Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 50

Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 50
■■■■ { austurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■8 Aðalflutningar Öryggi alla leið OPIÐ VIRKA DAGA TIL KL. 17.00 Föst. til kl. 16.00 Skútuvogi 8 S. 581 3030 Fax: 471 2564 adaleg@simnet.is Nú geta enn fleiri nýtt sér frábæra þjónustu Aðalflutninga q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q q Takk fyrir komuna M IX A • fí t • 6 0 4 2 7 Landsvirkjun þakkar þeim rúmlega 40 þúsund Íslendingum sem hafa heimsótt Végarð og kynnt sér Kárahnjúkavirkjun af eigin raun. Sýningin í Végarði er opin alla daga fram á haust. Kynnið ykkur opnunartíma í síma 471 2044. Fólk sem vinnur erfiðisvinnu á löngum vöktum þarf mikinn og góðan mat. Þetta veit Árdís Maggý Björnsdóttir, ráðskona hjá Arnar- felli. Angandi kjötsúpan kraumar í pottinum hjá Árdísi eða Dísu eins og hún er kölluð af samstarfsfólk- inu. Pottunum væri líklega nær að segja því Dísa eldar fyrir rúmlega hundrað manns og þá dugar enginn einn pottur. Vinnubúðirnar sem hún starfar í eru við Ufsarveitu í Jökul- sá í Fljótsdal og útsýnið er stór- brotið til Vatnajökuls og Snæfells. Dísa kom á staðinn í júní í fyrra og kveðst kunna afar vel við sig í faðmi hinna háu fjalla. „Orkan og kyrrðin er mikil hér á fjöllunum og ég hélt að hér yrði miklu meiri einangrun en raun er á,“ segir hún brosandi. Unnið er á vöktum allan sólarhring- inn og að sjálfsögðu skiptist fólk á líka að sinna eldhúsverkunum. „Við erum tvö sem stýrum mötuneyt- inu, ég og Karl Egill Steingrímsson sem hefur starfað hér lengur en ég og svo höfum við gott fólk með okkur,“ lýsir Árdís. Hún segir hollan og góðan mat og heimabakað með kaffinu vera aðalsmerki mötuneyt- isins og ýmis tilefni notuð til að gera sér dagamun. Árdís er enginn viðvaningur í matargerðinni. Hún var á sínum tíma ráðskona við Blönduvirkjun, síðar matráðskona og búðastjóri þegar unnið var að gangagerð í Ólafsfjarðarmúla, auk þess sem sjúkrahúseldhús, skólamötuneyti og Hótel Varmahlíð hafa notið starfs- krafta hennar. Hún bjó lengst á Vatnsleysu í Viðvíkursveit í Skaga- firði þar sem hún stundaði hrossa- rækt með góðum árangri, ásamt manni sínum Jóni Friðrikssyni. Þar voru þau líka með ferðaþjón- ustu og ráku veitingahúsið Fjalla- krána. En fyrir tveimur árum missti hún manninn sinn úr krabbameini. „Þá urðu þáttaskil í mínu lífi og ég ákvað að söðla um,“ segir Árdís, sem á dóttur búsetta á Akureyri og son sem tók við hrossaræktinni á Vatnsleysu. Fjallalífið á það vel við Árdísi að hún dvaldi í vinnubúðun- um við Ufsarveitu um síðustu jól. „Hér eru mikil verðmæti og ýmsum vélum þarf að halda gangandi. Jólin koma alls staðar ef rétta hugarfarið er til staðar,“ segir Dísa. Hún vonast til að verða á fjöllum meðan verk- efnin eru þar til staðar, gefa fólki gott að borða og „reyna að láta gott af sér leiða,“ eins og hún orðar það sjálf. Hundrað manns við matar- borðið hjá Arnarfelli Dísa notar hin ýmsu tækifæri til að gleðja starfsfólk Arnarfells með einhverju gómsætu. Hér hefur hún meðal annars borið fram tertu í tilefni stórs áfanga við gangagerðina. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.