Tíminn - 10.09.1978, Side 36
Sýrð eik er
sígild eign
TRÉSMIDJAN MÉIDUR
SÍÐUMULA 30 - SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Sunnudagur 1Ö. september 1978 198. tölublað — 62. árgangur
Frá Kaupmanna-
höfnberastþær fréttir
að úti á Friðriksbergi
hafi verið opnað safn
helgað grinistanum
og teikæaranum
Storm P.
Storm P. dó fyr!r 28 á rum og
lét eftirkomendum sinum i té
40.000 teikníngar og málverk
og 4500 reykjarpipur. Nú hefur
þetta veriösettá safnöllum til
gleði og hressingar.
Stundum er Storm P.
kallaöur faðir danskrar kimni.
Það er kannski ofsagt en
margt er snjallt sem Storm P.
lét sér detta i hug. Margir
kannast við Tuborg-aug-
lýsinguna þar sem einn róni
spyr annan: Hvenær finnst
þér Tuborg bestur? — Hver-
gangsvarar hinn.
önnur ummæli Storm P. eru
viðfræg: — Það er alltaf erfitt
að spá einkum um framtiöina.
Yður vantar vottorð sem vott-
ar að þér hafið vottorð upp á
vottorðsem vottar aðþér hafið
vottorð.
Storm P. — sjálfsmynd
40.000 myndir
og 4500 pípur
á Strom P.
Gull í gröfum
forfeðra
Alexanders mikla
Sfðla árs 1977 fann griski fornleifafræðingurinn Manolis Andronikos
merkilegar grafir i haugum skammt frá þorpinu Vergina I norðurhluta
Grikklands. Þar var um óvenjulega vel varðveittar grafir að ræða, og
fundust þar frábærir gripir. Andronikos telur að þar sé um að ræða
grafir Filippusar Makedóniukonungs og Olympiasar drottningar hans.
Filippus er kunnur fyrir það að hafa gert Makedónfu að miklu veldi á
Balkansakaga og að vera faðir Alexanders mikla, sem var á góðum
vegi með að leggja undir sig heiminn á svipuðum aldri og ungir menn á
vorum dögum eru að ijúka háskólanámi.
Andronikos fann nú i sumar enn
eina merkilega gröf i þessum
sama hól og gröf Filippusar
fannst. Þar er allt með nokkuð
ööru sniöi og ekki eins skrautlegt,
enda er þetta sennilega gröf eldri
konungs i Makedóniu.
Kistan i gröfinni, sem talið er
aö sé hinsta hvilurúm Filippusar,
er úr marmara og likið var lagt i
gulliðskrin. 1 hinni nýfundnu gröf
er likið lagt i silfurker. Þarna eru
30 silfurmunir, sveigur úr gulli og
frábærir skrautmunir úr gulii.
Mannfræðilegar rannsóknir á
beinaleifum þess, sem hvildi i
marmaragröfinni, sýna, að sá
hefur verið á aldrinum 40-50 ára,
en Filippus var einmitt á þeim
aldri er hann var myrtur. I gröf-
inni var verðlaunagripur frá
leikunum i Argos áriö 460 f. Kr.
Þetta mun vera erfðagóss i ætt
Filippusar.
1 drottningargröfinni var gull-
inn myrtulaufakrans, og þar
fannst einn fegursti gripur, sem
þekktur er frá fornöld Hellena. Er
það spöng til að leggja yfir hár,
gerð úr gulli og mótuð sem mörg
blóm, sem örlitlar býflugur úr
gulli eru að sjúga úr hunang.
Manolis Andronikos
TIL UMHUGSUNAR
Herhvöt
,,Á þá frelsið enga hönd
annars manns að leysa bönd?
Nötrar hönd þín nízk og köld?
Neitar þú um bróðurgjöld?
Veiztu'ei frelsið einmitt er:
öðrum hjálpa jafnt og sér,
vörn og sókn með vilja stáls-
veröldin unz öll er frjáls!" James Russei Loweii
(þýð. Matthias Jochumss.)
Leifur sýnir
í New York
Lever House i New York, þar
sem Leifur mun sýna verk sin.
S.l. þriðjudag var hafist
handa við að taka niður
glerveggskreytinguna
„Vorblót" sem sett var
upp í Esjuberg í Hótel
Esju fyrir opnun veit-
ingahússins árið 1975
Myndin fer nú á sýningu í
New York, en höfundur
hennar, Leifur Breið-
f jörð, er einn fárra lista-
manna sem boðið hefur
verið að sýna þar. Hér er
þó aðeins hálf sagan
sögð, því önnur mynd
Leifs verður einnig á sýn-
ingunni. Sú mynd heitir
„Máttur viljans" og er
nýlega fullgerð, en hana
vinnur Leifur fyrir
Reykjalund.
Glermyndin „Vorblót” er 5
metra löng og 1.50 á hæö. Hún er
úr steindu gleri, sem hægt er að
taka niöur i sjö hlutum. Margir
gestir Esjubergs, jafnt innlend-
ir sem erlendir hafa hrifist af
myndinni og ýmsir hafa spurt
um höfund hennar.
Myndin „Vorblót” er ekki þaö
einasta sem Leifur Breiöfjörð
hefur unnið fyrir Flugleiðir.
Loftskreytingarnar i Skálafelli,
veitingasalnum á 9. hæö Hótel
Esju, eru einnig eftir hann og
hafa vakið óskipta athygli
gesta.
Sýning sú sem Leifur Breiö-
fjörð tekur þátt i heitir Glass
America, og verður haldin i
Lever House i New York dagana
9.-27. október. Lever House er
stutt frá Muséum of Modern
Art, á horni Park Avenue og 53.
strætis. Aöeins 40 listamenn fá
að sýna verk sin á Glass
America og er boð um þátttöku
álitið mikill heiöur hverjum
listamanni. Auk nútima gler-
listaverka munu verða sýnd
frönsk glerskurðarverk, yfir 200
ára gömul.
Leifur Breiöfjörö vinnur viö aö taka niöur glerveggskreytingu sina
„Vorblót”. Timamynd: Róbert.