Fréttablaðið - 01.09.2006, Page 44
SIRKUS01.09.06
viðtalið8
P
önkdrottningin Ellý Halldórsdótt-
ir úr Q4U er komin aftur. Margir
muna eftir henni rífandi kjaft og
öskrandi í hringiðu pönksins. Nú
verður hún ein aðalstjarnan í
flaggskipi Stöðvar 2, X-Factor. Þar mun hún
halda áfram að rífa kjaft og segja það sem
henni finnst. Ellý er töffari sem hefur aldrei
átt pening og fer sínar eigin leiðir. Sirkus hitti
þessa drottningu til þess að skilja af hverju
allir eru að tala um Ellý í Q4U.
Hvar ertu búin að vera öll þessi ár?
Ellý hugsar sig um. Margt hefur greinilega
drifið á daga hennar.
„Ég fór í meðferð, síðan í myndlistaskóla,
flutti upp á Akranes og byggði mér einbýlis-
hús,“ svarar hún hratt og örugglega. „Í stuttu
máli þá fullorðnaðist ég mjög seint. Líklega
ekki fyrr en ég var að verða þrítug. Þá fyrst
fór ég að pæla í þess-
um hlutum sem
venjulegt fólk
byrjar að
díla við
mun fyrr.
Það var
þá sem
ég fór
að
hugsa
út í að
stofna
heimili
og gera
eitthvað úr
lífi mínu. Fram
að því hafði ég
lifað ótrúlegu lífi.
Ég var náttúr-
lega algjört skömbó, alltaf á djamminu og
kynntist ótrúlegu fólki. Lifði meira að segja
nánast á götunni í þrjú ár. En þessu líferni
fylgir allt of mikil óregla. Áfengi og svo auð-
vitað dópið. Síðan kom bara sá tími að ég gat
ekki meira. Ég varð að hætta og þá fór ég í
meðferð.
Maður verður nefnilega aumingi á svona líf-
erni. Ég var bara að drepast. Ég verð yfirleitt
að klára allan kvótann í því sem ég er að
gera. Og það var líka þannig þegar ég var í
þessu. En þegar maður er á kafi í rugli er erf-
itt að vita hvenær kvótinn er búinn.“
Og hvað svo?
„Það kom einfaldlega að því að mig langaði
að prófa að vera til. Gera eitthvað við líf mitt.
Það var ekki auðvelt. Það tók mig langan
tíma að snúa við blaðinu. Ég hef eytt um
tvemur árum í allt í meðferð.
Að því loknu fór ég í nám í Lista-
háskólanum. Var þar í sex
ár í fullu námi með þrjú
lítil börn. Heimilis-
reksturinn með
náminu var oft
erfiður en
börnin mín
eru ekki
alveg eins
stillt og þau
áttu að vera.
Eftir það var
ég á fullu að mála, sem mér fannst frábært.
Fyrir fjórum árum rak ég síðan augun í
atvinnuauglýsingu og allt í einu var ég orðin
forstöðumaður hjá Akranesbæ. Hef verið hér
síðan og vinn með ungu fólki að alls kyns
sköpun. Nokkur sumur í röð hef ég kennt
tónlist og haldið utan um hæfileikakeppni
barna á öllum aldri í Sumarbúðunum Ævin-
týralandi.“
Ætlarðu ekkert að flytja aftur
til borgarinnar?
Nei. Ég elska að vera hérna. Þetta
er lítið samfélag þar sem
allir þekkja alla.
Auðvitað voru
sögur sem
gengu um
mig hérna
til að byrja
með. Ein
var á þá leið
að ég gengi
með barn bæjarstjórans. Það var eiginlega
bara fyndið. Svona sögur fá lítið á mig. Þær
hafa lengi elt mig og sumar verri en þessi. En
mér er líka eiginlega drullu sama hvað fólk
heldur um mig. Ég er bara ég. Sumar sögur
eru vissulega sannar en þeim sögum er best
að gleyma ...
Ástfangin af Akranesi?
„Já. Um leið og ég réð mig hingað til starfa
festi ég kaup á lítilli lóð. Án þess að eiga
nokkurn pening réðst ég síðan í framkvæmd-
ir og byggði mér hús. Alein. Auðvitað með
hjálp frá ýmsum góðum vinum. En mest-
megnis alein. Búinn að smíða stóran sólpall,
þekja og gróðursetja tré og núna er ég að
helluleggja fyrir framan húsið, en þá er þetta
að verða búið.“
Hvernig ferðu að þessu?
„Ég veit það ekki. Ég er búin að vera ein svo
lengi. Kann eiginlega ekki annað. Ég hugsa
til dæmis að það þyrfti mikið að gerast til
þess að ég yrði ástfangin. Lang-
ar eiginlega ekkert í
mann aftur. Nema
kannski ein-
hvern til að
hjálpa
mér með
reikn-
ingana
...“
Og núna
ertu á leið-
inni í sjónvarp.
Hvernig datt þeim í
hug að fá þig?
„Ég held að Páll Óskar, vinur minn, hafi
bent á mig. Það var bara hringt í mig
einn daginn. Ég var í frekar fúlu skapi
og hélt fyrst að þetta væri einhver
sölumaður í símanum. Ég var beðin
um að koma í prufu. Mér brá þegar
þangað var komið því að ég misskildi
eitthvað og hélt að þeir væru að bjóða
mér starfið en þetta var prufa og fullt
af öðru fólki. En það skiptir ekki máli
núna, ég fékk starfið!“
Eru menn hræddir um að þú
gerir einhvern skandal í
sjónvarpinu?
„Jú, jú, örugglega. En ég er
engin puntudúkka og verð það
aldrei. Ég ætla bara að segja álit
mitt, óháð því hvort ég er í sjón-
varpinu eða ekki.“
Hvort sem Ellý á eftir að
skandalísera landann viku-
lega úr dómarasætinu
sínu í X-faktor eða ekki
mun koma í ljós. Eitt
er víst að Ellý er
alvöru kona, alvöru
íslendingur sem á
eftir að segja það
sem allir hugsa
en enginn
þorir að
segja. Er
hægt að
biðja um
meira?
FYRIR 20 ÁRUM VAR ELLÝ Í Q4U HEITASTA GELLAN Í BÆNUM. NÚ SNÝR HÚN AFTUR.
ÞREM MEÐFERÐUM OG ÞREM BÖRNUM SÍÐAR. OG HÚN HEFUR ALDREI LITIÐ BETUR ÚT.
Ég er engin puntudúkka
AUÐVITAÐ VORU SÖGUR
SEM GENGU UM MIG
HÉRNA TIL AÐ BYRJA
MEÐ. EIN VAR Á ÞÁ LEIÐ
AÐ ÉG GENGI MEÐ BARN
BÆJARSTJÓRANS.
S
IR
K
U
S
M
Y
N
D
: A
R
I M
A
G
G