Fréttablaðið - 07.09.2006, Síða 70
7. september 2006 FIMMTUDAGUR34
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Elskaður eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, tengdasonur, bróðir og
mágur,
Árni Stefán Árnason
matreiðslumeistari, Þrastarási 12,
Hafnarfirði,
lést á Líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 30.
ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag fimmtudaginn 7. september klukkan 13.00.
Kristín Þóra Kristjánsdóttir
Arna Þórdís Árnadóttir Sigurþór Hjalti Gústafsson
Svava Dagný Árnadóttir
Óðinn Birgir Árnason
Svava Sverrisdóttir Árni Stefánsson
Þórdís A. Sigurjónsdóttir Kristján B. Einarsson
Hjördís Árnadóttir
Sigurbjörg Árnadóttir
Gísli Sverrir Árnason Guðrún Baldursdóttir
Guðlaug Árnadóttir Hólmgrímur Elís Bragason
Gauti Árnason Ragnheiður Rafnsdóttir
Hrefna Kristjánsdóttir Magnús Hafsteinsson
Einar B. Kristjánsson Árný Eiríksdóttir
Við þökkum öllum þeim sem sýnt hafa
okkur samúð, vinsemd og hlýhug við and-
lát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu, systur og mágkonu,
Guðrúnar Sigurðardóttur
menntaskólakennara.
Bryndís Björnsdóttir
Jónas Páll Björnsson Soumia Islami
Sofia Sóley Jónasdóttir Elías Andri Jónasson
Sigrún Erla Sigurðardóttir Páll Ásmundsson
Svanhildur Ása Sigurðardóttir Björn Björnsson
Kæru vinir og vandamenn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elsku drengsins okkar, bróður,
barnabarns, mágs og frænda.
Pétur Snær Pétursson
Vallargötu 42, Sandgerði.
Guð blessi ykkur öll.
Snæfríður Karlsdóttir, Pétur Guðlaugsson, Ari Gylfason,
María G. Pálsdóttir, Hrannar Már Pétursson, Guðrún
Pétursdóttir, Helgi Pétursson, Helena Sirrý Pétursdóttir,
Arna Siv Pétursdóttir, Gréta Frederiksen, Karl Einarsson
og frændsystkini.
Útför bróður okkar og frænda,
Þorsteins Skúlasonar
frá Hólsgerði, Fellsmúla 16, Reykjavík,
verður gerð frá Áskirkju, föstudaginn 8. september
kl. 15. Duftker hans verður jarðsett í Þóroddsstaða-
kirkjugarði laugardaginn 23. september að lokinni
bænastund sem hefst í Þorgeirskirkju kl. 14.
Skúli Skúlason
Kristveig Skúladóttir
Þorkell Skúlason
og systkinabörn hins látna.
MACY GRAY FÆDDIST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 1970
„Uppáhaldsrokkstjarnan mín er
Diana Ross. Hún fann eiginlega
upp dívu-rokkstjörnuna.“
Tónlistarkonan Macy Gray heldur upp á
36 ára afmælið sitt í dag.
Listamaðurinn og sjósundkappinn
Benedikt S. Lafleur ætlar að hefja
sund sitt yfir Ermarsund klukkan
8.00 í morgun.
Benedikt mun synda frá Dover í
Bretlandi yfir til Frakklands og mun
sundið líklega standa yfir í 18 til 26
klukkustundir. Benedikt mun stoppa
á hálftímafresti til að næra sig en
með honum í för verða aðstoðarmenn
á báti.
„Ég hlakka til að fara í sjóinn, ég
hef ekki farið í nokkra daga,“ segir
Benedikt, sem hefur litlar áhyggjur
af kulda á leiðinni. „Það hefur hlýnað
núna. Hitinn hefur verið að fara upp í
22 til 25 gráður og það er kjörið hita-
stig,“ segir hann. „Erfiðleikarnir
verða mestir við Frakklandsstrendur
þar sem straumarnir eru harðir og þá
rekur menn oft út. Maður þarf að vera
skýr í höfðinu og halda ró sinni. Þetta
er sálfræðilega mjög erfitt og á þessu
stigi eru menn þreyttir eftir að hafa
verið búnir að synda mikið.“
Engum Íslendingi hefur áður tek-
ist að synda yfir Ermarsund. Eyjólfur
Jónsson reyndi það fyrir fimmtíu
árum en lenti einmitt í erfiðum
straumum sem urðu til þess að hann
þurfti að hætta.
