Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 32
[ ]
Svart-teinóttur jakki með
samlitum bryddingum með-
fram handvegi og vösum og
nettu belti í bakið.
Varir eiga að vera áberandi í vetur og sterkir djúpir litir eru notaðir til að
framkalla þær. Vanda skal verkið og velja góða varaliti en ekki bara skella á sig glossi og
hlaupa út. Augun munu fyrir vikið fá minni athygli og verður varaliturinn aðalvopnið í
snyrtibuddu vetrarins.
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Þú verður að eignast
skóverslun, Rauðarárstíg 14, 101 Reykjavík. trippen.is
ALCO-GEL
Sótthreinsandi handgel.
Engin flörf fyrir sápu og vatn.
Fæst í apótekum
um land allt.
Hlíðarsmára 11 • Kóp. • s 517 6460 • Laugavegi 66 s 578 6460
Opið mán-fös 11-18, laugardaga 11-15
www.belladonna.is
N
ý
ja
r
h
a
u
s
tv
ö
ru
r
fr
á
N
P
NÚ ER HAUSTLÍNAN FRÁ DIOR
KOMIN Í SNYRTIVÖRUVERSLANIR
LANDSINS EN HÚN EINKENNIST AF
HLÝJUM, KVENLEGUM OG ELEGANT
LITUM.
1. Dior Detective Chic Púðurfarði
í fjórum litum sem ætlaður er fyrir
andlit og augnsvæði. Þessi púðurfarði
er í einstaklega flottum umbúðum;
eins konar leðurveski sem minnir á
sjötta og sjöunda áratuginn.
2. Augnskuggabox með fimm litum
Hvort sem þú kýst að hafa förðunina
náttúrulega, eða íburðarmikla
og elegant, þá bjóða þessir
fimm litir upp á hvort tveggja;
Dimmfjólublátt, bleikt, túrkis,
ljós og dökkgrænt og þú sérð
svo um að blanda þeim eftir
smag og behag.
3. Stakur augnskuggi Fal-
legur túrkisblár augnskuggi
sem minnir á hausthiminn í
ljósaskiptum.
4. Lively Mauve Kinnalitur
sem nota á efst á kinnbeinin
eða vel yfir kinnina.
5. Varir. 1, Lip Beautyfier
Leyndarmál förðunarfræðinga
Dior. Lip Beautyfier varagljáinn
frá Dior inniheldur jurtir sem örva
blóðstreymi til varanna og gera þær
stærri og mýkri.
6. Diorshow Unlimited maskari Nýi
maskarinn frá Dior brettir og lengir
augnhárin en burstinn er sérstaklega
hannaður þannig að hægt sé að nota
hann á tvenna vegu. Önnur hliðin er
slétt og með henni er liturinn borinn
á um leið og augnhárin eru brett upp,
svo er hin hliðin notuð til að greiða
augnhárin og lengja.
7. Airy Mauve varablýantur Mjúkur
og þægilegur varablýantur í bleik-
sanseruðum tón.
Hlýlegt haust frá Dior
Buxur úr smáköflóttu
efni með gylltum
fínlegum þráðum.
Léttur jakki með
utanásaumuðum
vösum, bryddingum
og taubelti sem binst
aftur fyrir bak.
Gráar teinóttar buxur
með lokuföllum neðan
við renniláslokaða
vasa, fínlegum leður-
bryddingum að ofan
og svörtum vasalokum
að aftan, ásamt svörtu
taubelti. Pils fæst líka
úr sama efni.
Frjálslegur og vandaður kvenfatnaður frá þýska framleiðand-
anum Heymann er nýkominn í verslunina Anas í Firðinum í
Hafnarfirði.
„Ég rakst á þessi fallegu föt á sýningu í Düsseldorf. Ég sá að þau pössuðu
ágætlega inn í þá línu sem Anas hefur fylgt og hefur fallið í kramið hér á
landi,“ segir Anna Þorsteinsdóttir, verslunareigandi í Anas. Þar á hún við fatn-
aðinn frá Heymann sem er meðal þess sem athygli vekur þegar haustfatnað-
urinn í búðinni hennar er skoðaður. Hún segir Heymann vera þekktan hönn-
uð í Evrópu þó svo að vörur hans hafi ekki rekið fyrr
á íslenskar fjörur svo vitað sé. Fötin frá honum
eru úr góðum efnum og greinileg alúð lögð
í skreytingar og frágang.
Alúð lögð í skreytingar
og allan frágang
Jakki úr tvenns konar
upphleyptu efni, annars
vegar með rósum og hins
vegar röndum, skreyttur
lítilli hettu, brjóstvösum
og spæl í bakið.
Hermannagrænt pils
með vösum og léttu
belti, skeytt tjull-
blúndu sem hneppt
er upp í fóðrið og
hægt er að taka af.
Sportlegur jakki
úr tvenns konar
efni, skreyttur
augnsaumsporum
á ermum og kraga.
Kápa með stórum
kraga úr öðru
efni sem skreytir
líka hliðar hennar
neðan við brydd-
aða vasana.
BIBA merkið
endurlífgað
Á sjötta áratugnum var það tísku-
merkið BIBA sem kom af stað hinni
svokölluðu London tísku, og hrinti
af stað hugmyndinni að tíska væri
fyrir alla, sama hver fjárhagurinn
væri.
Verslun þeirra á Kensington
High Street var sótt af tískuþyrstum
konum hvaðanæva að og var
Topshop síns tíma. Nú er
verið að endurlífga merkið
og búið að hanna heila
línu sem sýnd verður á
tískuvikunni í London,
en aðalhönnuður Biba
er Bella Freud. Kominn
var tími til, að mati
margra, þar sem
gamli Biba kjólar eru
mjög vinsælir og eru
seldir dýrum dómum
á uppboðum.
Stjörnur eins og
Kate Moss, Alison
Goldfrapp og Chloe
Sevigny hafa þegar
sýnt merkinu mikinn
áhuga og eiga eflaust
eftir að sjást klæðast
nýjustu flíkunum
fljótlega.