Fréttablaðið - 01.09.2006, Side 22
1. september 2006 FÖSTUDAGUR22
Umsjón: nánar á visir.is
Á næstu vikum skýrist hvort verð-
ur af samstarfi um rekstur fjar-
skiptaneta Símans og Orkuveitu
Reykjavíkur. Viðræður fyrirtækj-
anna halda áfram, en Orkuveitan
kaupir ekki kerfi Símans.
Skömmu fyrir sveitarstjórnar-
kosningar í vor stefndi í að Orku-
veitan keypti net Símans. Brynjólf-
ur Bjarnason, forstjóri Símans,
segir þó ekki vonbrigði að ekki hafi
orðið af sölunni. „Fyrst og fremst
lögðum við af stað með þetta til að
kortleggja málið og höfum eytt
töluverðum tíma í að gá hvort við
gætum tæknilega fundið einhverja
samþættingu í þessu. Eins vildum
við ekki strax taka ákvörðun um
formið, það er að segja hvort þeir
keyptu af okkur, við af þeim, eða
við stofnuðum félag saman. Núna
hefur nýr meirihluti ákveðið að
hann vilji ekki fara út í fjárfestingu
af þessari stærðargráðu og allt í
lagi með það,“ segir Brynjólfur og
fagnar um leið ákvörðun Orkuveit-
unnar, að aðskilja gagnaveituna frá
öðrum rekstri. Brynjólfur á von á
niðurstöðu viðræðnanna innan
tíðar. „En það er enn of fljótt að
segja til um hvort við höldum áfram
eða látum gott heita.“
Guðlaugur Þór Þórðarson,
stjórnarformaður Orkuveitunnar,
segir einnig að viðræðunum við
Símann hafi svo sem ekki verið
setur tímarammi. „En búið er að
leggja í þetta mikla vinnu og ætti í
sjálfu sér ekki að þurfa mikið í við-
bót,“ segir hann og á honum er að
heyra að skynsamlegt væri að
beina samkeppninni yfir á svið
efnis og þjónustu, fremur en gagna-
flutninga. „Fyrir því eru svipuð rök
og að leggja ekki margar hrað-
brautir hlið við hlið.“ Hann segir
bókhaldslegan aðskilnað gagnaveit-
unnar frá öðrum rekstri til kominn
burtséð frá viðræðunum við Sím-
ann. „Enda er eðlilegt að jafnmikill
samkeppnisrekstur sé aðskilinn frá
öðrum,“ segir hann. - óká
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.017 +0,47% Fjöldi viðskipta:294
Velta: 2.212 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 66,00 +1,07% ... Alfesca
4,67 +0,86% ... Atlantic Petroleum 589,00 +0,34% ... Atorka 6,25
+0,00% ... Avion 33,20 -0,30% ... Bakkavör 54,20 -0,37% ... Dags-
brún 5,15 -0,39% ... FL Group 18,50 +0,00% ... Glitnir 19,80 -0,50%
... KB banki 823,00 +0,73% ... Landsbankinn 24,80 +0,00% ... Marel
77,00 +1,32% ... Mosaic Fashions 17,60 +0,57% ... Straumur-Burða-
rás 16,40 +1,86% ... Össur 125,50 +1,21%
MESTA HÆKKUN
Flaga +2,44%
Straumur-Burðarás +1,86%
Marel +1,32%
MESTA LÆKKUN
Icelandic Group -1,27%
Glitnir -0,50%
Dagsbrún -0,39%
Vöruskiptahalli var 19,1 milljarð-
ur króna í júlí og hefur ekki verið
meiri frá því mælingar hófust,
samkvæmt Hagstofu Íslands.
Fluttar voru inn vörur fyrir 16,2
milljarða króna í mánuðinum og
inn fyrir 35,2 milljarða. Tæplega
tólf milljarða halli var á vöruskipt-
um í júlí 2005.
Fyrstu sjö mánuði ársins hafa
verið fluttar út vörur fyrir 130,5
milljarða króna en inn fyrir 216,4
milljarða. Sjávarafurðir eru
stærstur hluti útflutnings, alls 56,4
prósent. Mest er flutt inn af fjár-
festingavöru en innflutningur bíla
og flugvéla hefur dregist saman.
Vöruskipti eru því óhagstæð
um 85,9 milljarða króna fyrstu sjö
mánuði ársins. Vöruskiptahalli
hefur tæplega tvöfaldast sé miðað
við sama tímabil í fyrra.
Greining Glitnis segir í Þjóð-
hagsspá sinni að viðskiptahallinn
hafi verið uggvænlega mikill
undanfarið og bendir á að hann
hafi verið 26 prósent landsfram-
leiðslu á öðrum ársfjórðungi.
Sérfræðingar Glitnis telja að
verulega dragi úr innflutningi á
næsta ári þegar stóriðjufram-
kvæmdum lýkur og dregur úr
einkaneyslu. Því er spáð að við-
skiptahalli verði 6,8 prósent lands-
framleiðslu samanborið við 16,8
prósent í ár. - jsk
Vöruskiptahallinn
aldrei verið meiri
Nítján milljarða halli varð á vöruskiptum í júlí.
