Fréttablaðið - 07.09.2006, Síða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
����������
Ég trúi á Guð. Ég mæti oft því viðhorfi að það sé rangt af mér.
Allir virðast hafa skoðun, þeir sem
trúa og líka þeir sem trúa ekki.
Menn ganga jafnvel svo langt að
fullyrða að Guð sé þetta og hitt, sé
til og ekki til.
ÁÐUR en við byrjum að tala um
Guð skulum við átta okkur á því að
við erum í rauninni ekki að tala um
Guð heldur aðeins skilning okkar
sjálfra á honum og eða út frá kenni-
setningum ákveðinna trúarhópa
eða trúarbragða.
UMRÆÐAN um Guð er í raun
ekki ólík umræðunni um vitsmuna-
líf á öðrum hnöttum. Flestir hafa
einhverja skoðun á því. Þeir annað-
hvort trúa á það eða ekki. Og hvort
sem menn eru með eða á móti þá
eru hóparnir ekki samstæðir eða
líkir. Þeir sem trúa á tilvist vits-
munavera eru ekki allir eins. Það
er fjöldi vísindamanna í þeim hópi.
Og svo er fólk í Bandaríkjunum
sem trúir á fljúgandi furðuhluti.
HVAÐ er Guð? Er hann ofurgáfuð
geimvera eða kannski hópur af
geimverum sem hafa hannað
alheiminn? Er hann líkamslaus
andleg vera, með sjálfstæð mark-
mið? Er hann það sem við í daglegu
tali köllum líf? Er Guð ylurinn og
birtan í ljósinu? Er Tao Guð? Er
Guð hið óræða „góða“ í okkur? Er
hann kærleikurinn? Er Guð tilbú-
inn persónugervingur hugmynda
okkar um hina fullkomnu veru?
ÞAÐ er ekki hægt að segja að Guð
sé ekki til. Það er beinlínis heimskt,
vegna þess að það kemur frá sjónar-
hóli þröngsýni, sem ekki sér heild-
armyndina alla. Þar að auki er það
hrokafullt og merki um vanþroska
þess sem ekki getur sett sig í spor
annarra, skortur á óhlutdrægri og
skapandi hugsun. Ef Guð er ekki til
þá er listin ekki heldur til.
HVAÐ er að því að trúa á Guð? Er
það barnalegt? Er það tilgangs-
laust? Hvað er þá tilgangur? Er
einhver tilgangur með leik? Ef við
drepum Guð þá drepum við svo
margt annað sem við vissum ekki
að væri hann. Er kærleiksverk til-
gangslaust? Er vinátta aðeins efna-
fræðilegt ferli í heila mínum? Mér
finnst það grunnhyggin og óáhuga-
verð afstaða.
FYRIR mér er Guð kærleikurinn,
einhvers konar æðri skilningur á
kærleika, þ.e.a.s. hinn æðsti kær-
leikur, sem er algjörlega sannur og
þá um leið algjör sannleikur. Mín
trú snýst um að reyna að tileinka
mér þetta eins vel og ég get. Hvar
ég geri það, hvernig og með hverj-
um er í raun aukaatriði. Tilgangur-
inn helgar meðalið. Guð er sköp-
un.
Gvuð
Nína og Valdimar skráðu sig í Og1 og spara þannig tugþúsundir króna á ári í símakostnað. Þau hjónin njóta
þess meðal annars að hringja í alla heimasíma og eitt heimasímanúmer í útlöndum fyrir 0 kr. Þau hringja líka
í GSM vini sína fyrir 0 kr., fá meiri hraða á Netinu fyrir lægra verð og afslátt af Sýn.
Og1 er fyrir heimili sem hafa allt hjá Og Vodafone: GSM, heimasíma og ADSL.
Þú getur líka byrjað að spara með því að ganga frá málinu strax í dag.
Komdu í næstu verslun Og Vodafone eða til umboðsmanns, hringdu í þjónustuver 1414 eða smelltu þér á
www.ogvodafone.is til að fá nánari upplýsingar.
20.000
heimili spara tugþúsundir
króna!