Fréttablaðið - 01.09.2006, Side 50

Fréttablaðið - 01.09.2006, Side 50
14 SIRKUS01.09.06 „Siggi Lauf er Húsvíkingur en uppal- inn í Hafnarfirði. Hann hefur verið að grúska í músík frá fjórtán ára aldri og hefur verið að senda frá sér tónlist síðustu mánuði,“ segir Sigurður Lauf- dal tónlistarmaður sem kemur fram á tónleikum á Broadway í kvöld. Lagið í frelsarans nafni hefur verið vinsælt á rokk.is en textinn hefur vakið enn meiri athygli. „Hann varð nú eiginlega til í gegnum sms. Ég og félagi minn höfðum verið að leika okkur að senda allskonar rugl fram og til baka. Síðan voru allt í einu komin tvö vers þannig að ég kláraði þetta bara og setti í lag,“ segir Siggi og tekur fram að þessi aðferð sé kannski lýsandi fyrir hina nýju tækni- væddu kynslóð. Faðir Sigga er Guðlaugur Laufdal sem margir kannast við sem kallinn með gítarinn á Omega. „Ég hef nú ekkert komist hjá því að hlusta á kall- inn syngja og því er ekki langt fyrir mig að sækja tónlistina. Því verður heldur ekki neitað að kallinn er nokk- uð lunkinn en það fer hver sína leið.“ En hvað finnst pabbanum um textann? „Ég veit ekki hvort hann er búinn að heyra lagið og hef ekkert rætt þetta við hann. Hann hringdi samt í mig um dag- inn og óskaði mér til hamingju með nýja lagið. En ef þú pælir í því þá er þetta nú bara skrifað beint eftir bók- inni,“ segir Siggi og fullvissar blaða- mann um að hann sé nú ekki mikið trúaður. „Maður hefur nú samt lesið mikið af þessu en ég myndi ekki segjast vera trúaður.“ Siggi spilaði á stóra sviðinu á Arnar- hóli á Menningarnótt fyrir 20 þúsund manns og vakti mikla athygli. Um 30 hljómsveitir koma fram á Broadway bæði í kvöld og annað kvöld. Sirkus hvetur fólk til þess að tékka á Sigga Lauf því hann er svo sannarlega með hæfileika strákurinn og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. 1 MÁNI MÆLIR MEÐ 2 3 Hvernig fannst þér myndin? „Thank you for Smoking“ er ágætis afþreyfing en er langt frá því að vera meistaraverk. Er nefnilega á köflum virkilega góð en dettur svo niður í algjör leiðindi inni á milli. Kemst ekki á lista yfir bestu myndir sem ég hef séð.“ Björn Axel Jónsson, 24 ára, starfsmaður kjötdeildar Hagkaupa. Ég get ekki sagt annað en að ég hafi haft gaman af þessari mynd. Sú lífs- speki sem aðalpersón- an, Nick Naylor, lifir eftir þykir mér gríðar- lega áhugasöm þar sem hann réttlætir hvaða vitleysu sem er fyrir sjálfum sér. Það er helst þessi speki hans sem stendur upp úr en hún er sett fram á afar dramatískan hátt ef svo má að orði komast. Í fáum orðum myndi ég lýsa þessari frábæru afþreyingu sem skemmtilegri grínmynd með alvarlegum undirtóni og heimildar- myndaívafi. Kristján Örvar Sveinsson, 20 ára, húsasmiður. Thank You for Smoking er sprenghlægileg mynd sem allir hefðu gaman af að sjá. Til þess að búa til mynd um reyk- ingar og reykingarmenn og sýna fram á að það er töff, þarf nokkuð góða og áhrifagjarna auglýsingu og mann sem er góður