Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 88

Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 88
52 7. september 2006 FIMMTUDAGUR MIÐAVERÐ 1000 KR. HÚSIÐ OPNAR KL. 23 ALDURSTAKMARK 20 ÁRA ÞAR SEM ÍSLENDINGUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA NÁNARI UPPLÝSINGAR SKÍTA MÓRALL LAUGARD. 9. SEPT. 2006 FÓTBOLTI Um liðna helgi átti sér stað atvik sem reyndist mjög umdeilt og kallaði á hörð við- brögð úr víðum áttum. Í lokaleik Landsbankadeildar kvenna átti Valur að mæta FH en hlutskipti liðanna voru mjög ólík í sumar. Valur vann alla leiki nema einn og FH tapaði öllum nema einum. Markatala liðanna eftir því var afar skrautleg. FH reyndist vera undirmannað þegar leikurinn átti að hefjast og mætti því ekki til leiks. Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, sagði í samtali við Frétta- blaðið að hann harmaði atvikið sem slíkt en að fólk missti sjónar af raunverulega vandamálinu. „Allir sem fylgjast með kvenna- boltanum hljóta að hafa getað sagt sjálfum sér að eitthvað í þessa veruna myndi gerast,“ sagði Jón. „Á vormánuðunum vaknaði sú spurning hvort að við ættum að draga okkur úr keppni, eins og ÍBV og ÍA hafa til að mynda gert og hefur ekki verið fjallað mikið um. En meistaraflokksráð kvenna taldi sig hafa vilyrði fyrir því að fá leikmenn lánaða úr öðrum liðum sem gekk síðan ekki eftir. Þá gerðist það einnig að allir leik- menn nema einn sem voru á meist- araflokksaldri fóru til annarra liða en við fengum tvo erlenda leik- menn á móti. En svo tapaði liðið gríðarlega mikið og bekkurinn var mjög þunnur. Leikmenn voru lang- flestir úr yngri flokkum sem þeir léku líka með allt sumarið og því gríðarlegt álag á þeim, sem er ekki til uppbyggingar.“ Á leikdag kom í ljós að einungis sex leikmenn voru leikfærir en aðrir voru meiddir. „Ég veit að aðalmálið hjá Val var orðið hversu stórt þær myndu vinna, hvað sumar gætu skorað mörg mörk og svo framvegis. Kannski að ef aðstæður hefðu verið öðruvísi hefðu leikmenn getað harkað meiðslin af sér en um er að ræða unga leikmenn, undir miklu álagi sem höfðu upplifað stress og van- líðan vegna þessa ástands.“ Jón Rúnar gagnrýnir þá sem hafa gagnrýnt félagið eftir atvikið og reyndar fleiri. „Hvar sem er komið niður, í ræðu eða riti, eru allir að tala um að efla kvenna- knattspyrnu. Það hefur enginn fundið þörf hjá sér til að laga ástandið. Margir virðast halda að um sé að ræða lélega stjórnun innan FH en það er ekki vandinn. Menn eru einnig að ráðast á þess- ar ungu stelpur sem eru hetjur þessa sumars. Auðvitað gefast þær upp, sem brýst út í meiðslum. Það er enginn sem sest niður og spyr hvað sé að.“ Hann segir að málum sé alveg eins háttað fyrir drengi og stúlkur frá 7. flokk upp í 3. flokk. „Í 2. flokki eru engin æfingagjöld hjá leik- mönnum eins og víðar og þá þurfa að koma tekjur á móti. Hundrað prósent okkar tekna koma úr karla- boltanum. Ef helmingur þeirra yrði settur í kvennaflokka þyrftum við að skera niður hjá körlunum, sem yrði til þess að tekjur myndu minnka. Það myndi enda með því að karlaliðið myndi falla í 1. deildina og við hefðum engar tekjur. Svona er ekki hægt að hugsa.