Tíminn - 10.09.1978, Blaðsíða 23
Sunnudagur 10. september 1978
23’
í
Eru þau bæöi meö hlifar á fótunum?
aíþróttum haidið í
naðarsýningar
Mót þeirra sem vilja
sigra heiminn
Nú hafa flestir lesendur
vafalaust ákveöiö aö ég telji
keppni af þessari gerð óæski-
lega. Það er rangt. Þvert á móti
tel ég rétt og nauðsynlegt aö
knöpum okkar, sem vilja leggja
heiminn að fótum sér i keppni á
islenskum hestum á erlendri
grund, sé gefinn kostur á
æfingamótum hér Heima, svo
þeir séu betur búnir undir hina
stóru stund i útlöndum. Auövit-
að viljum viðöll að þa'r sem þeir
keppa við útlendinga f reið á ís-
lenskum hestum, sé hlutur
þeirra sem stærstur. Hitt er svo
annað mál að mörgum ágætum
islenskum hestamönnum
gremst að tiltölulega fámennur
hópur manna skuli leggja allt
kapp á að smygla þessum orð-
um inn i landið undir fölsku yfir-
skini iþróttamennsku, rétt eins
og það að keppa eftir reglum
F.E.I.F. sé eitthvað ljótt, sem
ekki megi tala upphátt um. Það
er svo augljóst mál að keppnis-
greinar F.E.I.F. hafa ekkert
það til að bera, fram yfir gömlu
islensku gæðingakeppnina, sem
réttlætir aðgreiningu i iþróttir
og eitthvað annað óskilgreint,
og það verður ekki á grundvelli
þeirra, sem hestamenn fá inn-
göngu í ISt, sé það tilgangurinn.
Gæðingaskeiðið vinsælt
en einn keppandi I
hindrunarstökki
Að sinni læt ég þessa gagn-
rýni á iþróttaráð nægja og einn-
ig er nóg komið um aðdraganda
að Islandsmótum i hestaíþrótt-
um og timabært að snúa sér aö
mótinu sjálfu. Þvi miður er þar
fáu að hrósa. Gæðingaskeiöið
virðist eiga vaxandi vinsældum
að fagna og var þátttaka þar
nokkuð góð og árangur mjög
sæmilegur hjá nokkrum hest-
um. 1 hindrunarstökk mætti að-
eins einn keppandi, Tómas
Ragnarsson á Glotta, þar varð
þvi engin keppni, en Tómas
sýndi áhorfendum hindrunar-
stökk. Gerðisreiðina sá ég ekki,
hún fór fram á laugardag, en þá
var ég ekki viðstaddur. Full-
orðnir kepptu i einum flokki,
Hlýðnikeppni-B, og unglingar i
sér flokki. I flokki fullorðinna
urðu efetir og jafnir Eyjólfur
tsólfsson á Glaum og Reynir
Aðalsteinsson á Penna meö 46,5
stig. Ætlunin var að lá'ta þá
keppa til úrslita, en Reynir gaf
Eyjólfi fyrsta sætið eftir án
keppni. I þriðja sæti varð Rós-
marie Þorleifsdóttir á Hálegg.
Þorleifur Sigfússon sigraði i
gerðisreið unglinga á Hausta,
Valgerður Gunnarsdóttir varð
önnur á Faxa og þriðja sætið
hlaut Dagný Ragnarsdóttir á
Smyrli, þeim sama sem pabbi
hennar, Ragnar Tómasson, hef-
ur verið með I brokki á mörgum
mótum i sumar.
Þrælareið
Veður var heldur leiðinlegt
til keppni siðdegis á sunnudag,
þegar úrslit i tölti og gæðinga-
keppnifóru fram, rigning og full
kalt. Þarvið bættistað völlurinn
var mjög þungur, ofaniburður-
inn er lausasandur án bindiefna
og stoðaði litið að valta, sem
öðru hverju var gert. Þegar rið-
ið er til úrslita i fyrrnefndum
greinum, getur þurft að riða 18
hringi (3,6 km) i töltkeppninni,
24hringi (4,8 km) i „fjórgangi”,
og 30 hringi (6 km) i „fimm-
gangi”. Fari eins og þarna var,
og algengt er, að allir hestarnir
sem keppa til úrslita i tölti,
keppi einnig til úrslita i annarri
hvorri hinna greinanna, getur
sami hestur þurft að fara 42-48
hringi (8,4-9,6 km) i harðri
keppni, oft beitt til hins ýtrasta
á yfirferðargangi, og það i
lausasandi á stuttum tima. Þar
viö bættist að fyrr um daginn
höfðu sömu hestar ýmist keppt i
undanrásum i „fjórgangi” eöa
gæðingaskeiði. Skyldi nokkurn
undra að litil fjörmerki sáust á
hestunum undir lokin.
íþróttaandi nútímans
tþróttaandi nútimans byggist á
þvi gamalkunna slagorði að, að
leikslokum er spurt um úrslit en
ekki aðferðir. Sumir knapar
beita grófustu hvatningum, geti
þeir komið þvi við án þess að
dómarar sjái. Þaö er ljótt að
sjá, þegar hestur sem hefur
annað hvort ónógan vilja eða er
orðinn slæptur af þessari enda-
lausu hringreið, er keyrður
áfram með þvi aö sá fótur knap-
ans, sem frá dómurum snýr,
gengur viðstööulaust af afli i
siðu hestsins. Þessi hvatningar-
aðferð er löngu þekkt, bæði á
iþróttamótum og i gæðinga-
keppni L.H. Er ekki ástæða til
að setja verði utan dómhrings,
sem gera dómurum aðvart ef
ólöglegri hvatningu er beitt?