í að tala til fólksins. Aðalpersóna myndarinnar er þannig og karakterarnir í henni eru einstaklega skemmtilegir. Myndin er lífleg en láttu hana ekki hafa áhrif á þig ef þú ert reyklaus. Hildur Edda Hilmarsdóttir, 19 ára, starfsmaður sláturhúss. THANK YOU FOR SMOKING MINNSIRKUS -MEÐLIMIR GAGNRÝNA Þú getur sagt álit þitt á kvikmyndum í Sirkus. Það eina sem þú þarft að gera er að vera meðlimur í samfélaginu okkar á www.minnsirkus.is/ sirkus og fylgjast með kvikmynd vikunnar. Vertu bíógagnrýnandi og segðu það sem þér finnst. 1 FM957 2 3 Minnsirkus.is blogg vikunnar Heima um helgina Bærinn um helgina Fólk er fífl „Vorum að keyra í partý og það voru einhverjir félagar í bíl við hliðina á okkur. Martin skrúfaði niður gluggann og þeir fleygðu bjór inn um bíl- inn og helvítis bjórinn lenti í hausnum á mér. Ég fékk bjór í augun á mér og út um mig alla... Mother fuckers!!! Ég er sem sagt þvílíkt aum þar sem dósin lenti á mér... Svona er fólk mikið fífl...“ mya.minnsirkus.is Bara „Þetta orð, bara, pirrar mig meira en alveg flest önnur orð í heim- inum. Hverjum datt í hug að troða orðinu.. bara.... í íslenskt mál? Bara er í rauninni ekki alvöru orð. Þetta er ekki viðurkennt orð. Þetta er ekki í íslensku orðabókinni, þar sem að ekki er hægt að skilgreina orðið b a r a. Afhverju er það þá notað? Er þetta sletta frá swahili? Er þetta orð frá fornlatínu eða hebr- eska og er táknrænt fyrir leti?..“ athenaragna.minnsirkus.is Síðustu dagar „Föst: Kallinn fór í Lise- berg á föstudaginn því það var frídagur hjá manni:) og váááá hvað litli strákurinn kom upp hjá manni, maður var eins og 10 ára strákur i tækjunum. Langt siðan maður fékk svona i magann. Laug: Það var bara æfing og svo bara kíkt i smá snóker og tekið spólu enginn til að chilla með, frekar leiðinlegt:( Sun: Það var leikur i dag á móti Halmstad og þjálfarinn vildi spila varnarsinnaðann leik og setti mig á bekkinn. En það gekk ekki vel því það var 2- 0 eftir 15 mín. Svo kom maður inná siðustu 30 min og við gerðum 2-2 jafntefli.“ skulason19.minnsirkus.is um helgina THANK YOU FOR SMOKING Aðalhlutverk: Aaron Eckhart, Maria Bello, Adam Brody /Leikstjóri: Jason Reitman / Myndin í einni setningu: America is living in spin / 8,1/ á imdb.com HEIÐAR AUSTMANN MÆLIR MEÐ BUSTA RHYMES I Love My Chick „Þetta lag með Busta finnst mér eitt það svalasta sem hefur komið frá þessum frábæra rappara í mjög lang- an tíma. Þarna blandar hann saman frábærum texta við flott beat og útkoman er hrikalega sexý lag.“ BLUE OCTOBER Hate Me „Ekki nýjasta lagið sem er í spilun á FM en hér er á ferðinni með flottari crossover lögum sem hafa komið á árinu 2006. Virkilega smekklegt lag sem byrjar rólega en fer svo upp í skemmtilegan gír. Minnir dáldið á „Wonderful“ með Everclear.“ EVANESCENCE Call Me When You`re Sober „Ég er fullviss um að hér er á ferðinni eitt stykki hittari. Amy Lee er frábær söngkona en þetta er alveg týpískt Evanescence lag, melodía sem við þekkj- um en hún svínvirkar.