Fréttablaðið - 01.09.2006, Qupperneq 30
[ ]
Foodtaxi.is býður yfir sextíu
rétti á heimsendingarmatseðli
sínum.
Fyrirtækið Foodtaxi.is hóf starf-
semi fyrir nokkrum vikum en
hefur verið í undirbúningi síðan í
janúar. „Við erum Rollsinn í heim-
sendingum,“ segir Magnús Garð-
arsson sem rekur fyrirtækið
ásamt félaga sínum William Sco-
bie.
Hugmyndin varð til þegar þeir
félagar, sem báðir eru kokkar,
voru að spá í skyndibita- og matar-
menninguna á Íslandi. „Hér var
bara hægt að fá pítsur og núðlur
sendar heim. Við ákváðum að
hrista upp í markaðnum, enda
töldum við að það vantaði þjón-
ustu eins og þá sem við bjóðum.
Við heimsendum eiginlega allt
nema pítsur, þú getur fengið salöt,
grænmetisrétti, grillaðan kjúkl-
ing, fisk, nautasteikur, hamborg-
ara, lambasteikur, ofnbakaða rétti
og fleira. Við verðum með yfir
sextíu rétti á nýjum matseðli sem
kemur út í byrjun september,“
segir Magnús á meðan símarnir
glymja bak við hann.
Það er ekki bara úrvalið á
heimsendum mat sem er glæsilegt
hjá Foodtaxi.is því eldhúsið er
glæsilega útbúið og 200 fermetrar
að stærð. „Hér er allt tölvukeyrt,
engir miðar. Skilaboðin koma
beint frá símasvöruninni upp á
skjái hjá okkur. Eftir tvær til þrjár
vikur getur fólk svo pantað beint
af netinu og maturinn ætti að vera
kominn innan 45 mínútna. Allur
matur er eldaður á eldi og fluttur í
rafhituðum hitatöskum heim til
viðskiptavina,“ segir Magnús.
Fyrirtækið er með sex bíla
núna en er búið að panta tíu til við-
bótar til að anna eftirspurn. „Það
eru bara ekki til gulir bílar á land-
inu. Hér er allt svart og grátt en
við erum sólargeislinn í grámyglu-
leikanum,“ segir Magnús og vitn-
ar til gula litarins sem er allsráð-
andi á bílunum og í búningum
starfsmanna. „Og við ætlum okkur
í útrás með íslenska sólargeislann;
höfum fengið einkaleyfisskrán-
ingu í tuttugu löndum.“
Vinsælustu réttirnir hjá Food-
taxi.is eru Philly Cheese Steak
samloka, sem er nautafille með
lauk, sveppum, osti og grænmeti
annars vegar og hins vegar Bah-
ama Mama, sem er grillaður kjúkl-
ingur með hrísgrjónum, karríi,
salati, osti og ristuðu brauði.
Frá opnun hefur Foodtaxi.is
fengið góðar viðtökur og Magnús
segir fyrirtækið vera að leita að
eldhúsi í miðbænum til að þjóna
því svæði enn betur. „Það verður
vonandi komið í gang eftir mánuð
og svo stefnum við á annað í
Garðabæ,“ segir Magnús bjart-
sýnn. einareli@frettabladid.is
Brunað með ljúffenga rétti
Eldhúsið er 200 fermetrar og búið nýjustu græjum. Þar er allur matur eldsteiktur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Magnús og William við einn af gulu bílunum, sem Magnús segir sólargeisla í íslenska
grámygluleikanum.
5 dl spelt (fínmalað)
1 dl sólblómafræ
1-2 tsk maldon salt (Saltið mulið
á milli fingranna, mjög bragðgott
salt)
3 tsk vínsteinslyftiduft (ekki hveiti-
lyftiduft)
1 dós lífræn hrein jógúrt (eða ab-
mjólk)
1-1 1/2 dl soðið vatn.
Öllu blandað saman í skál með sleif.
Sett í brauðform (u.þ.b. 20 cm) og
bakað í korter miðað við 175° í blást-
ursofni.
Ítalskt paninibrauð úr spelti:
Góðum slatta af ítölsku paninikryddi
frá Pottagöldrum bætt við uppskrift-
ina. Deiginu skipt í tvennt og lagt á
pappírinn þannig að úr verði tvö löng
brauð. Áður en það er bakað er ólíf-
um (grænum eða svörtum) troðið
ofan í deigið. Þetta er enn fljótlegra
þar sem brauðin eru ekki eins þykk
og ef það er aðeins eitt brauð, og því
tekur bökunin enn minni tíma.
Uppskrift Hörpu
Speltbrauð
Nýbakað speltbrauð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Það er hollt og gott að venja sig á að hafa salat með matnum.
Gerið salatið meira spennandi með því að bæta osti, hnetum eða vínberjum við.
Fólk veltir stundum fyrir sér hvort
brauð geymist betur við stofuhita
eða í kæli. Með tilliti til örverufræði
ætti að geyma brauð í kæli því það
spornar við því að myglusveppir nái
sér á strik en þeim fjölgar frekar við
stofuhita.
Með tilliti til gæðaskerðingar er hins
vegar betra að geyma brauð við
stofuhita. Þá helst mýktin í brauðinu
frekar því sterkjan í því breytist með
tímanum úr myndlausu í kristalsform
og við það harðnar brauðið. Þetta
ferli gengur hraðast við ísskápshita
en mun hægar við stofuhita. Það er
því úr vöndu að ráða
með geymslu á
brauði.
Heimild www.
chef.is.
Tveir ólíkir kostir
við að geyma brauð
MISMUNANDI GEYMSLUAÐFERÐIR
BRAUÐS.
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is
ÚTSALAN
HEFST Í DAG!
Skeifunni 11d - 108 Reykjavík
Reykjavíkurvegur 64
220 Hafnarfir›i
www.aman.is
25-6
0%
AFS
LÁT
TUR
25-50
% af
sláttu
r
Útsalan hefst
1. september
i i - j í
j í
i i
. .i
!
Skeifunni 11d - 108 eykjavík
eykjavíkurvegur 64
220 afnarfir›i
.a an.is
l
Útsalan hefst í dag
Háteigsvegur 1
105 Reykjavík
Sími: 533-1020
www.a a .is
Ver› fyrir einrétta Ver› fyrir tvírétta
Okkar róma›a humarsúpa 990
Steiktur skötuselur 3.390 4.390
me› hvítvínssósu
Kjúklingabringa 2.950 3.890
,,a la Italiana“
Lambafillet 3.390 4.390
me› sherrybættri sveppasósu
Nautalundir
me› Chateubriandsósu 3.700 4.690
Súkkula›ifrau› 790
Einnig úrval annarra rétta á ,,a la Cartse›li“
~
~
~
~
~
Þriggja rétta matseðill
Veitingahúsið Madonna / Rauðarárstíg 27-29
Borðapantanir í síma 562 1988 • Madonna síðan 1987 • www.madonna.is