Fréttablaðið - 01.09.2006, Síða 2
2 1. september 2006 FÖSTUDAGUR
SPURNING DAGSINS
DÓMSMÁL Þrír stórsmyglarar sem
reyndu að smygla inn í landið
rúmlega 25 kílóum af fíkniefnum
í apríl eru lausir úr haldi. Hæsti-
réttur hefur hnekkt úrskurði Hér-
aðsdóms Reykjavíkur þess efnis
að gæsluvarðhald yfir mönnun-
um yrði framlengt til 6. október.
Fjórði sakborningurinn í málinu,
sem er hollenskur, kærði ekki
úrskurð Héraðsdóms og situr því
áfram inni.
Mennirnir fjórir voru upphaf-
lega úrskurðaðir í gæsluvarðhald
eftir að lögreglan handtók þrjá
þeirra þar sem þeir voru að losa
það sem þeir töldu vera fíkniefni
úr bifreið, sem flutt hafði verið til
landsins frá Hollandi í byrjun
apríl. Um var að ræða rúm fimm-
tán kíló af amfetamíni og rúm-
lega tíu kíló af hassi. Lögregla
hafði haft eftirlit með bifreiðinni,
komið hljóðupptöku og gerviefn-
um fyrir í henni og hlerað síma
hinna grunuðu. Í greinargerð lög-
reglu kemur fram að hljóðritað
samtal við bifreiðina á vettvangi
bendi eindregið til þess að menn-
irnir hafi verið að „móttaka efnin
með því að fjarlægja þau úr bif-
reiðinni“.
Í nýjum úrskurði sínum vísar
Hæstiréttur til fyrri úrskurðar
þegar gæsluvarðhald yfir fjór-
menningunum var framlengt til
25. ágúst. „Var sérstaklega tekið
fram í þeim dómi Hæstaréttar að
heimild til gæsluvarðhalds ... sé
eðli máls samkvæmt háð því að
ekki verði óhæfilegur dráttur á
rannsókn máls og það síðan rekið
með viðhlítandi hraða ... Eins og
að framan greinir hefur varnar-
aðili þegar sætt gæsluvarðhaldi í
um fjóra og hálfan mánuð og
verði fallist á kröfu sóknaraðila
mun varnaraðili að öllu óbreyttu
sæta gæsluvarðhaldi í tæplega
hálft ár. Þrátt fyrir að varnaraðili
sé undir sterkum grun um aðild
að umfangsmiklum innflutningi á
fíkniefnum verður samkvæmt
gögnum málsins ekki annað ráðið
en taka hefði mátt ákvörðun um
ákæru á þeim tíma sem ákveðinn
var með síðastgreindum dómi
Hæstaréttar 17. júlí 2006,“ segir
Hæstiréttur.
„Út úr þessu má lesa að Hæsti-
réttur er farinn að gera meiri
kröfur en áður var um rannsóknar-
hraða mála,“ segir Kolbrún
Sævarsdóttir saksóknari, en tíðk-
ast hefur að sakborningar í stærri
sakamálum sitji inni þar til dómur
hefur gengið í málum þeirra.
„Hæstiréttur virðist nú meta
tímamörkin strangar, sem mér
finnst nokkuð harðar kröfur því
spurningin er hvort rannsóknar-
kerfið geti staðið undir slíkri
tímapressu. Þessar rannsóknir
taka alltaf sinn tíma. Annars er
þetta í takt við almenn mannrétt-
indasjónarmið.“ jss@frettabladid.is
Þrír stórsmyglarar
voru leystir úr haldi
Þrír menn sem reyndu að smygla til landsins rúmlega 25 kílóum af fíkniefnum
hafa verið leystir úr gæsluvarðhaldi að úrskurði Hæstaréttar. Af úrskurðinum
má ráða auknar kröfur um rannsóknarhraða mála, segir saksóknari.
ÁFRAM INNI Hollendingurinn Johan Handrick kærði gæsluvarðhaldsúrskurðinn ekki
til Hæstaréttar. Hann situr því áfram í gæsluvarðhaldi.
