Fréttablaðið - 01.09.2006, Page 52
ORÐIÐ
Á GÖTUNNI
ordid.blog.is
MILLJARÐAMÆRINGAR KÝTA?
Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, var í viðtali
við hið virta fjármálablað
Financial Times síðast-
liðinn föstudag. Þar er
hann m.a. spurður um
hvort hann hyggi á fjár-
festingar utan Norður-
Evrópu. Nei, hann seg-
ist ekki geta hugsað sér það. Vill að
sögn ekki eyða tíma sínum í stöðug-
ar flugferðir fram og aftur. Einhverjir
vildu túlka þetta sem skot á fjárfest-
inn og þotueigandann Björgólf
Thor Björgólfsson,
en hann hefur sem
kunnugt er fjárfest
mikið í Austur-Evrópu
og er stöðugt á flugi.
SNORRI EÐA SKÚLI?
Spennan í stjórnkerfinu um hver
verði skipaður ríkisskattstjóri, þegar
Indriði Þorláksson lætur af því
starfi nú í september, magnast. Tveir
eru nefndir til sögunnar sem mögu-
legir arftakar. Annars vegar Skúli
Eggert Þórðarson skattrannsókn-
arstjóri og hins vegar Snorri Olsen
tollstjóri í Reykjavík. Veitingavaldið
er í höndum Árna Mathiesen fjár-
málaráðherra. Það er talið geta
komið Snorra til góða að hann er
formaður íþróttafélagsins Stjörn-
unnar en Garðabær er mikið vígi
sjálfstæðismanna sem mun vega
þungt í komandi prófkjöri í Kragan-
um. Á móti kemur að mikill órói hefur
verið hjá tollstjórembættinu
í tíð Snorra. Skúli Egg-
ert mun hins vegar
vera óskakandídat
starfsmanna RSK,
sem láta vel af sam-
starfi við
hann.
160 MILLUR FYRIR FRÓÐA?
Sem kunnugt er keypti Sigurður G.
Guðjónsson, fyrr-
verandi forstjóri
Norðurljósa, nýlega
öll tímarit Fróða og
gengur salan í
gegn í dag. Með í
kaupendahópnum
eru Elín G. Ragn-
arsdóttir núverandi framkvæmda-
stjóri Fróða, Mart-
einn Jónasson
sölustjóri og Mika-
el Torfason fyrr-
verandi ritstjóri DV
sem verður áfram
aðalritstjóri tímarit-
anna. Kaupverðið
mun samkvæmt heimildum Orðsins
á götunni vera tæplega 160 milljónir
króna og ljóst að talsvert þarf að efla
reksturinn til að standa undir svo
háu kaupverði. Það sem vekur hins
vegar athygli er að Sigurður G. mun
ekki vera búinn að fjármagna kaupin
ennþá. Þetta kom meðal annars
fram í viðtali við Sigurð á NFS. Venj-
an er í fjármögnun svona umfangs-
mikilla fyrirtækjakaupa að 30-40
prósent séu greidd með eigið fé og
afgangurinn fjármagnaður með
lánum. Heimildir herma að hvorugt
sé í höfn eins og staðan er núna.
Glitnir léttir námsmönnum lífi ð og býður þeim bestu kjörin.
Til dæmis bjóðum við aðeins 14,9% vexti af yfi rdráttarlánum v. LÍN.* Kynntu
þér málið í útibúum Glitnis, þjónustuveri í síma 440 4000 og á glitnir.is.
GLITNIR LAIS KB BANKI SPRON
YFIRDRÁTTARLÁN LÍN 14,9 14,95 15,35 14,95
YFIRDRÁTTARLÁN ALMENNT 18,3 18,7 18,35 21,2
INNLÁN 7,8 7,8 7,5 6,95
BETRI VEXTIR
Á YFIRDRÆTTI
FYRIR NÁMSMENN
* MIÐAÐ VIÐ VAXTATÖFLU 21.08.06