Fréttablaðið - 01.09.2006, Page 31
FÖSTUDAGUR 1. september 2006 3
Hvítlaukur er talinn afkom-
andi villtrar lauktegundar sem
vex í Mið- og Suðvestur-Asíu.
Hvítlaukurinn sjálfur finnst
hvergi villtur þó að hann hafi
verið notaður í matargerð frá
fornöld.
Hvítlaukur er einna þekktastur
fyrir lyktina, bæði lyktina af
lauknum sjálfum og þeim sem
hefur borðað hann. Lyktin mildast
mikið við eldun og þumalputta-
reglan er sú að eftir því sem hann
er eldaður lengur minnkar lyktin.
Lyktin er misvinsæl og fer það
eftir menningarsamfélögum, en
þar sem hann hefur verið notaður
árþúsundum saman, eins og í Líb-
anon, er lyktinni leyft að njóta sín,
á meðan við á norðurhjara eldum
hann vel og lengi.
Lyktin kemur fram bæði í svita
og andardrætti. Það er vegna þess
að lyktargjafinn er brennisteins-
efnasamband sem líkaminn
getur ekki melt og því fer
það út í blóðrásina. Efnið
losnar svo úr líkaman-
um um lungun og
með svitanum.
Neysla hvít-
lauks hefur ýmsa
læknisfræðilega
kosti í för með
sér. Í honum eru
efnasambönd sem lækkað geta
kólesteról í blóði og unnið gegn
æðakölkun. Enn fremur inniheld-
ur hann efnasambönd sem eru
bakteríu- og sveppadrepandi og
hefur því verið notaður í barátt-
unni gegn ýmsum iðrasýkingum.
Margar þjóðsögur tengjast
hvítlauknum. Tilurð þeirra er
útskýrð á þann hátt í kristinfræð-
unum að þegar djöfullinn yfirgaf
Eden hafi laukurinn vaxið þar sem
hægri fótur hans kom niður, en
hvítlaukurinn þar sem sá vinstri
snerti jörð. Í þjóðsögum frá Aust-
ur-Evrópu er hvítlaukurinn talinn
vörn gegn varúlfum og blóðsug-
um. Honum er þá komið fyrir í
knippum við glugga og hurðir, auk
þess að vera makað á skrárgöt og
skorsteinsop.
Ofnbakaður hvítlaukur – Forréttur
Miðað við 4-6:
2-3 heilir hvítlaukar með stórum
rifjum.
Ristað brauð, skerið sneiðarnar í
tvennt eða fernt.
Sýrður rjómi eða óbragð-
bætt jógúrt.
Takið sem
mest af hvíta
þurra hýðinu
utan af hvít-
laukunum.
Hýðið
næst rifj-
unum er ekki snert. Laukarnir eru
hafðir heilir og ekki teknir í sund-
ur.
Laukarnir eru settir í lokað eld-
fast mót eða inn í álpappír. Passið
bara að hafa rúmt um laukana.
Dreypið ögn af olíu yfir laukana,
svolitlu salti og ögn af nýmuldum
pipar. Bakið í ofni við venjulegan
bökunarhita í um það bil hálfa
klukkustund. Gott er að bæta á olí-
una á miðjum bökunartíma. Bak-
aðir líta laukarnir út eins og falleg
blóm.
Brauðið er smurt með jógúrt-
inu eða rjómanum og safinn úr
hvítlauksrifjunm er kreistur yfir
brauðið.
(Uppskrift af eldhus.is)
Hvítlaukskjúklingur
2-4 kjúklingabringur
1-2 heilir hvítlaukar
Smá af hvítlauksdufti, hvítlauks-
salti, kød og grill, season all, cay-
enne pipar
hvítlauksolía til steikingar
rifinn ostur
Steikið kjúklinginn upp úr hvít-
lauksolíu og brytjuðum hvítlauk
við vægan hita og kryddið létt.
Setjið í eldfast form og pressið 10
hvítlauksgeira yfir. Setjið ostinn
yfir og eldið í ofni við 180° þar til
osturinn er bráðnaður. Berið fram
með brauði og fersku salati.
tryggvi@frettabladid.is
Vex ekki í villtri náttúru
Hvítlaukur hefur verið notaður í matargerð frá fornöld.
