Fréttablaðið - 07.09.2006, Side 95

Fréttablaðið - 07.09.2006, Side 95
Patricia missti báða foreldra sína úr alnæmi árið 2001 og hefur búið hjá móðursystur sinni síðan. Hún er frekar feimin, en finnst gaman að vera í leikskólanum með öllum hinum börnunum. Patricia ætlar að verða kennari þegar hún verður stór. Landssöfnun Rauða kross Íslands, 9. september 2006. Á laugardaginn stendur Rauði kross Íslands fyrir landssöfnun undir kjörorðunum „Göngum til góðs”. Þúsundir sjálfboðaliða munu ganga í öll hús á landinu og safna framlögum. Söfnunin er tileinkuð börnum í sunnanverðri Afríku sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Söfnunarféð verður nýtt óskert til að bæta líf þeirra. Freyja Sól gefur mömmu sinni stundum bleikan koss á morgnana. Henni finnst best að vera heima að púsla eða leika við Sigrúnu Freyju, vinkonu sína, og hún ætlar að verða hafmeyja þegar hún verður stór. Freyja Sól og mamma hennar ætla að ganga til góðs á laugardaginn. Rauði krossinn biður um aðstoð þína á laugardaginn. Gakktu til góðs Húsin á landinu eru mörg – því þarf marga sjálfboðaliða. Þú getur gerst sjálfboðaliði með því að skrá þig á www.redcross.is eða í síma 570 4000. kostar birtingu auglýsingarinnar Patricia Katalwa, 6 áraFreyja Sól Kjartansdóttir, 3 ára F í t o n / S Í A F I 0 1 6 1 7 7

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.