Fréttablaðið - 01.09.2006, Side 60
1. september 2006 FÖSTUDAGUR16
... Að 37.257 hlauparar tóku þátt í
New York maraþoninu árið 2004 en
það er fjölmennasta maraþonhlaup
sögunar.
... Að engum hefur tekist að stökkva
hærra á stöng en Sergei Bubka frá
Úkraínu. Hann stökk hæst 6,15 metra
í Donetsk í Úkraínu þann 21. febrúar
árið 1993.
... Að Michael Jordan hefði náð
hæsta meðalskori allra leikmanna
NBA en hann skoraði að meðaltali
30,1 stig í þeim 1072 leikjum sem
hann lék í deildinni.
... Að stærsti geimsjónaukinn er
Hubble sjónauki NASA. Sjónaukinn
er 11 tonn að þyngd og 13,1 metri á
lengd. Spegill hans er 240 sentimetr-
ar í þvermál.
... Að örlátasti blóðgjafi heims er
Maurice Crewswick frá Suður-Afríku
en þann 9. júlí 2003 gaf hann sína
336. blóðeiningu sem jafngildir
188,9 lítrum af blóði.
... Að á árunum 1975 til 1978 ýtti
Bob Hanley hjólbörum sínum á
undan sér er hann gekk þvert yfir
heimaland sitt, Ástralíu. Mun þetta
vera í fyrsta og eina skipti sem slíkt
hefur verið gert.
... Að stærsti þolfimitími sögunnar fór
fram á Konunglega Pramane íþrótta-
leikvanginum, Sanam Luag í Taílandi
árið 2002, en þá gerðu alls 46.824
íþróttakempur þolfimiæfingar.
... Að Ástralinn David Huxley dró 187
tonna Boeing 747 þotu 91 metra en
það er þyngsta flugvél sem nokkur
maður hefur dregið.
... Að stærsti farsími heims er 2,05 m
x 0,83 m x 0,45 m. Líkt og á öðrum
símum hægt að senda sms og mms
skilaboð úr honum.
... Að Tadao Watanbe og Minoru Mita
frá Japan eru elstu núlifandi hjón í
heimi en samanlagður aldur þeirra
er 204 ár.
... Að minnst spillta ríki heims að
mati Transparency International sam-
takanna er Finnland.
... Að Maurizio Giuliano frá Ítalíu
varð fyrr á þessu ári yngsti maður
heims til þess að heimsækja öll 193
fullvalda ríki heims. Þegar hann lauk
ferðalaginu var hann 28 ára og 361
dags gamall.
... Að árið 1999 voru sjö af tíu
bókum á toppi skoska metsölulist-
ans eftir spennusagnahöfundinn Ian
Rankin.
... Að heimsmet töframanna í því að
eiga heimsmet á David Copperfield
en hann á ellefu skráð met í Heims-
metabók Guinnes, fleiri en nokkur
annar.
... Að söluhæsti tölvuleikur allra tíma
er leikurinn Grand Theft Auto: Vice
City.
...Að stærsta opinbera bygging heims
er Pentagon-byggingin í Washington.
Gólfflötur byggingarinnar er 604.000
fermetrar og eru gangar hennar
samtals 28 kílómetrar að lengd.
VISSIR ÞÚ ...
„Ég hæfi helgina með hressilegu
djammi á írskum pöbb í slagtogi við
hjartaknúsarann Colin Farrell og félaga
hans,“ segir Ásbjörg Una Björnsdóttir,
hinseginfræðingur og styrktarfulltrúi,
um upphaf sinnar draumahelgi og bætir
við að Farrell yrði fyrir valinu þar sem
hann líti út fyrir að kunna að skemmta
sér.
Laugardegi verði Ásbjörg með
vinkonu sinni Brynhildi í að horfa á og
greina kvikmyndirnar Battlefield Earth,
Queen of the Damned og Reign of Fire,
sem eru allar í sérstöku eftirlæti hjá
hinni síðarnefndu.
„Um kvöldið flygi ég til Manchester þar sem ég færi út
að borða með vinum mínum á indverskan matsölustað að
nafni Shandaar, sem staðsettur er á
Karrí-mílunni svokölluðu. Fyrir utan að
þar sé einstaklega gómsætur matur á
boðstólum, færa þjónarnir okkur vinun-
um iðulega einhvern ókeypis aukarétt.“
„Ég spilaði síðan Mortal Kombat
badminton við vinkonu mína Kathryn í
Colorado daginn eftir,“ heldur Ásbjörg
áfram. „En í þessari gerð leiksins
bregður maður sér í hlutverk einhverrar
persónu úr Mortal Kombat tölvuleikn-
um. Eftir góðan snúning á vellinum færi
ég í göngutúr um Central Park með
hundinum mínum, Alfreð Loðmundi,
sem gæti skilið og talað mannamál.
Þannig gætum við rætt ýmsan misskilning, eins og nag á
gleraugum og saurlát í mótmælaskyni.“ -rve
DRAUMAHELGIN
Út á lífið með Colin Farrell Nafnið á Dyrhóla-ey gæti bent til að
um eyju væri að
ræða, svo er ekki,
eyin er landföst en
gengur í sjó fram.
Talið er að hún sé
mynduð í neðan-
sjávargosi og hafi
orðið til fyrir u.þ.b.
80 þúsund árum.
Dyrhólaey er
syðsti oddi lands-
ins og mikið fugla-
land. Rúmlega
120 metra hár
móbergsstapi sem
rís þverhníptur úr
hafi. Mjór bergrani
tengir eyjuna við land og í honum er
gatið eða dyrnar sem stapinn ber nafn
sitt af. Dyrhólaey var friðlýst árið 1978.
STAÐURINN: DYRHÓLAEY
ÁSBJÖRG VILL DÝPKA SKILNING-
INN MILLI SÍN OG HUNDSINS
ALFREÐS.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001
Með fullkominni tölvustýringu og hátækni nuddbúnaði framkallar M-CLASS nuddstóllinn
áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með því að styðja á hnapp á meðfylgjandi fjarstýringu velur
þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni. Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú
vilt og þar sem þú vilt. M-CLASS nuddstóllinn er hannaður með þig og þínar þarfir í huga.
Við bjóðum þér að koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu 63 til að sannfærast.
Heilsunudd þegar þér hentar
Kynnum 2007 módelið á sérstöku tilboðsverði!