Fréttablaðið - 01.09.2006, Síða 42
SIRKUS
5 ráð fyrir ...
6 lífsstíll
16 - 23 ára
LJÓSMYNDA
SAMKEPPNI
UNGA
FÓLKSINS
ANDLIT VÍSINDAMANNSINS
Í tilefni af Vísindavöku 22. sept. nk. efnir Rannís til ljósmyndakeppni meðal ungs fólks á aldrinum
16 - 23 ára. Þema keppninnar er „Andlit vísindamannsins“ og er ætlast til að ljósmyndarar fangi
vísindamanninn og vinnu (umhverfi ) hans.
Reglur og skil:
● Myndin þarf að þola prentun og stækkun í A4 eða stærra.
● Skila skal mynd á geisladiski auk útprentaðrar myndar.
● Myndir mega vera hvoru tveggja .jpg eða .tif, en án layera eða maska.
● Gæði myndanna og frágangur hafa áhrif á mat dómnefndar.
● Síðasti skiladagur er 8. september 2006.
Myndin sendist til:
Ljósmyndasamkeppni, Vísindavaka, Rannís, Laugavegi 13, IS-101 Reykjavík
Merkja þarf diskinn og myndina með dulnefni. Umslag þarf að fylgja merkt dulnefni með upplýsingum um sendanda
(nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer).
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir bestu myndina: Canon EOS 350D hágæða myndavél frá Nýherja.
Frekari upplýsingar veitir Ása Hreggviðsdóttir hjá alþjóðasviði Rannís, asa@rannis.is eða í síma 515 5811
Dómnefnd: Ragnar Th. Sigurðsson, ljósmyndari, Steinunn Thorlacius, líffræðingur og Páll Vilhjálmsson, sviðstjóri.
... HAUSTIÐ
Fáðu þér kósí
prjónapeysu með
stórum rúllukraga
og hjúfraðu þig inn
í hana þegar fer að kólna.
Berðu góða djúpnæringu
í hárið og leyfðu henni að
vera í hárinu á meðan þú
horfir á uppáhaldssjónvarps-
þáttinn þinn.
Það er nóg að setja á sig SMÁ
brúnkukrem, við búum á
Íslandi. Það er ekki fallegt að
vera appelsínugulur í framan í
lopapeysu.
Keyptu leggings í öllum litum
og munstrum, það er alveg
málið núna.
Húðin vill þorna
þegar kólna
tekur, kremkinna-
litur frá MAC til-
valinn því hann gefur fersk-
leika og „dewy“ áferð á þurra húð.
Þorsteinn J.
mælir
með!
Tónlist
„Ég er nokkuð
ónýtur við að
kaupa tónlist,
sérstaklega
gamla tónlist,
sé engan til-
gang í því að hlusta aftur á lög sem
gerðu eitthvað fyrir mig þegar ég
var nokkru yngri. Sú plata sem ég
hlusta mest á, eiginlega við hin
ólíklegustu tækifæri, er sándtrakkið
úr myndinni The Hours. Ég hef allt-
af haldið upp á tónskáldið Philip
Glass, allt frá því að hann gerði
tónlistina við myndina Mishima,
Live in Four Chapters, og The
Hours er sögulega gott efni.“
Bækur
„Mér er minnis-
stæð Neon bókin
sem kom út fyrir
skömmu, Dauð-
inn og Mörgæsin
eftir André Kur-
kov, frábærlega
skrifuð saga um
mann í austur-
blokkinni gömlu, sem tekur að sér
mörgæs, og um leið að skrifa minn-
ingagreinar fyrir hið opinbera. Ég
er nýkominn frá Berlín, á líka minn-
ingar frá Kyiv og Búkarest, og þar
er eitthvað skelfilegt og ógnandi,
en um leið mannlegt og einlægt við
þessa gömlu austurveröld.“
Kvikmyndir
„Ég verð að hæla
myndinni um J.
Cash, sem ég sá
í vetur sem leið,
ótrúlega vel leikin
mynd og gaman
að sjá svona rak-
leitt inn í sál
söngvarans, sem reis svo upp frá
dauðum síðustu æviárin. Ég sé
strax fyrir mér Cash 2, þar sem
Rick Rubin er önnur aðalpersónan
og við fáum að sjá hverskonar
snilldarsamstarf þeir áttu á síðustu
plötum meistarans.“
1
3
4
5
2
„Það geta allir dansað,“ segir Pétur Ari
Markússon, nemi í lífefnafræði. Pétur
kennir salsa í Kramhúsinu ásamt konu
sinni, Ednu Mastache. Edna er frá
Mexíkó og það var þar sem Pétur féll
fyrir henni. Og dansinum líka. Bæði
stunda þau nám við Háskóla Íslands
en gefa sér tíma einu sinni í viku til
að kenna öðrum Íslendingum hvernig
best sé að hreyfa sig við suðræna tóna.
„Salsa er bara eins og sósan, krydd
í tilveruna,“ segir Pétur og rifjar upp
árin sín í Mexíkó. „Þar dansa allir.
Dansinn er hluti af lífi fóksins í land-
inu.“
Námskeiðið sem Pétur og Edna
bjóða upp á í Kramhúsinu er tilvalið
fyrir pör og hjón. Bæði sem létt
líkamsrækt og líka til að krydda sam-
bandið. Pétur segir það mjög gaman að sjá
oft fyrrverandi nemendur á dans-
gólfinu í flottri salsa-sveiflu þegar þau
hjónin fara út á lífið.
Hvað lærir maður á námskeiðinu
ykkar?
„Þú lærir helstu grunnsporin í salsa
og við einbeitum okkur að því að
kenna bæði flott og sjóðheit spor fyrir
pörin. Áherslan er á praktískt notagildi
sporanna þegar komið er út á dans-
gólfið hér sem erlendis. Þetta er líka
spurning um að komast í rétta stuðið,
læra að sleppa sér. Og dansa. Leyfa
þessu að gerast. Salsa er ekki eins og
einn af þessum stífu samkvæmisdön-
sum. Salsa snýst um að njóta tónlist-
arinnar og njóta lífsins.“
LÍFEFNAFRÆÐINEMINN PÉTUR ARI MARKÚSSON FINNUR SÉR TÍMA FRÁ SKÓL-
ANUM OG BÖRNUNUM TIL AÐ DANSA. AÐ MINNSTA KOSTI EINU SINNI Í VIKU.
Fann ástina og
dansinn í Mexíkó
„Salsa er bara
eins og sósan,
krydd í tilveruna“
❤
Pétur Ari Markússon og Edna Mastache. Hjón og salsakennarar og litla stelpan þeirra, Ingunn María Aurora Mastache Pétursdóttir.
S
IR
K
U
S
M
Y
N
D
: H
E
IÐ
A