Fari svo að sundið yfir Ermarsund
takist hefur Benedikt hug á að synda
boðsund yfir Ermarsund og líka að
synda þar yfir fram og til baka með
tíu mínútna stoppi. Einnig vonast
hann til að synda Drangeyjarsund.
Með sundinu í dag vill Benedikt
vekja athygli á gildi sjósunds fyrir
líkama og sál, auk þess sem hann
syndir gegn mansali, til varnar sak-
leysinu. Frekari upplýsingar um
Benedikt og sundið má finna á erma-
sund.is. freyr@frettabladid.is
BENEDIKT S. LAFLEUR: SYNDIR YFIR ERMARSUND Í DAG
Sálfræðileg þrekraun
SJÓSUNDKAPPI Benedikt Lafleur er vel undirbúinn fyrir sund sitt yfir Ermarsund. MYND/JÓN SVAVARSSON
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Þórður Ásgeirsson
Baughól 10, Húsavík,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
sunnudaginn 3. sept., verður jarðsunginn laugar-
daginn 9. september kl. 13.00. Athöfnin fer fram frá
Húsavíkurkirkju.
Fyrir hönd ástvina hans,
Friðrika Þorgrímsdóttir.
Elskuleg amma okkar og tengdamóðir,
Ingunn Sveinsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu í Víðinesi laugardaginn
26. ágúst sl. Minningarstund fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 7. september kl.
15.00.
Allir sem vilja minnast Ingunnar eru velkomnir.
Elíza, Ari, Gestur Ben, Ingi Þór, Hjördís og
Þórunn Gestsdóttir.
MERKISATBURÐIR
1533 Elísabet Englands-
drottning I fæðist í
Greenwich.
1732 Jarðskjálfti verður á
Rangárvöllum. Átta bæir
hrynja til grunna og
fjörutíu skemmast.
1813 Viðurnefnið „Uncle Sam”
notað í fyrsta sinn um
Bandaríkin.
1822 Brasilía lýsir yfir sjálfstæði
sínu frá Portúgal.
1874 Sigurður Guðmundsson
málari lætur lífið, 41 árs.
1940 Þýski flugherinn lætur
sprengjum rigna yfir
London í fyrsta sinn í
síðari heimstyrjöldinni.
Hundruð manna deyja og
fjöldi særist.
1973 Mósaíkmynd Gerðar
Helgadóttur á Tollstöðinni
í Reykjavík afhjúpuð.
Á þessum degi árið 1926 lokuðu kvikmyndaverin í
Hollywood til heiðurs Rudolph Valentino, sem var jarð-
aður sama dag.
Valentino lést eftir að hafa farið í aðgerð vegna maga-
sárs í ágústmánuði.
Hann fæddist á Ítalíu en fluttist til Bandaríkjanna
sem ungur maður. Fljótt fór að bera á honum í hvíta
tjaldinu og lék hann mikla hjartaknúsara í myndum á
borð við The Sheik (1921), Blood and Sand (1922) og
Monsieur Beaucaire (1924). Var kvenþjóðin gjörsamlega
dolfallin af fegurð og frammistöðu Valentino í þessum
myndum.
Eins og gefur að skilja varð mikil þjóðarsorg í Banda-
ríkjunum og á Ítalíu þegar Valentino lést, aðeins 32 ára.
Safnaðist hópur aðdáenda saman til að sjá lík hans er
það var haft til sýnis skömmu eftir andlátið.
ÞETTA GERÐIST 7. SEPTEMBER 1926
Kvikmyndaver loka
til heiðurs Valentino
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI