Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 74
1. september 2006 FÖSTUDAGUR42
Kvikmyndahátíðin IFF fór
formlega af stað á mið-
vikudagskvöldið þegar
kvikmyndin Factotum var
frumsýnd að viðstöddum
aðalleikurunum Matt Dillon
og Marisu Tomei.
Fjöldi fólks lagði leið sína í Smára-
bíó til að heiðra Hollywood-stjörn-
urnar með nærveru sinni. Kvik-
myndin mæltist vel fyrir meðal
viðstaddra og var mikið klappað í
lokin en síðan var haldið niður á
skemmtistaðinn REX þar sem fjör-
ið hélt áfram langt fram á nótt.
Velheppnuð opnunarhátíð IFF
FLOTT SAMAN Leikkonan Marisa Tomei og
Nick Carpenter voru flott á frumsýningu
kvikmyndarinnar Factotum.
ALÞÝÐULEG STÓRSTJARNA Matt Dillon gaf
sér tíma til að gefa aðdáendum sínum
áritanir en hann þykir sýna góðan leik í
kvikmyndinni.
SPENNT FYRIR MYNDINNI Þau Baldur
Baldursson hjá Fíton og Gerður Wendel
voru mætt á opnunarhátíð IFF.
Í HRÓKASAMRÆÐUM Þeir Davíð Pitt og
Halldór Lárusson voru í miklum hrókasam-
ræðum fyrir myndina.
BRUGÐIÐ Á LEIK Klængur Gunnarsson, Elín Guðmundsdóttir og Kristín Hjálmarsdóttir
brugðu á leik fyrir ljósmyndara. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
LÉTU SIG EKKI VANTA Einar Kárason og Hildur Baldursdóttir voru að sjálfsögðu meðal
viðstaddra þegar kvikmyndin Factotum var frumsýnd en hún er að einhverju leyti byggð á
ævi rithöfundarins Charles Bukowski.
FRAMLEIÐANDINN OG LEIKKONAN Jim
Stark og Ingibjörg Stefánsdóttir ræddu
málin áður en haldið var inní bíósalinn.
STJÖRNURNAR Í TEITINU Matt Dillon og Marisa Tomei voru stjörnurnar í teitinu en haft var
á orði hversu vingjarnleg og skemmtileg þau voru.
Ég var á röltinu í einni af húsgagnaversl-
unum borgarinnar í vikunni að leita mér
að fallegum sófa. Þegar ég staldraði við
einn sem mér leist vel á stóð þar kona,
sennilega að nálgast fimmtugt, sem var
að tala í símann. Þar sem ég skoðaði
sófann og henti mér á hann til að
prufukeyra, gat ég ekki annað en heyrt
það sem hún var að segja í símann. Það
var eitthvað á þessa leið: nei, þú ferð
sko ekkert að hitta hann í kvöld... (smá
þögn)... af því að ég segi það... (aftur
smá þögn)... nei, ég fer bara ekki ofan af
því! Mér krossbrá eins og vænta má og
færði mig yfir að næsta sófa til þess að
vera örugglega ekki partur af fjölskyldu-
dramanu hennar. Þá fór ég að velta
þessu eilífa og asnalega valdaströggli
fyrir mér og mundi annað eins fáránlegt
atvik sem ég varð vitni að fyrir nokkru. Í
það sinnið voru tveir karlmenn að tala
saman í vinnunni hjá mér. Annar þeirra
var að segja hinum að hann væri einn
heima því konan hans hefði skroppið til
London með vinkonum sínum að versla
og djamma. Þá gubbaði hinn út úr sér
þessum skemmtilega frasa: Og leyfðirðu
henni það alveg?
Það er alveg ferlegt þegar hlutunum er
svona háttað! Að annar aðilinn í sam-
bandinu sé einhver boss sem hafi yfir-
vald og lokasvörin við öllum ákvörðun-
um. Að hann hafi öll völdin í vasanum.
Það system virkar hvergi og síst af öllu
inni á heimilinu. Svo þegar ég fór að
pæla aðeins betur í þessu þurfti ég að
viðurkenna fyrir sjálfri mér að staðreynd-
in er því miður sú að í flestum ef ekki
öllum samböndum hefur annar aðilinn
yfirhöndina, allavega aðeins. Stjórnand-
inn getur hafa hlotið titilinn til dæmis
vegna þess að hann er minna hrifinn og
því tilbúnari að slíta sambandinu verði
sér ekki hlýtt, vegna þess að hinn aðil-
inn vill að sér sé stjórnað af einskærri
hræðslu við ákvarðanatöku eða vegna
þess að viðkomandi er einfaldlega hald-
inn slæmu tilfelli af íslensku frekjuveik-
inni. Hver sem skýringin er þá er þetta
eitthvað svo rangt.
Fólk sem er í samböndum er yfirleitt
fullorðið og sjálfstætt með fullmótaðan
huga og skoðanir og ætti að mínu mati
að taka ákvarðanir fyrir sig sjálft! En
auðvitað með hinn í huga og með tilliti
til hans. En það að banna fólki að gera
eðlilega hluti er eiginlega bara sjúkt. Svo
þurfa líka allir að eiga eitthvað fyrir sig
prívat, eins og vini og áhugamál. Það er
líka sniðugt að eiga vini og áhugamál
saman en það verður samt að passa
upp á það að eyða ekki
hverju sekúndubroti
dagsins, vikunnar eða
hvað það nú er límd
saman. Þá fær fólk
bara leið á hvort öðru
og saknar aldrei hins.
Þá er hætt við að
maður fái ógeð
og láti sig
hverfa einn
góðan veður-
dag! Það vill
víst enginn...
REYKJAVÍKURNÆTUR HÖRPU PÉTURSDÓTTUR FINNST AÐ FULLORÐIÐ FÓLK EIGI AÐ RÁÐA SÉR SJÁLFT
Það má ekki pissa bakvið hurð...