Fréttablaðið - 01.09.2006, Side 66
1. september 2006 FÖSTUDAGUR
September er byrjað-
ur og haustið því
formlega gengið í
garð en það hefur
alltaf verið uppá-
haldsárstíðin mín.
Á meðan áramótin
marka upphaf hjá mörgum öðrum
gerir haustið það hjá mér og þó að
ég strengi aldrei nein áramótaheit
set ég mér alltaf fullt af háleitum
markmiðum á hverju hausti.
Markmiðin sem ég set mér snúa
þó yfirleitt ekki að hreyfingu og lík-
amsrækt eins og algengt er. Ég hef
meiri áhuga á notalegri inniveru á
veturna og sanka því að mér haug-
um af bókum, litum og teikniblokk-
um, garni og ýmsu öðru sem ég ætla
að dunda mér við á fallegum vetrar-
kvöldum. Ég sé sjálfa mig fyrir mér
í hillingum koma eldhressa heim úr
vinnunni á hverjum degi og taka til
við að framleiða framúrstefnulegar
prjónaflíkur á alla fjölskylduna,
skreyta heimilið litríkum listaverk-
um og sporðrenna hverju bók-
menntameistaraverkinu á fætur
öðru.
Sjaldnast tekst mér samt að
afreka allt sem ég ætla mér þegar á
reynir þó að yfirleitt geri ég eitt-
hvað af því. Ég er nefnilega eins og
margir aðrir Íslendingar, ekkert
svo orkumikil í skammdeginu þó að
ég haldi það alltaf í upphafi vetrar.
Þær áætlanir sem ég geri þegar
ennþá er sæmilega bjart úti fram
eftir degi standast ekki alltaf þegar
sá tími kemur að það er ennþá
kolniðamyrkur þegar ég fer í vinn-
una á morgnana og aftur orðið
dimmt þegar ég kem heim. Þess
vegna læt ég mér oftast nægja að
dunda mér við eins og eina prjóna-
flík á haustin á meðan ég hangi
fyrir framan sjónvarpið og heims-
bókmenntirnar eru oft látnar víkja
fyrir upplífgandi ástarsögum þegar
líða fer á veturinn.
Skammdegið er hins vegar ekki
endalaust og eins og aðrir Íslend-
ingar finn ég hvernig ég fyllist orku
aftur þegar fer að birta meira á
vorin. En ólíkt þeim sem fara þá að
tala um hvað allt verði nú gott þegar
sumarið kemur fer ég strax að
hlakka til næsta hausts og alls sem
ég ætla að gera þegar kemur að
því.
STUÐ MILLI STRÍÐA Haustrómantík
EMILÍA ÖRLYGSDÓTTIR HLAKKAR TIL VETRARINS.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
33
63
8
08
/2
00
6
Cheerios er trefjaríkt
og sykurlítið og fer vel
í litla og stóra maga
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
■ Pondus Eftir Frode Øverli
Sannleikann
eða endur-
greitt
Þú áttir smáhest
þegar þú varst
lítill! Pabbi þinn er
læknir og mamma
þín starfar á strúta-
búgarði.
Þú ert kvæntur og átt átta börn.
Þú starfar sem fótaaðgerða-
fræðingur og nemur spænsk
keramikfræði í frístundum. Þú
nýtur þess!
Konan þín heitir Gerða og
syngur í samkór! Hún er yndis-
leg vera sem kann
að meta mysuost,
burritos og hrein-
dýraket. Snjöll með
pottaplöntur!
Ég er
orðlaus!
Borgað-
irðu?!
Mér fannst hún
eiga það skilið!
Þótt sagan hafi
ekki verið sönn,
þá var hún góð!
Hæ Palli.
Hæ Stanislaw.
Jóhanna er að
hugsa um að fara í
fara í einkaþjálfun
hjá rússneskum
fimleikakappa.
Við erum að ganga um og spyrja
fólk hvort það sé sammála því.
En ef þið eruð
ósammála þá
skuluð þið bara
halda því út af
fyrir ykkur, því
að hún er búin
að panta tíma og
við viljum ekki
eyðileggja það
fyrir henni.
Allt í lagi? Bæ!
Vandamálið með þessar er
að varirnar hreyfast á meðan
þær hugsa!
Gamaldags
tannlækningar
Adda.
Gleymdu öllu um
„vetrarhoppið“ mitt.
Hannes á pantaðan tíma hjá
lækni á eftir. Geturðu ekki
farið með Sollu á leikskólann?
Hmm...
tja...
Sko, ég lofaði Henning að
mæta snemma í dag svo við
gætum snyrt skýrsluna fyrir
mjög mikilvægan fund klukk-
an tíu... og svo á ég símafund
klukkan níu, svo...
Svo að
svarið þitt
er...?
Endilega.
Reyndu aldrei að segja
tveggja barna móður að
þú hafir mikið að gera.