Talið er að úr honum dragi hratt strax á næsta ári.
Sigurður G. Guðjónsson, stjórnar-
formaður Árs og dags, útgefanda
Blaðsins, segir að tap félagsins á
síðasta rekstrarári hafi verið í
takt við þær áætlanir sem lagt var
upp með. Það sé eðlilegt fyrir fjöl-
miðlafyrirtæki sem byrji frá
grunni. Sigurður gefur ekki upp
nákvæmar tölur.
Á aðalfundi félagsins á dögun-
um var endurnýjuð heimild stjórn-
ar til að auka hlutafé um tvö
hundruð milljónir króna. Að sögn
Sigurðar hefur ekki verið rætt við
neina aðila um að koma inn sem
hluthafar en útgáfufélag Blaðsins
er í eigu sjö hluthafa, stofnenda
þess og Árvakurs.
Stefán P. Eggertsson og Einar
Sigurðsson gengu inn í stjórn sem
fulltrúar Árvakurs en Sigurður og
Steinn Kári Ragnarsson sitja þar
áfram.
Morgundreifing blaðsins hófst
í dag og verður Sigurður var við
góð viðbrögð auglýsenda vegna
þeirra breytinga. - eþa
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON OG KARL
GARÐARSSON, HLUTHAFAR Í BLAÐINU
Blaðið var rekið með tapi á fyrsta
starfsári. Ekki stendur til að taka inn nýja
eigendur.
Tap Blaðsins var í
takt við áætlanir
BÍLABREIÐUR Vöruskiptahalli á fyrstu sjö
mánuðum árs var 85,9 milljarðar króna.
Greining Glitnis spáir að verulega dragi úr
hallanum á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þótt velta FlyMe hafi aukist um
75 prósent á fyrri helmingi ársins,
samanborið við árið 2005, jókst tap
félagsins um helming á milli ára.
Norræna lággjaldaflugfélagið tap-
aði 1,1 milljarði á fyrstu sex mánuð-
um ársins samanborið við 560 millj-
óna króna tap í fyrra.
Kostnaður jókst hröðum skref-
um einkum vegna stofnkostnaðar
af Evrópuflugi en einnig komu olíu-
verðshækkanir sér illa við félagið
rétt eins og önnur flugfélög.
Velta félagsins nam yfir 3,2
milljörðum króna og jókst far-
þegafjöldi um 66 prósent. Alls
fóru yfir 440 þúsund farþegar
með félaginu á fyrri hluta ársins.
Á hluthafafundi á dögunum
var samþykkt að selja nýtt hluta-
fé fyrir rúma 1,8 milljarða króna
sem núverandi hluthafar eiga for-
gang að. Stærstu hluthafarnir,
sem ráða um 67 prósentum hluta-
fjár, hafa skuldbundið sig til að
taka þátt í útboðinu, þar á meðal
Fons, stærsti hluthafinn.
Ákveðið hefur verið að Matthí-
as Imsland, hjá Fons, taki virkan
þátt við stjórnun félagsins og
verði varaformaður stjórnar en
Björn Olegård verður áfram
stjórnarformaður. - eþa
Tap FlyMe tvöfaldast milli ára
Samþykkt að þrefalda hlutafé. Matthías Imsland nýr varaformaður stjórnar.
ORKUVEITAN OG BRYNJÓLF-
UR BJARNASON Blásnar hafa
verið af fyrirætlanir um
kaup Orkuveitunnar á
fjarskiptaneti Símans.
Síminn og OR ræðast áfram við
Hvorki orðvar né orðheppinn
Bretlandsarmur skartgripakeðjunnar Signet er ekki
til sölu að sögn Terry Burman, forstjóra fyrirtækisins.
Baugur hefur lýst áhuga á að taka yfir rekstur Signet
á Bretlandseyjunum. Signet rekur 590 verslanir á eyj-
unum undir merkjum H Samuel og Ernest Jones.
Breski auðjöfurinn Gerald Ratner hefur einnig
áhuga á starfseminni og gerir breska dag-
blaðið The Guardian því skóna að Baugur
og Ratner taki jafnvel höndum saman.
Rekstur Bretlandsarms Signet hefur
ekki gengið sem skyldi; sala H Samuel
dróst saman um tæp tvö prósent á
fyrri árshelmingi og Ernest Jones tapaði
442 milljónum króna. Gerald Ratner verð-
ur seint sakaður um að vera orðvar og lá ekki
á skoðunum sínum í þetta skiptið. „Þetta er ömurlegt
uppgjör, hreint hörmulegt. Ég mun ná samkomulagi
um kaupin, hvort sem það verður fyrir jól eða síðar.“
Síðbúið skúbb
Barátta Actavis og Barr um króatíska lyfjaframleið-
andann Pliva hefur harðnað til muna eftir að Acta-
vis hækkaði eldra tilboð sitt um tíu prósent. Nemur
fjárhæð tilboðsins 175 milljörðum króna.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kom
fram að félagið hefði tryggt sér fulla
fjármögnun með fulltingi þriggja
erlenda fjármálastofnana, Glitnis
og Landsbankans. Tæpum tveimur
klukkustundum eftir að fréttin birtist
gat að líta frétt á vef Viðskiptablaðsins
þar sem sagði að samkvæmt heimildum
blaðsins kæmi Landsbankinn að fjármögnun
á hugsanlegri yfirtöku ásamt þremur erlendum
fjármálafyrirtækjum. Viðskiptablaðið hafði hins
vegar ekki heimildir fyrir því að Glitnir væri meðal
lánveitenda. Það leið ekki á löngu þar til fréttinni
var breytt til samræmis við eldri tilkynningu Actavis
til Kauphallar.