Nýir vefmiðlar hafa verið opn-
aðir með upplýsingum um nær
alla veitingastaði á Íslandi.
Vefirnir www.veitingastadir.is og
www.restaurants.is gera notend-
um sínum kleift að leita á þægileg-
an hátt að matsölustöðum við hæfi
enda er hver og einn veitingastað-
ur með sína upplýsingasíðu.
Þannig er auðvelt að leita og
flokka leitarniðurstöður eftir teg-
und staðar, matargerð, staðsetn-
ingu og verði. Auk þess er hægt að
leita eftir stöðum sem bjóða upp á
heimsendingu og „take-away“.
Hægt er að skoða myndaalbúm
margra veitingastaða og þeir sem
bjóða upp á matseðla eða borða-
pöntun á netinu eru einnig merkt-
ir sérstaklega.
Á síðunum er líka opið álits-
kerfi þar sem notendur geta
komið á framfæri áliti sínu á veit-
ingastöðum, byggðu á eigin
reynslu. Einnig er hægt að skoða
ferskar uppskriftir bæði á
íslensku og á ensku eftir því á
hvorum vefnum notandi er. Stefnt
er að því að síðurnar verði með
leiki í hverri viku og munu þær
gefa fjöldann allan af gjafakort-
um á veitingastaði.
Um veitingastaðina
Uppskriftir og myndir er að finna á www.veitingastadir.is auk fróðleiks um matsölustaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Stundum getur maður ekki staðist freist-
inguna að narta á milli mála. Fyrir þá
sem langar í eitthvað gott en eru komnir
með leið á dæmigerðu snakki, s.s.
poppi, flögum eða súkkulaði, er hægt
að útbúa eigið snarl með lítilli fyrirhöfn.
Í einni sviphendingu er hægt að galdra
fram gómsætan skyndibita sem ætti að
kitla bragðlaukana og klikkar ekki með
góðu rauðvíni.
Camembertosti er komið fyrir í
eldföstu móti.
Mango chutney er smurt yfir, en val-
frjálst er hversu þykkt það er látið vera.
Ristuðum furuhnetum er loks stráð
yfir ostinn.
Mótið er því næst sett inn í ofn við
góðan hita og innan skamms ætti þetta
gómsæta snarl að vera tilbúið.
Camembert með rist-
uðum furuhnetum
PISTILLPISTILL Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR
Grænt salat með grilluðum geitaosti
Það er heimsborgarbragur á þessu salati
og hægt að bjóða það hverjum sem er
hvenær sem er. Annað hvort sem lyst-
aukandi forrétt eða sem glæsilegan, létt-
an hádegisverð. Franski geitaosturinn er
lykilatriði fyrir þetta salat og hann er hægt
að fá í ostabúðum.
200 g klettasalatsblanda
100 g geitaostur
2 msk. ólífuolía
8 sneiðar af langbrauði (snittubrauði)
3 msk. valhnetuolía (má vera ólífuolía)
1 msk. sítrónusafi
sjávarsalt og nýmalaður pipar
Sósan:
3 msk. apríkósumarmelaði
4 msk. hvítvín
1 msk. dijon sinnep
1. Hitið olíu á pönnu og brúnið lang-
brauðsneiðarnar á báðum hliðum.
2. Útbúið sósuna. Þrýstið marmelað-
inu með sleif í gegnum sigti ofan í
pott. Hitið það því næst og bætið
hvítvíni og sinnepi út í. Látið malla á
mjög lágum hita.
3. Hitið grillið í ofninum rétt áður en
salatið er borið fram. Setjið 1 sneið
af geitaosti ofan á hverja brauðsneið
og grillið sneiðarnar í ofninum þang-
að til osturinn byrjar að taka á sig
gullinn lit.
4. Veltið salatinu upp úr blöndu af
hnetuolíu og sítrónusafa. Skiptið sal-
atinu á fjóra diska. Setjið tvær sneiðar
af geitaost-brauði ofan á hvern skammt
og dreypið apríkósusósunni yfir.