Fréttablaðið - 01.09.2006, Page 40
SIRKUS01.09.06
Að Villi „Copy-paste“ og
Arnar Gunnlaugsson
hefðu skellt sér í pipar-
sveinaferð til Napólí um dag-
inn. / Að Doddi Gröndal
væri hættur í Trabant / Að
Snooze dúettinn væri að gefa út nýtt lag fyrir
erlendan markað. Lagið heitir „Tell me your
name“ og er víst sungið á ensku. / Að Símon
Birgisson fyrrum fréttamaður NFS og núver-
andi listaspýra væri kominn með kærustu. Sú
heppna heitir Ýr og ku vera
gullfalleg. / Að heiti rúss-
neski dansarinn Max úr
Footloose væri að gera upp
Penthouse íbúð á 13. hæð í
Síberíu, hann sé einungis
hér á landi í sumar til að safna
sér aur. / Að sonur Hjálmars Dómkirkju-
prests, Reynir Reynir, sem margir muna eftir
úr Kvöldþætti Gumma Steingríms væri
byrjaður að vinna á Blaðinu. Hlutirnir gerast
fljótt hjá stráknum því hann var starfsmaður
DV í síðustu viku. / Að Baltas-
ar Kormákur og Hallgrím-
ur Helgason hefðu rifjað
upp gamla takta á dans-
gólfi Kaffi Barsins um síð-
ustu helgi, segja þeir sem
sáu að strákarnir hafi engu
gleymt. / Að Halla Vilhjálms og Gulla úr
Stelpunum væru að leika í nýjum þætti á Skjá
einum. / Að Þossi væri farinn aftur til Dan-
merkur eftir að hafa verið á X-inu í allt sumar./
ÞETTA SÖGÐU ÞAU Í VIKUNNI...
„En fréttirnar sem ég flyt í þætt-
inum eru náttúrulega fréttir
sem ég fæ samkvæmt
heimildum ... Ef einhver er
heimildarmaður ætti hann
endilega að hringja í mig.“
Ragnheiður Guðfinna
Guðnadóttir í viðtali um nýja
þáttinn sinn Hér & nú í Hér & nú
„Ég hef meitt mig meira á því
að opna kókdós. Ég veit
það manna best að það
kemur mikið blóð þegar
það kemur sár á höfuðið
enda raka ég mig sjálfur á
hausnum.“
Guðmundur „Magni“ Ásgeirsson í Frétta-
blaðinu um skurðinn sem hann fékk á
höfuðið í Rockstar.
„Hann er ekkert smá fær þessi
gæi, heldurðu að hann hafi
farið í frí eða eitthvað. Er
nokkuð slökkt á rádernum?
Ertu búinn að prófa hérna,
Hive-Bjarni?“
Jóhann Alfreð Kristinsson í
Námsvildar auglýsingunum fyrir Glitni
„Menn eru bara að byrgja glugga og sitja
aðallega inni. Allar skrifstofur eru lokaðar
þarna og enginn fer út úr húsi,“ segir Barði
Jóhannsson um fellibylinn John sem er að
gera allt vitlaust í Ameríkunni. Barði átti að
spila í MTv partýi á Miami um helgina en því
hefur nú öllu verið aflýst. „Það fer enginn í
partý þarna, nema þá kannski bara heima hjá
sér,“ segir Barði sem er á leið til Washington
til þess að snúa plötum á svokölluðu tease
kvöldi. „Það er flottur listi af fólki sem hefur
spilað á undan mér þarna. Til dæmis Bloc
Party og Interpol.“
Ertu þá kominn á sama stall og þessi nöfn?
„Nei ég er nú bara að spila í sama partýi og
þeir hafa spilað í, ekkert meira en það.“
BARÐI ÁTTI AÐ SPILA FYRIR MTV Á MIAMI
Fellibylurinn eyðilagði
partýið
Ég var að heyra...
„Þetta var bara eitthvað flipp hjá okkur félögunum,“ segir
Andri Bergmann sem stal óvænt senunni á undanúrslitaleik
Þrótts og KR í vikunni. Andri tók sig skyndilega til og hljóp
inn á völlinn og yfir hann þveran, fram hjá leikmönnum og
gæslumönnum og þaðan upp í stúku hinum megin. Áhorf-
endur sjónvarpsins og vallargestir fylgdust furðu lostnir með.
Hvað varstu að spá?
Félagarnir mönuðu mig upp í þetta. Sögðu að þetta hefði
aldrei verið gert.
Og náði gæslan þér aldrei?
Nei, ég hljóp bara upp í stúku hinum megin og hafði mig þaðan
á brott. Horfði síðan á sjálfan mig í sjónvarpinu um kvöldið og
skellihló.
Fengið hótanir frá röndóttum boltabullum?
Nei, nei. Það þýðir ekkkert að fara í fýlu út af þessu. Þetta var
bara létt grín.
ANDRI BERGMANN HLJÓP INN Á LEIK KR OG ÞRÓTTAR
Horfði á sjálfan
sig í sjónvarpinu
E
in efnilegasta söngkonan á Íslandi
í dag er sautján áras gömul og
heitir Ólöf Jara Valgeirsdóttir. Hún
er nemandi í Verslunarskóla
Íslands og dóttir sjónvarpskon-
unnar Guðrúnar Gunnarsdóttur og leikstjór-
ans Valgeirs Skagfjörð. Ólöf bar sigur úr
býtum í söngkeppni Verslunarskólans, Væl-
inu, í fyrra en í ár syngur hún með skólahljóm-
sveitinni.
Ertu að semja þitt eigið efni?
„Já ég hef verið að því. En það er meira svona
fyrir sjálfan mig í augnablikinu. Þegar ég hef
verið að koma fram undanfarið er ég meira að
flytja lög eftir aðra. En það er aldrei að vita
hvað maður gerir með þetta efni.”
Eins og fyrr segir er Ólöf dóttir hinnar
kunnu söngkonu Guðrúnu Gunnarsdótt-
ur. Hafið þið eitthvað verið að syngja
saman?
„Nei mjög lítið. Hún er bara gera sitt og
ég mitt. Við erum mjög ólíkar. Hún er
náttúrulega frábær tónlistarmaður en
ég vil frekar gera mína eigin hluti. Þó
að það væri náttúrulega gaman að
koma einhvern tímann fram með
henni.”
Hvað er framundan hjá þér í
tónlistinni?
„Ég er að spila með skólahljómsveit-
inni á busaballinu á Versló. Svo ætlum við
að reyna að vera dugleg að koma fram í
hádegishléum í skólanum og svo nátt-
úrulega á hinum ýmsu uppákomum á
vegum skólans.”
Það verður spennandi að sjá hvað þessi
efnilega söngkona tekur sér fyrir hendur á
næstu misserum. Sirkus tippar á að hún
verði ein af þeim stóru. Sirkus segir:
Fylgstu með þessari!
SÖNGKONAN ÓLÖF JARA ER DÓTTIR SJÓNVARPSKONUNNAR GUÐRÚNAR GUNNARSDÓTTUR
Syngur með skólahljómsveitinni
S
IR
K
U
S
M
Y
N
D
: V
IL
H
E
LM
6
Fylgstu
með
þessari!