Fréttablaðið - 01.09.2006, Qupperneq 80
48 1. september 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Síðan Norður-Írland tók
þátt í heimsmeistarakeppninni í
Mexíkó árið 1986 hefur landsliðið
ekki staðið undir væntingum
heimamanna. Ef frá er skilinn
frækinn 1-0 sigur á Englendingum
í fyrra hefur norður-írska lands-
liðið ekki náð þeim úrslitum sem
sæmir þessari miklu knattspyrnu-
þjóð.
Eftir 2-1 sigur á Finnum á úti-
velli um miðjan ágústmánuð eru
væntingar Norður-Íra hins vegar
geysimiklar. Alan McDonald,
gamla hetjan hjá QPR og fyrrum
landsliðsfyrirliði Norður-Íra, segir
að landsliðið sé það besta sem hafi
komið fram í tólf ár. Hann er nú
aðstoðarþjálfari U-21 liðsins.
„Við erum að klífa upp styrk-
leikalista FIFA sem er alltaf
jákvætt og mér finnst að við
höfum ekki átt betri hóp leik-
manna í langan tíma,“ sagði
McDonald við Belfast Telegraph.
„Þetta er góð blanda ungra og efni-
legra leikmanna á borð við Sammy
Clingan og reynslubolta eins og
David Healy og Aaron Hughes.“
Healy er langmarkahæsti leik-
maður Norður-Íra frá upphafi með
20 mörk og Aaron Hughes er einn
fárra landsliðsmanna sem leika í
ensku úrvalsdeildinni en hann er á
mála hjá Aston Villa.
Hughes, sem er núverandi fyrir-
liði landsliðsins, er álíka bjartsýnn
og forveri sinn. „Sigurinn á Finn-
um veitir okkur mikið sjálfstraust.
Í síðustu undankeppni náðum við
nokkrum mjög góðum úrslitum.“
Fyrir nánast réttum fimm árum
lék íslenska landsliðið gegn
Norður-Írlandi í Belfast í undan-
keppni HM 2002 og mætti kok-
hraust til leiks eftir frækinn 3-1
sigur á Tékkum á Laugardalsvelli.
Óhætt er að segja að okkar menn
hafi ekki riðið feitum hesti frá
þeirri viðureign og töpuðu 3-0
eftir átakanlega slaka frammi-
stöðu.
Ef árangur liðanna frá þeirri
viðureign er borinn saman kemur
í ljós að staða liðanna er nokkuð
svipuð. Bæði lið hafa lagt eina
stórþjóð (Ísland - Ítalía 2-0 og
Norður-Írland - England 1-0) og
náð að stríða nokkrum stórveldum
en frægt er markalaust jafntefli
Íslands gegn Þýskalandi í undan-
keppni EM 2004 og þá náðu
Norður-Írar sömu úrslitum á
heimavelli gegn Spánverjum í
sömu keppni, rétt eins og Íslend-
ingum tókst um miðjan ágústmán-
uð síðastliðinn.
En þar fyrir utan er árangurinn
ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Norður-Írar telja sig þó betur í
stakk búna nú fyrir komandi átök
en oft áður á meðan Íslendingar
fara varlega í sakirnar hvað vænt-
ingar snertir eftir hrikalega útreið
í síðustu undankeppni.
Hughes sagði í viðtali sínu við
BBC að hann gerði sér grein fyrir
að stuðningsmenn landsliðsins
ætluðust til þess að landsliðið ynni
leiki eins og gegn Íslendingum á
heimavelli. Hann vildi þó ekki
taka undir það fullum hálsi.
„Til að ná góðum árangri í
keppnum sem þessari verðum við
að standa okkur vel á heimavelli.
Ég veit ekki hvort það á að vera
sjálfsagður hlutur að vinna þenn-
an leik en okkur finnst að við
getum náð úrslitum sem við erum
sáttir við. Við verðum að vera full-
ir sjálfstrausts án þess að van-
meta andstæðinginn.“
Yfirlýst markmið íslenska
landsliðsins undanfarin ár og ára-
tugi hefur verið að vinna sig upp
um styrkleikaflokka en fall liðsins
á styrkleikalista FIFA undanfarin
ár hefur verið hröð og staða
Íslands á þeim lista hefur aldrei
verið verri. Sama hvað mönnum
finnst um téðan lista segir þetta
sína sögu og því er leikurinn nú í
Belfast einn mikilvægasti leikur
íslenska landsliðsins í mörg ár.