Ósammála dómarar
Ég þekki ekki dómstigann,
sem notaður er i þessari keppni,
nægilega vel, til að meta hvaða
dómarar dæmdu vel og hverjir
ekki. Svo virtist sem sumir
dómaranna væru ekki of vissir
heldur, þvi geysilegur mismun-
ur var iðulega á dómum. Mest-
an mismun sá ég 4,5 stig af 15.
Þegar mismunur á milli ein-
stakra dómara er oröinn fast að
þriöjungi dómstigans, og oft 3-4
stig, og engir tveir dómarar
sammála (ég skrifaði hjá mér
einkunnir á einum „fjórgang-
ara”,þær voru: 7,5 — 8—9—10
og 11) fær maðurá tilfinninguna
að dómar séu eintómt handahóf
og tilviljun ráði hvernigraðast i
sæti.
A mótum innan vébanda
F.E.I.F. er venjulega valinn
stigahæsti hestur mótsins. Stig
hans eru fundin þannig: Stig úr
tölti + stig úr fjórgangi eða
fimmgangi + stig úr skeiði eöa
hlýðnikeppni eöa viðavangs-
hlaupi. A þessu móti var ekki
valinn stigahæsti hestur móts-
ins, heldur stigahæsti knapi.
Voru þá lögð saman öll stig hans
úr hinum ýmsu keppnisgrein-
um, án tillits til hvort hann sat
sama hestinn i þeim öllum eða
hafði hesta til skiptanna. Þessi
tilhögunmun hafaverið ákveðin
meöan á mótinu stóð og mæltist
illa fyrir hjá öllum þorra knap-
anna, sem sumir hefðu búið sig
öðruvisi að heiman með hesta-
kost, hefði þetta verið gefið upp
fyrirfram. Reynir Aðalsteins-
son varð stigahæstur, hlaut
268,5stig,hannhlauteinnigflest
stig i islenskrl tvikeppni, sem
eru samanlögð stig úr tölti og
fjór- eða fimmgangi, fékk þar
158 stig. Tómas Ragnarsson
varð stigahæstur unglinga og
einnig með flest stig unglinga i
isl. tvikeppni.
Foreldrar hans Stefáns iitla Sigurbjörnssonar eru bæði frægir knapar
svo ekki er ráð nema I tlma sé tekiö aö fara aö fylgjast meö ef hann á aö
fyigja ifótspor þeirra. A bak viö sjást fréttaritari og ljósmyndari
Eiöfaxa á mótinu.
Garpur og Sigurbjörn Báröarson (t.v.) sigruöu I gæöingaskeiöi meö
85,5 stig næstir uröu Villingur og Trausti Þór meö 84 st. og þriöja sætiö
skipuðu Þytur og Sigfús Guðmundsson.
Gisli Gislason (t.v.) á Kóp sigraöi I töltkeppni unglinga, næstur var
Tómas Ragnarsson á Þrótti, kappreiöahestinum slnum, þá Þorleifur
Sigfússon á Hausta, Monika Pálsdóttir á Faxa og Guðmundur A. Sig-
fússon á Kjána.
t töltinu sigraöi Sigfús á Þyt, hann er lengst til hægri, þá komu Eyjólfur
á Glaum, Trausti Þór á Svarta-Blesa, Reynir á Penna og Sigurbjörn á
Garpi.
í skugga land~
búnaðarsýningarinnar
Ahugi á mótinu virtist vera
litill. Keppendur voru flestir af
Selfossi og úr Arnessýslu en auk
þeirra voru nokkrir áhugamenn
á ýmsum aldri, viðar af landinu,
sem gjarnan vilja að keppni af
þessu tagi verði fastur liður hér
á landi. Þeirra á meðal var einn
frá Akureyri, annar úr Húna-
vatnssýslu og nokkrir sigursælir
Borgfirðingar. Ahorfendur voru
sára fáir, utan þeirra sem á ein-
hvern hátt voru tengdir mótinu.
Það kann að vera að mótið hafi
að einhver ju leyti fallið i skugg-
ann af landbúnaöarsýningunni,
sem einmitt var að ljúka á Sel-
fossi þá daga sem mótið stóð yf-
ir, og aðsókn þvi orðið minni en
ella hefði orðið. Að minnsta
kosti er vist að sumir knapar,
sem annars hefðu tekið þátt I
mótinu, voru uppteknir við sýn-
ingu hrossa á landbúnaðarsýn-
ingunni.
I framtiöinni veröur að
búa betur að mótum i hesta-
iþróttum ef þau eiga ekki að
lognast útaf. Vellir veröa að
vera góðir, dómarar verða að
læra meira og keppendur þurfa
að vita aðhverju þeir keppa, áð-
ur en til leiks kemur. Og um-
fram allt, skipuleggja verður
mótin þannig að úrslitakeppni
verði ekki þolraun fyrir hest-
ana.
S.V.