Fréttablaðið - 01.09.2006, Síða 7
Útboð og skráning í Kauphöll
Heildarfjöldi útgefinna hluta Exista hf. er 10.838.746.119. Hlutir
félagsins eru allir í einum flokki og jafn réttháir. Kauphöllin hefur
veitt tímabundna undanþágu frá skilyrði um lágmarksfjölda hluthafa
en í kjölfar útboðs er gert ráð fyrir að því skilyrði verði fullnægt.
Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hefur umsjón með skráningunni
og útboðinu. Nánari upplýsingar um skráninguna og skilmála
útboðsins er að finna í útboðs- og skráningarlýsingu sem gefin
Í aðdraganda skráningarinnar hyggst Kaupþing banki hf. selja
hluti í Exista sem eru í eigu bankans. Útboðið er í þremur
áföngum og verða allir hlutir í útboðinu seldir á sama verði sem
ákvarðast með áskriftarverðlagningu (e. bookbuilding) í fyrsta
áfanga þess sem beint er að fagfjárfestum. Samtals er um að
ræða hluti sem svara til um 2,6% af heildarhlutafé Exista. Seljandi
áskilur sér þó rétt til að allt að tvöfalda fyrsta áfanga útboðsins.
Exista hf. er á meðal öflugustu fyrirtækja landsins og nema
heildareignir þess yfir 300 milljörðum króna. Félagið starfar á sviði
fjármálaþjónustu, einkum trygginga og eignaleigu, m.a. undir
merkjum VÍS og Lýsingar. Exista er jafnframt kjölfestufjárfestir í
nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins, þar á meðal Kaupþingi
banka, Bakkavör Group og Símanum. Markmið Exista er að nýta
fjárhagslegan styrk sinn til frekari uppbyggingar hér á landi og erlendis.
I. Útboð til fagfjárfesta II. Starfsmannaútboð III. Almennt útboð Heildarútboð
Lágmarksáskrift 30 milljónir kr. 0,5 milljónir kr.
Hámarksáskrift 39-43 milljónir kr.
Áskriftartímabil 7. september
Heildarfjöldi hluta 150 milljón hlutir 65 milljón hlutir 65 milljón hlutir 280 milljón hlutir
Heildarandvirði 2,9-3,2 milljarðar kr. 1,3-1,4 milljarðar kr. 5,5-6,0 milljarðar kr.
Hlutfall heildarhlutafjár 1,38% 0,60% 0,60% 2,58%
*endanlegt útboðsgengi tilkynnt í lok dags 7. september
11.–13. september
Verðlagning áskriftarverðlagning* fast gengi*
Gengi 19,5-21,5 kr./hlut*
11.–13. september
fast gengi*
Stærð útboðs:
0,1 milljón kr.
Reykjavík, 1. september 2006
Kauphöll Íslands hf. hefur samþykkt að skrá hlutafé Exista hf.
og er skráning fyrirhuguð þann 15. september 2006.
er út af Exista 1. september 2006 og nálgast má hjá félaginu
næstu 12 mánuði. Lýsingin er gefin út rafrænt á heimasíðu félagsins,
www.exista.com. Lýsinguna má einnig nálgast á heimasíðu
umsjónaraðila og seljanda, www.kbbanki.is og www.kaupthing.net.
Lýsingin er jafnframt birt í fréttakerfi Kauphallar, news.icex.is. Frá
og með 4. september má nálgast innbundin eintök hjá Exista
að Ármúla 3 í Reykjavík og hjá Kaupþingi banka, Borgartúni 19
í Reykjavík.
19,5-21,5 kr./hlut* 19,5-21,5 kr./hlut*
1,3-1,4 milljarðar kr.