Ef íslenska landsliðið ætlar sér
að klifra upp metorðastigann á
alþjóðlegum vettvangi verður
liðið að landa fullu húsi stiga gegn
þjóðum sem eru í neðri styrkleika-
flokkum en Ísland, þeirra á meðal
liði Norður-Íra, ásamt því að stríða
„betri“ liðunum. Ef undankeppnin
sem nú er að hefjast byrjar á
slæmu tapi úti verður mun erfið-
ara að yfirstíga aðrar og stærri
hindranir. Það væri betra að geta
mætt Dönum á Laugardalsvelli í
næstu viku án þess að þurfa að
vinna upp þau stig sem töpuðust í
Belfast.
TVEIR GÓÐIR David Healy og Grant McCann fagna marki þess fyrrnefnda í leik Norður-Írlands og Finnlands í síðasta mánuði.
NORDIC PHOTOS/AFP
Besta landslið Norður-Íra í tólf ár
Lawrie Sanchez, landsliðsþjálfari Norður-Írlands, er maður með háleit markmið. Hann hefur einlæga trú á
því að sínir menn hafi það sem til þurfi til að koma liðinu á EM. Hann ætlar að byrja á sigri gegn Íslandi.
ÍÞRÓTTALJÓS
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
FÓTBOLTI Norður-Írar binda miklar
vonir við hinn nítján ára gamla
sóknarmann Kyle Lafferty, sem
verður í liðinu sem mætir Íslandi
á morgun. Hann skoraði annað
mark Norður-Íra í 2-1 sigurleikn-
um á Finnum um miðjan ágúst-
mánuð og hann hefur þegar látið
til sín taka í ensku 1. deildinni
með Burnley. Markið gegn
Finnum var hans fyrsta fyrir A-
landslið Norður-Íra.
„Hann hefur staðið sig
frábærlega undanfarið og ég er
viss um að Lawrie Sanchez heldur
tryggð við hann eftir að hann
skoraði gegn Finnlandi,“ sagði
Andy Payton í pistli í Lancashire
Telegraph í gær. - esá
Kyle Lafferty:
Næsta stjarna
Norður-Íra
KYLE LAFFERTY Fagnar hér markinu sem
hann skoraði gegn Finnum.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Stuart Elliott, leikmaður
Hull City og norður-írska
landsliðsins, segir mikla eftir-
væntingu ríkja hjá sínum
mönnum fyrir leikinn gegn
Íslandi á morgun en leikurinn er
sá fyrsti hjá báðum liðum í
undankeppni EM 2008. „Við
sýndum miklar framfarir í
síðustu undankeppni og ætlum að
halda áfram á sömu braut,“ sagði
Elliott. „Andrúmsloftið í hópnum
núna er frábært. Það hefur aldrei
verið svona gott í minni landslið-
stíð og eru allir tilbúnir til að
takast á við verkefnið.“
Hann segir riðilinn vera
erfiðan. „Spánn, Danmörk,
Svíþjóð og Lettland eru með sterk
lið og íslenska liðið er alls ekki
lélegt en við förum í leikinn á
morgun með jákvæðu hugarfari.“
- esá
Stuart Elliott:
Andrúmsloftið
aldrei betra
FÓTBOLTI Markvörðurinn Kjartan
Sturluson hefur framlengt
samning sinn við Landsbanka-
deildarlið Vals til ársins 2010 en
hann gekk til liðs við félagið fyrir
tímabilið í fyrra. Kjartan lék
lengst af með Fylki en tók sér frí
frá knattspyrnu árið 2004 þegar
hann bjó á Ítalíu. Hann hefur
verið aðalmarkvörður Vals sín tvö
tímabil hjá félaginu. - esá
Kjartan Sturluson:
Hjá Val til 2010
FÓTBOLTI Mál Carlos Tevez er hið
furðulegasta. Argentínska
stórstirnið fór í sumar í verkfall
þar sem félagið hans, Corinthi-
ans í Brasilíu, vildi ekki selja
hann til Evrópu en talið er að
mörg stórlið á borð við Chelsea
og Manchester United hafi verið
á höttunum eftir honum. Það kom
því eins og þruma úr heiðskíru
lofti þegar Tevez tilkynnti á
heimasíðu sinni í gær að hann og
Javier Mascherano félagi hans
hefðu skrifað undir samning við
West Ham. Félagaskiptin voru
svo staðfest síðar um daginn.
„Tvímenningarnir hafa verið
keyptir á óuppgefna upphæð og
skrifað undir samning sem bind-
ur þá við félagið,“ sagði í til-
kynningu en fyrst var búist við
að þeir yrðu lánaðir til West
Ham í eitt ár.
Á meðan fregnirnar voru ekki
staðfestar fóru margvíslegar
samsæriskenningar á flug. Þær
snerust um að eigendur Corinth-
ians, fyrirtæki að nafni Media
Sports Investment (MSI), hefði
ákveðið að gefa tvímenningun-
um tækifæri að sanna sig í ensku
úrvalsdeildinni áður en þeir
yrðu svo seldir til Chelsea.
Roman Abramovich, eigandi
Chelsea, hefur verið sagður eiga
15 prósenta hlut í MSI.
Í fyrra hóf MSI yfirtökuvið-
ræður við núverandi eigendur
West Ham en þeim var hætt eftir
að aðilar náðu ekki saman um
kaupverð.
Þegar Chelsea reyndi að nálg-
ast Tevez í sumar var sagt að
Corinthians hefði sett 68 millj-
óna punda verðmiða á leikmann-
inn og því hefði ekkert orðið af
kaupunum. Abramovich mun því
hafa kosið að frekar en að
Manchester United eða annar
erkifjandi Chelsea fengju leik-
manninn í sínar raðir hefði hann
barist fyrir því að fá tvímenn-
ingana í West Ham í eitt ár.
Tevez sjálfur hefur verið yfir-
lýstur stuðningsmaður United
og klæðst treyju liðsins bæði á
blaðamannafundum og æfingum
í Brasilíu. Forráðamenn West
Ham voru vitanlega í skýjunum
vegna fréttanna. - esá
Samsæriskenningar á fleygiferð um félagaskipti Carlos Tevez og Javier Mascherano til West Ham:
Hitað upp í West Ham fyrir Chelsea?
Knattspyrnukonan knáa Hrefna Huld
Jóhannesdóttir lék með KR á miðvikudags-
kvöldið þrátt fyrir að aðeins sé liðin sex
og hálf vika frá því að hún eignaðist barn.
Hrefna Huld eignaðist stúlku 16. júlí sl.
ásamt eiginmanni sínum, Adolf Sveinssyni.
„Ég var bara fljót að jafna mig, fór að
mæta á æfingar aftur og fann að ég var
bara klár í þetta,“ sagði Hrefna Huld í sam-
tali við Fréttablaðið í gær. „Ég byrjaði að
æfa eftir verslunarmannahelgina, þá voru
komnar þrjár vikur frá fæðingu.“
„Það hefur bara verið gaman að fylgjast
með úr stúkunni í sumar. Ekkert mál að
fylgjast með þegar maður veit að maður
getur ekki verið með, annað ef maður er
meiddur eða eitthvað svoleiðis,“ sagði
Hrefna Huld um það að þurfa að horfa
á leikina úr stúkunni í stað þess að
spila með liðinu. „Það hefði samt verið
skemmtilegra ef það hefði gengið
betur hjá liðinu. Stefnan er alltaf
sett hærra hjá KR en þriðja
sætið í deildinni,“ sagði
Hrefna Huld um gengi
KR-liðsins í sumar en KR
er í þriðja sæti deildarinn-
ar með 27 stig þegar einn
leikur er eftir.
„Heilsan er bara mjög
góð og ég hef ekki fundið
fyrir neinu þrátt fyrir að byrja
svona snemma. Engin meiðsli,“
sagði Hrefna Huld að lokum.
Eiginmaður hennar,
Adolf Sveinsson, er einnig
knattspyrnumaður en hann
spilar með Reyni Sandgerði
og er markahæsti leikmað-
ur 2. deildarinnar, með
13 mörk. Ljóst er að
ungu dömuna þeirra
ætti ekki að skorta
knattspyrnugenin, enda
báðir foreldrarnir klókir í
íþróttinni.
HREFNA HULD JÓHANNESDÓTTIR: SPILAÐI MEÐ KR SEX OG HÁLFRI VIKU EFTIR BARNSBURÐ
Ekkert mál að byrja svona snemma
> Birgir Leifur undir pari
Þeir Birgir Leifur Hafþórsson og Heiðar Davíð
Bragason hófu leik í gær á Wäxholm-
mótinu í Svíþjóð en mótið er liður í
Áskorendamótaröð Evrópu. Birgir
Leifur byrjaði illa á fyrri hlutan-
um en náði sér svo vel á strik á
seinni níu holunum þar sem hann fékk
fjóra fugla á fyrstu fimm holunum. Hann
lauk keppni á einu höggi undir pari. Var
hann í 45.-70. sæti en Heiðar Davíð var
öllu neðar. Hann var í 139.-141. sæti af
143 keppendum á fimm höggum yfir pari.
Fékk hann tvo fugla, fimm skolla og einn
skramba.