“ Jón Rúnar segir því að félagið vilji fyrst og fremst hugsa um uppbyggingarstarfið, sem sé gott hjá FH, bæði hjá drengjum og stúlkum. „Allt hefur sinn tíma og yrði það tómt mál að byrja ofan frá, að búa til meistaraflokk sem kostar mikinn pening. Ég vil meina að ef sterku liðin halda áfram á þeirri braut sem þær eru nú, að lokka til sín alla sterkustu leik- mennina, munu þau á endanum tortíma sjálfum sér. Við munum halda áfram okkar uppbyggingar- starfi. Staðan á karlaliðinu var sams konar fyrir fimmtán árum en þá voru leikmenn að hverfa til annarra félaga.“ Sem fyrr segir, harmar Jón Rúnar hvað gerðist um helgina. „En þrátt fyrir allt var þetta atvik sem ætti að vekja fleiri en okkur til umhugsunar. Ef að grunnhugs- unin breytist ekki skipta aðrar breytingar engu máli.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is JÓN RÚNAR HALLDÓRSSON Segir atvikið með leik Vals og FH ekki koma á óvart. GENGUR HVORKI NÉ REKUR Þetta atvik er kannski dæmigert fyrir sumarið hjá hinu unga og óreynda liði FH, sem átti lítið erindi í efstu deild. Það hlaut að koma að þessu Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, segir að atvikið sem upp kom um helgina varð- andi leik Vals og FH í Landsbankadeild kvenna sé leiðinlegt en að það hafi verið fyrirsjáanlegt. Umræðan er á villigötum segir Jón Rúnar og hann vonar að atvikið veki fleiri til umhugsunar. HANDBOLTI Það er óhætt að segja að Alfreð Gíslason hefji feril sinn hjá Gummersbach með látum en í gærkvöld vann liðið sinn fjórða leik í röð. Það voru sjálfir meistararnir í Kiel sem lutu í lægra haldi fyrir Íslendingaliðinu í gær og það á heimavelli, 37-30, en Kiel leiddi með fjórum mörkum í leikhléi, 24-20. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Gum- mersbach og Róbert Gunnarsson eitt. - hbg Þýski handboltinn: Gummersbach lagði Kiel GUÐJÓN VALUR Fór mikinn gegn meist- urum Kiel í gær. Undankeppni EM: A-RIÐILL ASERBAIDSJAN-KASAKSTAN 1-1 ARMENÍA-BELGÍA 0-1 Daniel Van Buyten (40.). FINNLAND-PORTÚGAL 1-1 Jonatan Johansson (21.) - Nuno Gomes (41.). PÓLLAND-SERBÍA 1-1 B-RIÐILL: ÚKRAÍNA-GEORGÍA 3-2 LITHÁEN-SKOTLAND 1-2 FRAKKLAND-ÍTALÍA 3-1 Govou 2, Henry - Gilardino. SKOTLAND 2 2 0 0 8:1 6 FRAKKLAND 2 2 0 0 6:1 6 GEORGÍA 3 1 0 2 8:6 3 ÚKRAÍNA 1 1 0 0 3:2 3 LITHÁEN 2 0 1 1 2:3 1 ÍTALÍA 2 0 1 1 2:4 1 FÆREYJAR 2 0 0 2 0:12 0 C-RIÐILL: NOREGUR-MOLDAVÍA 2-0 TYRKLAND-MALTA 2-0 BOSNÍA-UNGVERJALAND 1-3 D-RIÐILL: SLÓVAKÍA-TÉKKLAND 0-3 - Sionko 2, Koller. SAN MARÍNÓ-ÞÝSKALAND 0-13 - Podolski 4, Klose 2, Schweinsteiger 2, Hitzlsper- ger 2, Ballack, Friedrich, Schneider, víti. ÞÝSKALAND 2 2 0 0 14:0 6 TÉKKLAND 2 2 0 0 5:1 6 SLÓVAKÍA 2 1 0 1 6:4 3 WALES 1 0 0 1 1:2 0 ÍRLAND 1 0 0 1 0:1 0 KÝPUR 1 0 0 1 1:6 0 