Fréttablaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 60
16. október 2006 MÁNUDAGUR40
Blómakassi
Platio
604024
Eingöngu í Grafarholti
RÝMINGAR
SALA
Girðingareining Scandik
603180
Viti m/snúningsljósi
L 50 x B 50 x H 120 sm.
604190
9.990
17.099
Vindmylla
L 105 x B 79 x H 137 sm
604185
Skjólgirðing Sól margar stærðir
603115//20/25/30/35
14.900
25.176
Furu hringborð
Þvermál 220 sm.
601565
Blómakassi m/fléttu
60x60x185 sm
604020
Allt á að seljast!
70%
afsláttur
á völdum timburvörum
990
3.990
10.903
65%
afsláttur
3.990
10.293 4.990
12.575
Nýtt met hefur verið slegið
í útgáfu byggingarleyfa hjá
Reykjanesbæ.
Alls hafa 133 leyfi fyrir nýjum
íbúðum verið gefin út í þessum
mánuði hjá Reykjanesbæ. Þetta er
margfalt á við það sem áður hefur
þekkst hjá bæjarfélaginu.
Í sama mánuði í fyrra voru
útgefin byggingarleyfi tólf tals-
ins. Flest leyfi voru gefin út í maí
og desembermánuði í fyrra, þegar
98 byggingarleyfi voru veitt í
hvorum mánuði. Það sem af er
þessu ári eru útgefin byggingar-
leyfi orðin 467 en voru 486 allt
árið í fyrra. Því má reikna með að
heildarfjöldi byggingarleyfa verði
jafnvel meiri í ár.
Frétt fengin af www.vf.is
- jóa
Met í útgáfu
leyfa
Reykjanesbær hefur gefið út 133
byggingarleyfi það sem af er þessum
mánuði.
Árið 1886 gaf
Magnús Stephensen
út tilskipun um að
sameina Mosfells-
og Gufunessókn-
irnar og reisa nýja
kirkju á Lágafelli.
Var farið eftir þess-
um tilmælum og
vorið 1889 var nýja
kirkjan, timburkirkja
á steingrunni, vígð.
Síðan þá hefur
kirkjan undirgengist
ýmsar endurbætur, en þær náðu hámarki 1956 þegar húsið var lengt
um 3 metra. Það samsvarar lengd kórsins. Auk þess var skrúðhúsi bætt
við hana norður úr kórnum. Nýjum bekkjum, sem nú hafa verið bólstr-
aðir, var komið fyrir þar inni, og kirkjan endurvígð að framkvæmdum
loknum. Viðbygging var tekin í notkun á aldarafmæli kirkjunnar.
(Heimild www.lagafellskirkja.is)
BYGGINGIN: LÁGAFELLSKIRKJA
Auðunn Blöndal hefur verið að gera það gott með
sjónvarpsþætti sínum Tekinn. Hann er ekki í vafa um hvernig
draumahúsið hans ætti að vera. „Ég vil búa inni í risastórri
pítsu,“ segir Auðunn hróðugur. Hann er þó fljótur að draga í
land og segir að konan sé ekki hrifin af þeim ráðahag og því
gangi það ekki.
„Nei, ég vildi búa einhvers staðar þar sem er strönd. Húsið
má vera stórt en bara ef húshjálp fylgir. Ég væli nógu mikið yfir
því að þrífa þessa áttatíu fermetra sem ég er í núna þannig að
það myndi aldrei ganga að þrífa risahús,“ játar Auðunn.
Þar sem draumahúsið er ekki bundið böndum
raunveruleikans spyr blaðamaður hvort hann vildi ekki
hafa kvikmyndaver í bakgarðinum. „Nei, ég myndi miklu
heldur vilja hafa Old Trafford, heimavöll Manchester United,
í bakgarðinum. Það gengur kannski ekki að hafa völlinn
og strönd en þar sem þetta væri í hinum fullkomna heimi
þá stend ég við það.“ Það myndi án efa gleðja konu hans
mjög mikið að hafa rúmlega 60 þúsund fótboltabullur á
svalahurðinni.
DRAUMAHÚSIÐ MITT: AUÐUNN BLÖNDAL ÞÁTTASTJÓRNANDI
Old Trafford eða pizza
SELDAR EIGNIR Á
AKUREYRI*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
20
15
10
5
0
FJÖLDI
25/8-
31/8
6
1/9-
7/9
14
8/9-
14/9
5
15/9-
21/9
3
22/9-
28/9
5
29/9-
5/10
5