Fréttablaðið - 01.09.2006, Side 64
1. september 2006 FÖSTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
BARRY GIBB FÆDDIST Á ÞESSUM
DEGI ÁRIÐ 1946.
„Það var erfiðara að vera
bræður en að vera saman í
hljómsveit.“
Bræðurnir í Bee Gees trylltu lýðinn á
gullöld diskósins.
MERKISATBURÐIR
1831 Charles Darwin leggur úr
höfn á HMS Beagle og
heldur til Galapagoseyja.
1870 Napóleón þriðji er tekinn til
fanga.
1916 Rússakeisari leggur skatt á
skegg karla í landinu.
1939 Seinni heimsstyrjöldin hefst
þegar Þjóðverjar ráðast inn í
Pólland.
1955 Bílasmiðir reka smiðshögg-
ið á fyrstu Porsche-bifreið-
ina.
1985 Sovétmenn skjóta niður
kóreska farþegaþotu.
1985 Flak farþegaskipsins Titanic
finnst á hafsbotni.
2004 Tsétsneskir uppreisnar-
menn ráðast inn í barna-
skóla í Beslan og taka börn
og kennara í gíslingu.
Uppreisnarmenn undir forystu
hins 27 ára Muammar al-Gaddafi
steyptu Idris Líbíukonungi af stóli
á þessum degi árið 1969. Gaddafi
hefur síðan þá verið við völd.
Gaddafi er bedúíni og fæddist
árið 1942. Hann útskrifaðist frá
Háskóla Líbíu árið 1963 og frá
Herskóla Líbíu tveimur árum síðar.
Hann var ákafur þjóðernissinni og
þótti konungurinn of íhaldssamur
og skeyta lítt um að efla pólitíska
samstöðu arabaríkjanna. Hann hóf
því, ásamt öðrum, að skipuleggja
valdarán og lét til skarar skríða
árið 1969. Uppreisnarmennirnir
biðu þar til konungur var farinn til Tyrklands en
réðust þá til atlögu og steyptu ríkisstjórninni af stóli
án blóðsúthellinga. Konungsdæmið var lagt niður
og Idris bjó í útlegð til æviloka.
Hugmyndafræði Gaddafis var
blanda af íslamskri bókstafstrú,
sósíalisma og arabískri þjóðernis-
hyggju. Hann var stækur andstæð-
ingur Vesturlanda og kom sér fljót-
lega í ónáð þeirra, til dæmis með
því að þjóðnýta olíulindir í eigu
erlendra fyrirtækja. Hann kom
þó á ýmsum umbótum til þess
að bæta lífskjör fólks og rýmkaði
borgaraleg réttindi kvenna.
Gaddafi einangraðist hins vegar æ
meira á alþjóðavettvangi, jafnvel
í arabaheiminum, meðal annars
vegna stuðnings síns við fjölda
hryðjuverkasamtaka. Síðan á 9.
áratugnum hefur Gaddafi þó dregið úr einangrun
landsins og slakað á stjórnartaumunum. Í kjölfarið
hefur viðskiptabanni SÞ á Líbíu verið aflétt en
Bandaríkjamenn banna enn öll viðskipti við landið.
ÞETTA GERÐIST: 1. SEPTEMBER 1969
Gaddafi brýst til valda
11.00 Hjalti Ólafur Jónsson,
Skúlagötu 20, verður jarð-
sunginn frá Háteigskirkju.
11.00 Unnur Guðjónsdóttir,
Skúlagötu 78, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
13.00 Dóróthea Elísa Jónasdótt-
ir, Hamrabyggð 2, Hafnar-
firði, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju.
13.00 Pétur Maack Þorsteins-
son, Kópavogsbraut 1a,
verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju.
13.00 Anna Guðmundsdóttir,
Sóleyjarima 3, verður jarð-
sungin frá Grafarvogskirkju.
14.00 Freyja Bjarnadóttir, Egils-
götu 17, Borgarnesi, verður
jarðsungin frá Borgarnes-
kirkju.
Elskaður eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, tengdasonur, bróðir og
mágur,
Árni Stefán Árnason
matreiðslumeistari, Þrastarási 12,
Hafnarfirði,
lést á Líknardeild Landspítalans miðvikudaginn
30. ágúst.
Kristín Þóra Kristjánsdóttir
Arna Þórdís Árnadóttir Sigurþór Hjalti Gústafsson
Svava Dagný Árnadóttir
Óðinn Birgir Árnason
Svava Sverrisdóttir Árni Stefánsson
Þórdís A. Sigurjónsdóttir Kristján B. Einarsson
Hjördís Árnadóttir
Sigurbjörg Árnadóttir
Gísli Sverrir Árnason Guðrún Baldursdóttir
Guðlaug Árnadóttir Hólmgrímur Elís Bragason
Gauti Árnason Ragnheiður Rafnsdóttir
Hrefna Kristjánsdóttir Magnús Hafsteinsson
Einar B. Kristjánsson Árný Eiríksdóttir.
