Tíminn - 10.09.1978, Síða 32
32
Sunnudagur 10. september 1978
Amerík
frainleibandi:
Austurbæjarbió:
Ameriku-ralliö (The Gumball
Rally)
Leikstjóri og
Chuck Ball
Argerö: 1976
Sýningarlengd:
Stjörnugjöf:
mögulegum)
og
100 mimltur
(af fimm
★ ★ +
Um þessar mundir liggur
reglulega vel á þeim sem hafa
gaman af aö sjá hraöan og
glannalegan akstur á hvita
tjaldinu og eiga afgangspeninga
fyrir biómiðum.
1 Nýja Biói er veriö aö sýna
hraöakstursmyndina „Allt á
fullu”. 1 Laugarásbiói er veriö
aö sýna kappaksturmyndina
„Cannonball”. Og i Austur-
bæjarbiói er veriö aö sýna
rallmyndina „Ameriku-ralliö”.
be«sar mviwiir sækia allar
aödráttarafl sitt i hraöan
glannalegan akstur.
„Ameríku-ralliö” lýsir harla
óvenjulegum kappakstri. Hann
hefst i New York og lýkur vestur
viö Kyrrahaf.
Þaö sem gerir hann svona
óvenjulegan er aö hann er ekki
bundinn neinum keppnisregl-
um. Þátttakendurnir þurfa ekki
einu sinni að fylgja almennum
umferðarreglum, — frekar en
þeir sjálfir vilja. Keppnin er
nefnilega bæöi óopinber og
ólögleg.
Farartæki keppendanna eru
eins misjöfn og þau eru mörg.
M.a. bregður fyrir 600 hestafla
.Camaro, Kawasaki-mótorhjóli,
umbreyttri sendiferðabifreið
Porche T@rga o.m.fl.
Þeir sem eru haldnir hinni
umdeildu „biladellu” ættu þvi
aö geta haft nokkra ánægju af
ab virða fyrir sér farartæki
keppendanna i myndinni.
Til foreldra.
Mikilvægur dagur er runninn upp. Barniö þitt er að hefja skólagöngu.
í lífi ungrar mannveru tekur við nýtt skeið, spennandi og forvitnilegt.
Fullt eftirvæntingar kannar barniö nýtt umhverfi: nýjar götur, umferð,
bíla og áóur ókunn viðfangsefni.
Hinn nýi sjónheimur getur valdið óró í huga óþroskaðs barns. Þess
vegna þarfnast það aðstoðar okkar. Hefjum hjálpina með því að finna
öruggustu leiðina í og frá skólanum — í samvinnu við barniö.
Góð ráð finnum við m.a. í þessu bréfi.
Börn eru að jafnaði í meiri slysahættu en fullorðið fólk. Þekkingar- og
reynsluleysi getur veriö orsökin. Hlutverk okkar er að kenna þeim
almenna varkárni. Við megum ekki gera umferðina ógnvekjandi í
augum þeirra. Mjög er takmarkaó hvað auka má sjálfstraust barns
sem vegfaranda ef því hefur aðeins verið kennt að hræðast hættur í
umferðinni. Nauðsynlegt er að kenna góðar einfaldar reglur varðandi
umferðarmál. Útskýrið hvernig skal hegða sér. Við höfum e.t.v. ein-
blínt á þær hættur, sem börnum eru búnar en vanrækt að upplýsa um
rétta hegðun þegar hættulegar kringumstæður blasa við.
Okkur ber að taka afstöðu til mikilvægs atriðis: Hvenær á barnið að
hjóla í skólann?
Við rannsóknir hefur komið í Ijós að hæfni barna til þess að stjórna
reiðhjóli í umferð er mjög takmörkuð undir 10 ára aldri og er því ekki
mælt með slíku fyrr en þá í fyrsta lagi. Það er annað að geta hjólað og
verða góður vegfarandi.
Að lokum minnum við á gott fordæmi í umferð. Börn líkja eftir atferli
fullorðinna. Þetta ber að hafa hugfast því að vió viljum börnum okkar
það besta í umferðinni.
Við vonum að þetta bréf leiði til góös samstarfs við upphaf skólaárs
og góðs árangurs á námsbrautinni. (Sjá næstu síðu).
Með kærri kveðju
kennari.
ÁLEIÐ
í SKÓLANN.
Hjálpið barninu að finna
öruggustu leiðina til og
frá skóla.
Fylgið barninu fyrstu
skóladagana.
Ef hættulegir eða vara-
samir staöir eru á leiðinni
þarf að útskýra í hverju
hættan er fólgin.
Þótt barnið noti skólabíl
(strætisvagn) þarf að
kenna því umgengni og
skýra þær hættur sem
fylgja stórum bílum.
Gangið alltaf á gang-
stéttinni.
Notið alltaf gangbrautir
þar sem þær eru.
------
♦»
Á þjóðvegum aka bíl-
stjórar hratt. Lítið mjög
vel í kringum ykkur áður
en þið farið yfir þjóðveg-
inn.
Gangið eins langt frá
gangstáttarbrúninni og
unijt er.
Gangið ekki fleiri en tvö
samhliða.
Gangið fremur í röð þeg-
ar þið eruð mörg saman.
Þar sem engin gangstétt
er: Gangið alltaf á móti
umferð vinstra megin,
eins nálægt vegarbrún
og unnt er.
Gætið þess aö barnið
hafi nægan tíma til að
komast í skólann.
Það er ekki fyrr en við
10—12 ára aldur sem
flest börn geta hjólað í
umferð.
Börn gleyma fljótt reglum
og ráðum. Athugið því
kunnáttu barnsins öðru
hverju.
Gleymið ekki að gott for-
dæmler mikilvægt.
Stansið, bíðið og lítið vel
til beggja hliða áður en
þið gangið yfir akbraut-
ina.
Forðist hættur sem fylgja
ýmsum framkvæmdum.
Leikið ykkur heldur á
leikvellinum, sparkvellin-
um eða þar sem skólinn
(lögreglan) mælir meö.
Umferðarljós?
Þú mátt aðeins fara yfir á
grænu Ijósi.
Ef þið komið með stræt-
isvagni (skólabíl) í skól-
ann skuluð þið alltaf bíöa
þangað til bíllinn er far-
inn.
Forðist að ganga út á
akbraut milli kyrrstæðra
bifreiða. Ef þið neyðist til
þess — sýnið þá sér-
staka varúð. Veljið ör-
uggari leiðina þótt hún
sé lengri.
— og þegar dimmir nota
allir í fjölskyldunni end-
urskinsmerki.