“ 1DANSPARTÍ Á NASA Monika Kruse verður á Nasa í kvöld ásamt dj Frí- manni og dj Eyva. 1.500 við hurð, þússari í verslun All Saints í Kringlunni. 2 BLÓÐHUNDARNIR Í HÖLL-INNI Bloodhound Gang verða með tónleika í Laugardalshöll á þriðjudagskvöld. Tékkið á miða í verslun skor.is. 3 DANSA MEIRA Partyzone kvöld á Barnum laugardagskvöld. Fram koma Ewan Pearson, Alfons X og President Bongo. O kr. 4 AFGANAR Í AUSTURBÆ Frymsýn-ing á nýju verki, Afganar í kvöld. Elma Lísa og Stefán Hallur fara á kostum. Klukkan 21.00. Kauptu miða í síma 551 4700 5 ÍSLAND - ÍTALÍA U-21 árs karlalandsliðið leikur við gjaldþrotagreiðslurnar að sunnan. Leikurinn er í kvöld og hefst klukkan 19.00 á Laugardalsvelli. Frítt inn. TÓNLISTARMAÐURINN SIGGI LAUF ER SONUR GULLA Á OMEGA OG SPILAR Á BROADWAY KLUKKAN 21.00 Í KVÖLD Ekki eins trúaður og pabbi Í Frelsarans nafni Siggi Lauf Þú veist það vel að jesú var bara hippi á geðtrufluðu kókaíntrippi en fólkið taldi sig heyra þann fróða og sá því í fari hans - aðeins það góða Í eyðimörkinni var soldið súr enda fjörtíu daga kókaínkúr þar saug hann og saug án drykkjar og matar þar til honum birtist - sá er hann hatar Sú dæmisaga sem oft er sögð og þekkt ekki fyrir öll bellibrögð þeir sögðu að hann gengi á vatni en vissu það ekki á þyrnum sama daga - gaf jesú þeim sveppi Jú ég hef svosem tekið sveiflurnar nokkrar Þrýstnir barmar, ljóóósir lokkar Sogið og sogið eins og frelsarinn sjálfur Í kókaínmóki orðinn einn og hálfur Með allt á hreinu og aðeins eitt að stafni Rokk og ról í frelsarans nafni Rokk og ról í frelsarans nafni Rokk og ról í frelsarans nafni Rokk og ról í frelsarans nafni 1 LÆRA RÉTTRITUN Út er komin Stafsetn-ingaroðabókin en hún er algjör snilld. Um er að ræða 736 bls. en þetta er hin opin- bera réttritunarorðabók um íslensku. Fæst í bókabúð. 2 SO YOU THINK YOU CAN DANCE Byrjar aftur á Sirkus á mánudaginn klukkan 21.30. Önnur sería af þessum snilldarþáttum. 3 UMHVERFIS JÖRÐINA Á 80 DÖGUM Á Rúv laugardag klukkan 20.15. Ævintýramynd frá 2004 byggð á sögu eftir Jules Verne um garpinn Fíleas Fogg og viðburðaríka heimsreisu hans. 4 THE INSIDE MAN Þeir sem létu þetta meistarastykki Spike Lee fram hjá sér fara geta andað léttar. Ræman er nýkomin út á DVD og maður fer sáttur að sofa. 5 WWW.YOUTUBE.COM Ef þú ert ekki búinn að uppgötva þessa snilld áttu margt ólært. Þarna er hægt að finna nánast allt sem hægt er að hugsa sér. Skoðaðu bara, alla helgina. PÉTUR BEN White Tiger „Tekið af bestu frumraun Íslandssögunnar, Wine for My Weakness. Íslenskt master pís.“ FIGURINES The Wonder „Sönnun þess að það eru ekki allir Danir lúðar. Lík- lega ein skemmtilegasta uppgötvun ársins. Loksins eitthhvað til að fylla í gatið sem Pavement skildi eftir.“ PRIMAL SCREAM Dolls „Virkar eins og Paxal á alkó- hólista með asma. Gott að fá primalinn aftur í gang.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.