sögurnar, sem ég hef veriö aö
lesa eru þannig byggðar, aö
heimurinn er séður meö augum
fjögurra ára barns. Ég játa, aö
það tók mig nokkurn tima aö
venjast þvi. En svo opnaöist þetta
allt i einu fyrir mér, og nú held ég
að ég sé alveg búin aö átta mig á
heimi þessara sagna.
Við eigum að veita þeim
gleði og lifsþrótt
— Hefur þú orðið vör viö ein-
hver viðbrögö ungra hlustenda,
eða eru allir hættir að nenna aö
skrifa útvarpinu eöa hringja
þangað, svo börn sem fullorðnir?
— Nei, fólk er ekki hætt að
nenna þvi. Og ég hef talsvert orö-
ið vör við, hvernig lesturinn hefur
likaö. Aftur á móti ber þess aö
gæta, aö margir hlustenda
Gunnvör Braga.
minna, — bæði þeir sem hlusta á
tónlist, og talaö orö — eru fjög-
urra til fimm ára gamlir, og þess
er ekki aö vænta, að fólk á þeim
aldri skrifi eða hringi mikið. Þaö
er þvi mjög áriöandi aö foreldrar
hlusti með börnum sinum, tali viö
þau um þaö sem fer fram, og láti
siðan vita, hvernig þeim likar það
efni, sem yngstu hlustendunum I
þjóðfélaginu er boöið upp á aö
heyra. Þetta á sér að visu staö, en
mætti aö skaðlausu vera miklu
algengara en raun ber vitni. — En
þaö efni, sem ég flyt i útvarp, er
ekki einskoröaö við svona ungt
fólk. Hlustendur minir eru allt
upp i átján ára aö aldri.
Mér fyrir mitt leyti finnst aö út-
varpiö sé dálitið einangraö.
Flestir hlusta einir meö sjálfum
sér, en litiö margir saman, eins
og oft átti sér staö hér fyrr á ár-
um. Afturá móti sitja menn I hóp
viö aö horfa á sjónvarp. Mögu-
leikar til tjáningar vaxa hrööum
skrefum meö aukinni tækni. En
menn veröa aö gera sér grein fyr-
ir þvi, aö fólkið i landinu og út-
varpiö mega ekki einangrast
hvort frá ööru. Þaö er ekki neitt
einkamál okkar, sem sitjum alla
daga 1 stóru húsinu aö Skúlagötu
4, hvaö þjóöinni er boöiö til aö
hlusta á i 365 daga á ári. Hlust-
endur eiga aö láta okkur vita,
hvernig þeim finnst gefið á stall-
inn — Meö öörum oröum: Lifandi
samband á milli útvarpsins og
hlustendanna er höfuðnauösyn,
sem aldrei má gleymast.
Efni fyrir börn og unglinga er
meö nokkrum hætti alveg sér á
parti. Þaö er ákaflega viökvæmt
og vandmeöfariö, einkum vegna
þess, aö börn geta ekki varið sig
fyrir þvi sem „hellt er yfir þau”
með sama hætti og fullorðið fólk
getur valiö og hafnaö og beitt eig-
in dómgreind. Langt fram eftir
árum taka börn með einlægni og
opnum huga viö öllu, sem þeim er
sagt, óg þaö leggur ökkur, sem
veljum og lesum upp efni fyrir
börn, þunga skyldu á herðar. Þaö
er ekki sama hvaö börnum er
sagt, og hvernigtalaö er við þau.
„Aögát skal höfö i nærveru sál-
ar.” Viö eigum lika að vera
heiöarleg viö börnin og segja
þeim satt. Ef viö reynum aö
blekkja þau með þvi aö telja þeim
trú um, aö sá heimur, þar sem
þau eiga- eftir að lifa og starfa, sé
allt ööru visi og miklu betri en
hann er i raun og veru, þá erum
við ekki heiðarleg — þá erum viö
að hafa i frammi blekkingar.
Þess vegna er það, að þegar viö
leysum úr spurningum barna og
reynum aö fræöa þau um heiminn
með kostum hans og löstum, sól-
skini og skuggahliöum, — þá
verðum viö jafnframt aö vera
fær um aö veita þeim þá lifsgleöi
og þann lifskraft, sem eflir þau til
aö lifa lifi sinu I þessum heimi.
—VS
er mikil *
t'iTER
TOy
Kiddicraft
G/?ow
PR OSKALEIKFÖNG
Eigum mjög gott úrval af þessum
margviðurkenndu þroskaleikföngum
fyrir börn á ýmsum aldri
INGVAR HELGASON
Vonorlandi v/Sogoveg — Simar 84510 og 84511
Heimsfrægar
Ijósasamlokur
6 og 12 V. 7" og 5 3/4"
Bílaperur — fjölbreytt
úrval.
Sendum gegn póstkröfu
um allt land.
->T¥
ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla