Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 12
12 7. september 2006 FIMMTUDAGUR
GUÐUM FAGNAÐ Hindúar dönsuðu
með líkneski af guðinum Ganesha
á götum Mumbai á Indlandi í gær, á
síðasta degi tíu daga hátíðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SIMBABVE, AP Hefðbundin afrísk
læknisráð standa styrkum fótum í
Simbabve og þótti það staðfest á
dögunum þegar heilbrigðisráð-
herra landsins samþykkti að um
fimmtán hundruð andalæknar og
græðarar fengju hér eftir réttindi
til að úrskurða um veikindi
almennings. Þeir fá jafnframt
leyfi til að gefa út vottorð þess
efnis að fólk fái veikindafrí í
vinnu.
Þetta er gert í ljósi þess að
opinber heilbrigðisþjónusta í
landinu er í miklum fjárhags-
kröggum og gífurlegt álag er á
þeim læknum sem menntaðir eru
samkvæmt vestrænum hefðum í
læknisfræði. - kóþ
Lækningar í Simbabve:
Andalæknar
skrifa vottorð
RÚSSLAND Óeirðir voru í borginni
Kondopoga í Kirjálahéruðunum í
Rússlandi um helgina og gengu
hundruð drukkinna nýnasista um
borgina og kveiktu í eignum
Kákasíumanna og rændu og
rupluðu, að sögn vefútgáfu
Hufvudstadsbladet.
Óróleikinn hófst í byrjun síð-
ustu viku þegar tveir Rússar létu
lífið í slagsmálum á tsjetsjenskri
krá í borginni. Talið er að tveir
Tsjetsjenar hafi myrt þá. Búið er
að kveikja í kránni og öðrum veit-
ingastöðum og fyrirtækjum.
Múslimar segja að kynþátta-
hatur blómstri og stjórnvöld horfi
aðgerðalaus á. - ghs
Rússnesku Kirjálahéruðin:
Kynþáttahatur
látið óáreitt
SVÍÞJÓÐ Sænska lögreglan upplýsti
í gær að alls væru þrír starfsmenn
ungliðahreyfingar Þjóðarflokks-
ins grunaðir um að hafa átt þátt í
að brjótast inn í tölvukerfi Jafnað-
armannaflokksins; það er einum
fleiri en áður hafði komið fram.
Framkvæmdastjóri flokksins
sagði af sér vegna málsins í fyrra-
dag og eftir því sem meira er um
málið fjallað í sænskum fjölmiðl-
um eykst þrýstingur á flokksfor-
manninn Lars Leijonborg um að
taka líka pokann sinn, nú þegar tíu
dagar eru til þingkosninga í land-
inu.
Fredrik Reinfeldt, formaður
Hægriflokksins og forsætis-
ráðherraefni kosningabandalags
borgaralegu flokkanna, sem Þjóð-
arflokkurinn á aðild að, lýsti því
yfir í gær að vissulega væru það
alvarlegir hlutir
sem hefðu þarna
átt sér stað, en að
hans mati hefði
flokksforystan
„sýnt skýr og
snögg viðbrögð“.
Á fréttavef
Dagens Nyheter
er haft eftir Rein-
feldt að það sé
ekki í hans verka-
hring heldur
flokksmanna í Þjóðarflokknum að
segja til um hvort flokksformað-
urinn Leijonborg njóti áfram
trausts þeirra. Reinfeldt sagði
ummæli Maritu Ulvskog, fjöl-
miðlafulltrúa jafnaðarmanna, sem
líkti Leijonborg við nauðgara,
vera högg undir beltisstað sem
dæmdi sig sjálft.
Stjórnmálaskýrendur hafa bent
á að vert væri að spyrja hvers
vegna jafnaðarmenn hefðu fyrst
nú, svo skömmu fyrir kosningar,
lagt fram kæru vegna hinna
meintu innbrota í tölvukerfi
þeirra, eftir að í ljós er komið að
þeir höfðu sannanir fyrir þeim
þegar í marsmánuði síðastliðnum.
Stjórnmálafræðingurinn Magn-
us Hagevi við háskólann í Växsjö
tjáir fréttavef Dagens Nyheter í
gær að tölvunjósna-hneykslið gæti
rúið Þjóðarflokkinn það miklu fylgi
að hann kynni að eiga á hættu að
falla niður fyrir fjögurra prósenta
markið, sem er þröskuldurinn til að
komast á þing. Það gæti ráðið úrslit-
um kosninganna, þar sem þar með
gæti borgaraflokkabandalagið misst
þann nauma meirihluta sem það
hefur mælst með í skoðanakönnun-
um að undanförnu. audunn@frettabladid.is
FREDRIK
REINFELDT
ÞRÝST Á LEIJONBORG Lars Leijonborg, formaður Þjóðarflokksins, ásamt fram-
kvæmdastjóranum Johan Jakobsson sem sagði af sér í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þrýstingur eykst á Leijonborg
Fram kom í gær að alls væru þrír starfsmenn sænska Þjóðarflokksins grunaðir um aðild að tölvunjósnum hjá
Jafnaðarmannaflokknum og þrýstingur jókst á flokksformanninn að víkja. Hneykslið sagt geta ráðið úrslitum.
Kosningar í Svíþjóð
NYJUNG!með eplum og gulrótum – án viðbætts sykurs
Nú hefur ný Létt ab-mjólk
með eplum og gulrótum bæst
í hópinn. Prófaðu þær allar!
!
LETTU
Vantrausti á Rumsfeld hafnað
Repúblikanar á Bandaríkjaþingi komu
í gær í veg fyrir að kosið yrði um
vantrauststillögu á Donald Rumsfeld
varnarmálaráðherra en demókratar
á þinginu hugðust leggja frumvarpið
fram.
BANDARÍKIN
ÚTGÁFUMÁL Stefnt er að sérútgáfu
Draumalandsins eftir Andra Snæ
Magnason fyrir
jólin. Drauma-
landið hefur verið
prentað í fjórtán
þúsund eintökum
og stefnir flest í
að hún verði ekki
bara metsölubók
ársins heldur sú
bók sem mest
hefur selst á einu
ári á Íslandi frá
upphafi. Meðal ítarefnis í
sérútgáfunni verða ýmis skrif um
bókina og áhrif hennar. Fjölmarg-
ir hafa fengið boð um að skrifa
um bókina og áhrif hennar, meðal
annars Björk, Björn Bjarnason,
Bubbi Morthens, Friðrik Sophus-
son og Jónsi í Sigur Rós. - glh
Metsölubók ársins:
Draumalandið í
sérútgáfu
ANDRI SNÆR
MAGNASON
STJÓRNMÁL Flokksmönnum í
Frjálslynda flokknum hefur bor-
ist bréf frá forystu flokksins þar
sem þeir eru beðnir að láta vita
hvort þeir hafi áhuga á að taka
sæti á framboðslistum fyrir þing-
kosningarnar í vor eða viti af ein-
hverjum sem hugsanlega hefðu
áhuga á framboði.
Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins,
segir þetta í fyrsta sinn sem
flokkurinn fari þessa leið í leit að
frambjóðendum en fyrir síðustu
kosningar hafi verið auglýst í
blöðum eftir
áhugasömu fólki
til að taka sæti á
lista.
Sjálfur reiknar
Guðjón Arnar
með að bjóða sig
fram í sínu „gamla
kjördæmi,“ eins
og hann orðar
það, en hann er af
Vestfjörðum, sem
tilheyra Norðvesturkjördæmi.
Spurður um áform annarra þing-
manna flokksins, þeirra Magnús-
ar Þórs Hafsteinssonar og Sigur-
jóns Þórðarsonar, segir Guðjón
þá örugglega fara fram þó ekki sé
ákveðið í hvaða kjördæmum það
verði. Sigurjón var í öðru sæti á
lista flokksins í Norðvesturkjör-
dæmi en Magnús í fyrsta sæti í
Suðurkjördæmi. „Það liggur ekk-
ert á að ákveða þetta og það verð-
ur örugglega ekki fyrr en í febrú-
ar eða mars sem framboðslistar
verða tilbúnir hjá okkur. Við höld-
um ró okkar og förum ekki á taug-
um yfir einu né neinu,“ sagði
Guðjón Arnar. - bþs
Frjálslyndi flokkurinn fer sér hægt í framboðsmálum vegna kosninganna í vor:
Flokksmenn beðnir að benda á
hugsanlega frambjóðendur
GUÐJÓN ARNAR
KRISTJÁNSSON
BERLÍN, AP Georg Bruner, 74 ára
þýskur heildsali, fannst látinn
heima hjá sér í Berlín í gær. Svo
virðist sem hann hafi framið
sjálfsmorð. Hann hafði orðið
uppvís að því að selja gamalt kjöt
í stórum stíl til 2.500 fyrirtækja í
Þýskalandi og 50 að auki í
Austurríki, Hollandi og fleiri
nágrannaríkjum.
Sextíu tonn af kjöti voru gerð
upptæk og var kjötið allt komið
fram yfir síðasta söludag. Sumt
kjötið var orðið ónothæft fyrir
fjórum árum. Lögreglan segir að
Bruner hafi keypt útrunnið kjöt í
stórum stíl, geymt það og síðan
selt til viðskipta vina sinna. - gb
Þýskur heildsali deyr:
Keypti og seldi
fólki úldið kjöt