Þorvaldur, er Trabant ekki
nógu hentugur fjölskyldubíll?
„Hann er full eldfimur fyrir minn
smekk.“
Þorvaldur Gröndal, trommuleikari
Trabant, sagði skilið við hljómsveitina á
dögunum. Helsta ástæða þess að hann
yfirgefur skútuna ku vera sú að hann varð
pabbi í janúar síðastliðnum. Hann segir
skilnaðinn vera í mesta bróðerni.
NOREGUR, AP Málverkin Ópið og Madonna eftir
norska snillinginn Edvard Munch eru komin í leit-
irnar. Norska lögreglan tilkynnti um fundinn í gær
og sagði jafnframt að þau væru í sæmilegu
ástandi.
„Málverkin komust í okkar hendur síðdegis í
dag eftir árangursríka aðgerð lögreglu,“ sagði Iver
Stensrud, sem fer fyrir rannókn lögreglu á málinu,
á blaðamannafundi í gær.
Grímuklæddir byssumenn réðust inn í Munch-
safnið í Osló um hábjartan dag fyrir tveimur árum
og rændu málverkunum. Síðan hafði ekkert til
þeirra spurst þar til í gær, þrátt fyrir að þrír menn
hafi verið dæmdir í tengslum við ránið. Höfuðpaur-
arnir ganga þó enn lausir.
Oslóarborg hafði lofað sem samsvarar 22 millj-
ónum króna í fundarlaun, en þau höfðu ekki verið
greidd út í gær.
Sérfræðingar Munch-safnsins gengu í gær úr
skugga um að málverkin væru ófölsuð og reyndist
svo vera. Að sögn norska blaðsins Aftenposten er
örlítil rifa á öðru þeirra og jaðar á hinu hefur
skemmst lítillega. Lögregla telur meistaraverkin
hafa verið í Noregi síðan þeim var rænt.
Mennirnir sem dæmdir hafa verið í tengslum
við málið aðstoðuðu ekki við endurheimtingu mál-
verkanna, að sögn Stensrud. - smk
Málverk eftir Edvard Munch sem stolið var:
Ópið og Madonna fundin
MADONNA FUNDIN Málverkin Madonna og Ópið eftir Edvard
Munch fundust í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
vill minna foreldra á að útivistar-
tími barna og unglinga tekur
breytingum í dag, eins og venjan
er hinn 1. september. Frá þeim
tíma mega tólf ára börn og yngri
ekki vera lengur úti en til klukkan
átta á kvöldin, í staðinn fyrir
klukkan tíu yfir sumartímann.
Útivistartími þrettán til sextán ára
unglinga skerðist sömuleiðis um
tvær klukkustundir, eða frá tólf á
miðnætti til tíu á kvöldin.
Bregða má út af reglunum fyrir
unglingana þegar þeir eru á leið
heim frá viðurkenndri skóla-,
íþrótta- eða æskulýðssamkomu.
- sh
Foreldrar fylgist með börnum:
Útivistartíminn
styttist í dag
BÖRNIN INN Börn yngri en tólf ára eiga
að vera komin inn klukkan átta.
NÝTT! Tómstunda- bækur
Fyrir káta krakka
SETBERG
UMFJÖLLUN Valgerður Sverrisdóttir, utanríkis-
ráðherra og fyrrverandi iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, staðfestir að hún hafi óskað
eftir því að mæta ein í Kastljósþátt Ríkis-
sjónvarpsins síðastliðið miðvikudagskvöld.
„Mér fannst þetta eðlileg ósk að minni hálfu.
Það var sótt hart að mér í þættinum og ég
gerði grein fyrir mínum sjónarmiðum. Ég
veit að Steingrímur er tapsár maður og nú
vill hann leiða athyglina frá málefninu
sjálfu,“ sagði Valgerður.