Peningaskápurinn...
Actavis hækkaði tilboð sitt
í króatíska lyfjafyrirtækið
Pliva um tíu prósent í gær
og hljóðar það nú upp á 795
kúnur á hlut. Lokað var
fyrir viðskipti með bréf í
Pliva í Króatíu í gærmorg-
un skömmu áður en fréttin
fór í loftið. Barr Pharma-
ceuticals, sem líka vill
kaupa Pliva, ætlar sér viku
til að hugleiða næstu skref.
Fyrra tilboð Actavis hljóðaði upp á
2,5 milljarða Bandaríkjadala eða
um 175 milljarða íslenskra króna og
hefur fjármálaeftirlit Króatíu stað-
fest nýtt tilboð Actavis, sem er 7
prósentum hærra en tilboð banda-
ríska samheitalyfjafyrirtækisins
Barr í Pliva.
Fjármögnun vegna tilboðsins er
að fullu lokið en að baki henni
standa alþjóðlegu viðskiptabank-
arnir JP Morgan, HSBC og UBS,
auk íslensku bankanna Glitnis og
Landsbanka Íslands. Þá hefur Acta-
vis fengið samþykki hluthafa fyrir
útgáfu nýs hlutafjár sem nemur allt
að 300 milljón hlutum í Actavis í
tengslum við kaupin.
Róbert Wessmann, forstjóri
Actavis, segir fyrirtækið í góðri
stöðu því samlegðaráhrif af sam-
runa Actavis og Pliva séu allt að
helmingi meiri en Barr geri ráð
fyrir. Þó eigi eftir að sjá hvort Barr
sé tilbúið að hækka tilboð sitt í
króatíska lyfjafyrirtækið. „Það
gæti gerst að Barr vilji borga meira
fyrir félagið en eðlilegt er. Þá
munum við skoða það,“ segir hann.
Að sögn Róberts verða yfirtökur
á borð við þessa að standa undir
kaupverðinu svo þau skili sér aftur
í aukinni arðsemi fyrir hluthafa
fyrirtækjanna. „Þetta snýst í raun
ekki um það hver er með stærsta
vasann heldur hvað sé raunhæft að
bjóða í svona félag,“ segir hann.
Hækki Barr tilboð sitt geti svo farið
að Actavis selji bréf sín eða haldi
þeim og „geri Barr lífið leitt,“ sé
gripið til orða Róberts enda sé
félagið í oddastöðu með rúman
fimmtung hlutafjár. Barr á hins
vegar enga hluti í króatíska lyfja-
fyrirtækinu.
Barr gaf út tilkynningu í gær þar
sem fram kemur að félagið muni
taka ákvörðun um næstu skref eigi
síðar en á föstudag í næstu viku.
Gengi bréfa í Pliva hækkaði um
5 prósent á markaði í Króatíu í kjöl-
far hærra tilboðs frá Actavis og fór
í 820 kúnur á hlut. Fréttastofa Reut-
ers hefur eftir greiningaraðila við
Hypo Alpe-Adria banka í Króatíu að
tilboð Actavis komi ekki á óvart.
Telji greiningardeild bankans mikl-
ar líkur á að Barr bregðist við innan
skamms og geti svo farið að loka-
gengi bréfa í Pliva fari yfir 850
kúnur á hlut. jonab@frettabladid.is
RÓBERT WESSMANN, FORSTJÓRI ACTAVIS Róbert segir samlegðaráhrif Actavis og
Pliva meiri en Barr og Pliva. Actavis er í oddastöðu með rúman fimmtung hlutafjár í
fyrirtækinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Actavis hækkar yfir-
tökutilboð sitt í Pliva
MARKAÐSPUNKTAR
Tæknival tapaði 27 milljónum króna á
fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma
fyrir ári tapaði félagið rétt rúmri 41 milljón
króna. Óhagstæð gengisþróun skýrir tapið
að miklu leyti.
Olíufélagið ehf. og dótturfélög þess,
Olíudreifing og Egó, töpuðu 62,4 milljón-
um króna á fyrstu sex mánuðum ársins.
Þetta er viðsnúningur hjá félaginu en
það hagnaðist um 223,9 milljónir króna
á sama tíma í fyrra. Tapið má rekja til
óhagstæðrar gengisþróunar og aukins
fjármagnskostnaðar.
Neysla jókst um 0,8 prósent í júlí og hefur
aukningin ekki verið jafn mikil á árinu.
Greiningaraðilar segja vöxt neyslunnar
bera merki um hægari lendingu á efna-
hagslífinu en óttast hafði verið.