Jón Þorleifsson
frá Breiðholti, síðast til heimilis í
Lönguhlíð 3, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 28. ágúst.
Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu
mánudaginn 4. september klukkan 14.30.
Aðstandendur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Sigurður Sigurðsson
Hátúni 12, Reykjavík, fyrrverandi bóndi og
sjómaður frá Hamraendum, Stafholtstungum,
Mýrarsýslu,
lést á heimili sínu 17. ágúst sl. Útförin fer fram frá
Borgarneskirkju laugardaginn 2. september kl. 11.00.
Jarðsett verður í Stafholti.
Sigrún Sigurðardóttir
Jóhann Sigurðarson Guðrún Sesselja Arnardóttir
Ólöf Sigurðardóttir Stígur Snæsson
Þorsteinn Gauti Sigurðsson Halldóra Björk Friðjónsdóttir
Helga Halldórsdóttir Gunnar Jónsson
afabörn, langafabarn og aðrir aðstandendur.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Óttars Ketilssonar
Reykhúsum 4d, Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Gjörgæslu-
deildar og Lyflækningadeildar Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Sigrún Halldórsdóttir
Halldór Óttarsson Lovísa Guðjónsdóttir
Þórir Óttarsson Yocasta Óttarsson Rosa
Rósberg Halldór Óttarsson Þórdís Rósa Sigurðardóttir
Hrafnborg Óttarsdóttir Hansen Mogens Ingemann Hansen
Brynjar Karl Óttarsson Hildur Hauksdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sóley Kristinsdóttir
Dalbraut 27,
andaðist á heimili dóttursonar síns í Svíþjóð 28. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
María Anna Þorsteinsdóttir Rúnar E. Indriðason
Kristinn E. Pétursson Björk Þórarinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Ásdísar Ólafsdóttur
Einigrund 4, Akranesi.
Marsibil Sigurðardóttir
Ólafía Sigurðardóttir Elmar Þórðarson
Þórdís Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Leifur Hreinn Þórarinsson
bóndi, Keldudal í Skagafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn
27. ágúst. Útför hans verður frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 2. september kl. 13.00. Jarðsett verður í
Rípurkirkjugarði.
Kristín Bára Ólafsdóttir
Ólöf Elfa Leifsdóttir Alfreð Schiöth
Stefanía Hjördís Leifsdóttir Jóhannes Helgi Ríkharðsson
Þórarinn Leifsson Guðrún Lárusdóttir
Kristbjörg Leifsdóttir Magni Þór Samsonarson
Guðleif Birna Leifsdóttir Eysteinn Leifsson
Álfhildur Leifsdóttir Sölvi Sigurðarson
og barnabörn.
JARÐARFARIR
Tónlistarskóli Árnesinga á
Selfossi tók til starfa í nýju
og stærra húsnæði í gær.
Róbert Darling, skólastjóri
tónlistarskólans, er hæst-
ánægður með nýju aðstöð-
una.
„Við vorum í 260 fermetra
húsnæði og með útibú annars
staðar í um 100 fermetrum en
nýja húsnæðið er 800 fer-
metrar og með sal sem tekur
150 manns í sæti,“ segir
Róbert.
Á miðvikudag var skóla-
setning og var þá farin skrúð-
ganga frá gamla húsnæðinu
til þess nýja og telur Róbert
að hátt í 200 manns hafi tekið
þátt í göngunni.
„Setningin tókst rosalega
vel en það var nýi bæjarstjór-
inn okkar, Stefanía Katrín
Karlsdóttir, sem opnaði nýja
skólann formlega með aðstoð
frá yngsta nemanda skólans,
Mána Jósepssyni, sem er
fimm ára,“ segir Róbert og
bætir því við að allir kennar-
arnir séu mjög ánægðir og
hlakki til að byrja að kenna.
„Það hefur alla jafna verið
gott tónlistarlíf í Árborg og
ég vona að nýja húsið eigi
eftir að styrkja það enn frek-
ar, ekki síst með tilkomu nýja
salarins,“ segir hinn, Róbert
Darling, hæstánægður með
nýjan og glæsilegan skóla.
- sig
TÓNLISTARSKÓLI ÁRNESINGA: FLYTUR Í NÝTT HÚNÆÐI
Styrkir tónlistarlíf í Árborg
KLIPPT Á BORÐANN Það var yngsti nemandi skólans, Máni Jósepsson, fimm ára, sem aðstoðaði bæjarstjórann,
Stefaníu Katrínu Karlsdóttur við að klippa á borðann í nýja tónlistarskólanum.