Ritstjóri Kastljóss, Þórhallur Gunnarsson,
staðfesti í fréttatilkynningu að hann hefði
orðið við beiðni Valgerðar en hún óskaði
eftir því að mæta ein í Kastljósþáttinn. Þar
ræddi Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi
við Valgerði um meðferð athugasemda
Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings vegna
Kárahnjúkavirkjunar. Í fréttatilkynningu
segir Þórhallur þáttastjórnendur hafa reynt
árangurslaust fram eftir degi að fá Valgerði
til þess að fallast á það að mæta Steingrími í
þættinum, en án árangurs.
Í opnu bréfi til Páls Magnússonar útvarps-
stjóra spyr Steingrímur J. Sigfússon hvort
hann telji réttlætanlegt að „sumir stjórn-
málamenn geti með þessum hætti skilyrt og
stýrt þátttöku sinni í umræðum um þjóðmál
á ykkar vettvangi.“
Páll Magnússon útvarpsstjóri segir í
fréttatilkynningu að stóryrt bréf Steingríms,
þar sem meðal annars er talað um að
„Ríkisútvarpið skuli þjóna valdinu með
þessum hætti“, finnist honum „sannast sagna
vera broslega verðbólgin notkun á orðum.“
- mh
Steingrímur J. Sigfússon var óánægður með að fá ekki að fara í Kastljósið og sendi sjónvarpsstjóra bréf:
Kastljósið leyfði Valgerði að tala einni
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Ók inn í Sinfóníuna
Töluverðar skemmdir urðu á skrifstof-
um Sinfóníuhljómsveitar Íslands við
Hagatorg rétt fyrir klukkan fimm í gær
þegar körfubíll rakst inn í vesturhorn
hússins og reif það niður. Starfsfólki
varð ekki meint af atvikinu en var þó
mjög brugðið.
SRÍ LANKA Íslendingar og Norð-
menn taka í dag við öllu starfi
SLMM, norrænu
eftirlitssveitar-
innar á Srí Lanka.
Norðmaðurinn
Lars Solvberg
tekur við forystu
sveitarinnar, en
hinn sænski Ulf
Henricsson lætur
af störfum.
Þorfinnur
Ómarsson,
talsmaður SLMM,
segir mikið undirbúningsstarf
hafa staðið yfir síðustu daga og
leyst hafi verið úr mörgum
erfiðum málum, Henricsson hafi
gengið frá þremur ströngum
úrskurðum við litla hrifningu
stríðandi fylkinga. „Má því segja
að þetta marki nýtt upphaf hjá
SLMM og að nýr yfir maður
komi að hreinu borði,“ segir
Þorfinnur. sjá síðu 12 - kóþ
Breytingar á SLMM í dag:
Nýtt upphaf
eftirlitssveitar
Ekið á börn
Ekið var á tíu ára dreng og átta ára
telpu í umferðinni í Reykjavík í gær.
Bæði kenndu þau sér eymsla en
reyndust ekki slösuð við rannsókn
á Landspítalanum. Þau voru bæði
hjólandi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KANADA Nunnur hafa engan „guðs-
blett“ á heilanum, heldur eiga upp-
lifanir þeirra, þegar þær fá köllun
sína, sér stað á mörgum stöðum í
heila þeirra, kemur fram í rann-
sókn kanadískra vísindamanna
sem fjallað er um á fréttavef
breska ríkisútvarpsins, BBC.
Margir kaþólikkar trúa að
nunnur nái sambandi við guð á
þrítugsaldri og hafa sumir heit-
trúaðir haldið því fram að ákveð-
inn hluti heilans sé hannaður til
þessa tiltekna sambands.
Vísindamennirnir, sem fengu
fimmtán nunnur til að segja frá
upplifun sinni meðan þeir mældu
heilastarfsemi þeirra, segjast hins
vegar hafa vísindalega afsannað
þá kenningu. - smk
Kanadísk rannsókn:
Enginn „guðs-
blettur“ í heila
ÞORFINNUR
ÓMARSSON