SAN MARÍNÓ 1 0 0 1 0:13 0 E-RIÐILL: RÚSSLAND-KRÓATÍA 0-0 ÍSRAEL-ANDORRA 4-1 MAKEDÓNÍA-ENGLAND 0-1 - Peter Crouch. STAÐAN: ENGLAND 2 2 0 0 6:0 6 ÍSRAEL 2 2 0 0 5:1 6 MAKEDÓNÍA 2 1 0 1 1:1 3 KRÓATÍA 1 0 1 0 0:0 1 RÚSSLAND 1 0 1 0 0:0 1 EISTLAND 2 0 0 2 0:2 0 ANDORRA 2 0 0 2 1:9 0 ÚRSLIT GÆRDAGSINS Undankeppni EM: F-RIÐILL: SVÍÞJÓÐ-LIECHTESTEIN 3-1 Marcus Allback 2, Rosenberg - Frick. ÍSLAND-DANMÖRK 0-2 - Rommedahl, Tomasson. NORÐUR ÍRLAND-SPÁNN 3-2 David Healy 3 - Xavi, David Villa STAÐAN: SVÍÞJÓÐ 2 2 0 0 4:1 6 DANMÖRK 1 1 0 0 2:0 3 ÍSLAND 2 1 0 1 3:2 3 SPÁNN 2 1 0 1 6:3 3 N.ÍRLAND 2 1 0 1 3:5 3 LETTLAND 1 0 0 1 0:1 0 LICHTENST 2 0 0 2 1:7 0 G-RIÐILL: BÚLGARÍA-SLÓVENÍA 3-0 ALBANÍA-RÚMENÍA 0-2 HOLLAND-HVÍTA RÚSSLAND 3-0 Robin Van Persie 2, Dirk Kuyt. ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI „Það er alltaf erfitt að spila á Íslandi,“ sagði Morten Olsen, þjálfari Dana, eftir leikinn. „Við stjórnuðum leiknum vel í fyrri hálfleik og lékum þá oft góðan fótbolta. Síðari hálfleikur- inn var of mikil barátta á kostnað fótboltans. Við drápum leikinn í fyrri hálfleik,“ bætti Olsen við. Thomas Gravesen var mjög ánægður með sigurinn og spila- mennsku danska liðsins í fyrri hálfleik. „Við erum mjög ánægðir. Við bjuggumst við erfiðum leik og við fengum hann. Íslenska liðið lék með hjartanu,“ sagði Grave- sen eftir leikinn í gær. „Við vorum örlítið heppnir og skoruðum fyrra markið snemma. Það gerði íslenska liðið stressað svo það kom framar á völlinn sem auð- veldaði okkur að sækja hratt og skora seinna markið úr hraðaupp- hlaupi,“ sagði Gravesen. - dsd Danirnir Morten Olsen og Thomas Gravesen: Þetta var mjög erfiður leikur THOMAS GRAVESEN Átti góðan leik í gær. Hann sagði að leikurinn hefði verið mjög erfiður þrátt fyrir að Danir hefðu haft góð tök á honum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Óvænt úrslit litu dags- ins ljós í riðli okkar Íslendinga í gær þegar Norður-Írar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Spánverja að velli 3-2. David Healy skoraði öll mörk Norður-Íra í leiknum sem lentu tvisvar undir. Xavi og David Villa skoruðu mörk Spán- verja. Í þriðja leik riðilsins unnu Svíar 3-1 sigur á Liechtenstein í Svíþjóð. Marcus Allbak skoraði tvö mörk og Markus Rosenberg skoraði eitt. Englendingar fóru til Make- dóníu og sigruðu 1-0 með marki frá Peter Crouch, en hann hefur verið ótrúlega lunkinn við að skora fyrir þá ensku. Stórleikur gærkvöldsins var án efa leikur Frakka og Ítala, en þessar þjóðir mættust sem kunn- ugt er í úrslitaleik HM í sumar. Frakkar náðu fram hefndum í gær og sigruðu 3-1 með tveimur mörkum frá Sidney Govou og einu frá Thierry Henry. Mark Ítala í leiknum skoraði Alberto Gilardino. - dsd Margir leikir voru í Evrópukeppni landsliða í gær: N-Írar lögðu Spánverja EKKERT GENGUR Raul og félagar kom- ust lítt áleiðis gegn Norður-Írum í gær og töpuðu 3-2. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.