Tíminn - 10.09.1978, Qupperneq 21
Sunnudagur 10. september 1978
gróður og garðar
snotur, hún fer t.d. vel saman
við fifu. Glöggir menn munu og
koma auga á eina mjóa hrossa-
nál i könnunni! Hún er stinn og
auðþekkt á þvi að stráið nær
talsvert upp fyrir móleitan
blómskúfinn. t þessum könnu-
vendi var þá heilt blómasafn!
Loks er hér sýndur grasa- og
hálfgrasa blævængsvöndur. t
honum ber mest á snarrótar-
punti, bæði þeim venjulega blá-
grængljáandi og gulhvitu fögru
afbrigði, sem gullpuntur nefn-
ist. Hann getið þið reynt að
finna. í vendinum er lika vall-
hæra, gulstör og mýrastör.
Vandamyndirnar tvær hefur
Tryggvi ljósmyndari Timans
tekið, en undirritaður hefur tint
blómin að venju.
Margir spyrja um sveppi,
hverjasé óhætt að eta, og hverj-
ir séu hættulega eitraðir. Bent
skal á, að i Garðyrkjuritinu árið
1969 er fróðleg grein um is-
lenska matarsveppi eftir Helga
Hallgrimsson. Ættu menn, sem
áhuga hafa á matarsveppum,
að kynna sér þá grein. Ýmsar
erlendar sveppabækur eru og
til, t.d. á dönsku og ensku. Má
nefna bók Martens Lange „Illu-
streret Svampeflora” sem er
næsta handhægt kver. Kom út
hjá Gads forlagi.
Góður matarsveppur, er t.d.
kúalubbi sem er allstórvaxinn,
grár eða brúnleitur með lóð-
réttar smápipur neðan á hattin-
um og likist þvi ofurlitið svampi
að neðan. Kýr eru sólgnar i
hann, einkum þegar heitt er.
Kúalubbi er algengur og fylgir
birki og fjalldrapa. Nota skal
hann ungan, þvi að hatturinn
fúnar og jafnvel maðkar með
aldrinum, einkum pipulagið
neðan á honum. Hatturinn situr
á gildum staf og er hvelfdur
fyrst I stað en verður flatari
með aldrinum.
Hinn alkunni ætisveppur
(Champignon) hefur blöð (en
ekki pipur) neöan á hattinum.
Hatturinn er i fyrstu kúlulaga,
en verður siðar hvelfdur eða
nærri flatur, grá- eða móleitur
að ofan, en blöðin neöan á hon-
um súkkulaðibrún. Til erufleiri
en ein tegund ætisveppa. Þeir
vaxa einkum i valllendi og á
túnum, en sumir þó i kjarri og
skógi. Ætisveppur er ræktaður
til matar á Varmalandi i
Borgarfirði, grær vel f hrossa-
taði.
Allir þekkja gorkúlur (belg-
sveppi) hnöttóttar ljósleitar
kúlur staflausar. Gorkúlur eru
vel ætar meðan þær eru hvitar i
gegn og kallaðar þá merarost-
ur. Seinna dökkna þær og fyllast
svörtu gródufti, sem rýkur upp
ef þær eru kreistar. Kallaðar
eru þær þá kerlingareldur. Gor-
kúlur eru algengar á gömlum
túnum og viðar á graslendi.
Margar fleiri Islenskar
sveppategundir eru ætar og vis-
ast um það til fyrmefndrar
greinar og bókar. En hér vaxa
einnig eitraðir sveppir t.d. hinn
fagri berserkjasveppur, sem er
mjög auðþekktur, þvi að á staf
hans situr rauður hattur með
hvitum dllum. Eftirlfkingar
hans eruseldar sem jólaskraut.
Berserkjasveppur getur orðið
stórvaxinn, en hattur hans
kemur I ljós siðari hluta sum-
ars. Vex einkum i skóglendi.
Á trektsveppum er hatturinn
dældaður i' miðju. Sumar hvitar
eða gulhvitar. tegundir trekt-
sveppa eru hættulega eitraðar.
Etið aldrei svepp, nema þið
þekkið hann og vitið að hann sé
hættulaus.
21
Örlygur Sigurðsson með
stórsýningu að Kjarvalsstööu
II
JG — t gær opnaði örlygur
Sigurðsson listmálari málverka-
sýningu að Kjarvalsstöðum, en
sýningin stendur frá 9.-24. sep-
tember.
örlygur er löngu þjóðkunnur
maður af myndlist sinni og rit-
störfum, en hann er fæddur 1920
og að afloknu stúdentsprófi
stundaði hann listnám i Banda-
rikjunum um fimm ára skeið og
siðar i Paris á árunum 1948-1949.
A fjörugum blaöamannafundi
að Kjarvalsstöðum hafði örlygur
m.a. þetta að segja:
— Égsýndi siðast i Reykjavik i
Norræna húsinu fyrir nokkrum
árum, en hefi siðan sýnt myndir i
New York, Þýskalandi og i
Frakklandi.
A sýningunni eru að þessu sinni
um 200 myndir, flestar gerðar á
siðustu árum, en auk þess hefur
fjöldi manns verið svo elskulegur
að lána myndir á þessa sýningu.
— Það var seint i vetur, sem
sýningin var ákveðin og hefi ég
notað timann vel siðan, bæði til
þess að mála nýjar myndir og
eins til þess að fullgera eða ljúka
við aðrar sem voru i smiðum.
Þetta eru oliu- acryl, vatnslita- og
litkríta rmyn dir, en a uk þes s er ég
með blýants- og blekteikningar,
en það liöur nú varla sá dagur að
ég teikni ekki eitthvað, þvi mér er
laus höndin á þvi sviði.
Myndirnarerufrá ýmsum stöð-
um, frá Akureyri, Reykjavik og
fleiri stöðum á tslandi en auk þess
eru myndir frá Frakklandi New
York og viðar. Sérstök sería er af
mannamyndum og meðal merkra
manna ná nefna Einar rika
Sigurðsson, Jökul Jakobsson,
Gústaf E. Pálsson, Halldór
Pétursson, Skúla Halldórsson,
Dag Austan (Vernharð Eggerts-
son) og fjölmarga aðra þekkta
menn og merkilega sem orðið
hafa listamanninum að mynd-
efni.
Það var allstór hópur manna
viðstaddur blaðamannafundinn
og voru menn sammála um að
þetta væri mjög skemmtileg og
upplifgandi sýning.
Aukmyndanna sem allar eru til
sölu nema þær sem eru i einka-
eign, verða bækur örlygs til sölu
á sýningunni, en hann hefur ritaö
5bækur um dagana og verða þær
allar með eiginhandaráritun
listamannsins.
Nýkomin
barnahlaðrúm 2 gerðir
Sendum í póstkröfu