Fréttablaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 16. október 2006 15 RÁÐNING Sigurbjörg Sigurgeirs- dóttir, einn umsækjenda um starf sviðsstjóra velferðarsviðs Reykja- víkurborgar, hefur lagt fram kvört- un til umboðsmanns Alþingis. Þar er þess óskað að hann láti fara fram mat á því hvort borgarráð hafi farið að settum reglum þegar Stella K. Víðisdóttir var ráðin í starfið. Dögg Pálsdóttir, lögmaður Sigur- bjargar, segir umbjóðanda sinn hafa ákveðið að nota sér þann rétt sem hún hefur til að skjóta málinu til umboðsmanns. „Þar til niður- staða hans liggur fyrir er málið í biðstöðu.“ Sigurbjörg var ein af fimm umsækjendum um starfið sem boð- aðir voru í viðtal en hún telur að við ráðningu Stellu hafi verið gengið framhjá sér sem hæfari umsækj- anda. Í fréttatilkynningu frá Sigur- björgu kemur fram að hún dragi í efa að hæfasti umsækjandinn hafi verið ráðinn í starfið þegar náms- og starfsferill Stellu og hennar sé borin saman. Ráðning Stellu olli töluverðu fjaðrafoki í síðasta mánuði og sendi Stéttarfélag íslenskra félagsráð- gjafa frá sér yfirlýsingu vegna ráðningarinnar. Stéttarfélagið telur óviðunandi að gengið sé framhjá sérfræðiþekkingu á sviði velferðar- mála við ráðningu sviðsstjóra og skoraði á yfirmann velferðarmála í Reykjavík að endurskoða ráðning- una. - hs Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir er ósátt við ráðningu nýs sviðsstjóra velferðarsviðs: Kvörtun til umboðsmanns Alþingis VELFERÐARSVIÐ REYKJAVÍKURBORGAR Einn umsækjenda um starf sviðsstjóra velferðar- sviðs hefur lagt fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis. LÖGREGLUMÁL Maður á þrítugs- aldri var handtekinn á skemmti- stað á Akureyri eftir að lögregla fann fíkniefni í fórum hans. Við leit á manninum fundust um átta grömm af hvítu dufti sem talið er vera amfetamín, auk tveggja e- taflna. Lögregla framkvæmdi í kjölfarið leit á heimili mannsins og fundust þá tveir hnífar og ólögleg loftbyssa. Maðurinn gekkst greiðlega við brotum sínum og var sleppt úr haldi að loknum yfirheyrslum. Talið er að efnin hafi verið ætluð til einkaneyslu og telst málið að fullu upplýst. - þsj Maður tekinn með fíkniefni: Með vopn á heimili sínu STJÓRNMÁL Bjarni Gaukur Þór- mundsson, íþróttakennari í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 7.-8. sæti í prófkjöri Samfylkingar- innar í Suðvestur- kjördæmi fyrir alþingiskosning- arnar næsta vor. Bjarni Gaukur hefur starfað mikið innan íþróttahreyfingarinnar og fyrir tilstuðlan hans var komið af stað yngri flokkum í körfuknatt- leiksdeild Breiðabliks. Þá situr hann í stjórn Körfuknattleikssam- bands Íslands. Bjarni er ritari Samfylkingarinnar í Kópavogi og var í kosningastjórn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar síðastliðið vor. - hs Prófkjör Samfylkingarinnar: Gefur kost á sér í 7. til 8. sæti BJARNI GAUKUR ÞÓRMUNDSSON STJÓRNMÁL Júlíus Helgi Einars- son hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-4. sæti á framboðslista Samfylkingar- innar í Suður- kjördæmi fyrir komandi alþingiskosn- ingar. Júlíus býr í Sandgerði ásamt fjölskyldu sinni, hefur verið í stjórn Samfylkingarinnar í bænum og situr nú í byggingarnefnd. Júlíus er múrarameistari að mennt en hefur einnig lokið námi frá Tölvuháskóla Íslands. Hann starfaði sem skrifstofustjóri hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis en rekur nú eigið fyrirtæki á sviði upplýs- ingatækni. - hs Prófkjör Samfylkingarinnar: Gefur kost á sér í 2. til 4. sæti JÚLÍUS HELGI EINARSSON STJÓRNMÁL Sandra Franks stjórnmálafræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-4. sæti í prófkjöri Samfylkingar- innar í Suðvestur- kjördæmi. Sandra hefur setið á þingi sem varaþingmaður þar sem hún beitti sér einkum fyrir skattfrelsi líknarfélaga, neytendamálum og aðgerðum gegn barnaklámi á netinu. Sandra lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá HÍ og stundar nú meistaranám í lögfræði við Háskólann í Reykja- vik. Helstu baráttuefni Söndru eru neytendamál og málefni langveikra barna. - hs Prófkjör Samfylkingarinnar: Sækist eftir 3. til 4. sæti SANDRA FRANKS SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 3 45 24 10 /2 00 6 Fæst nú í Útilif Smáralind
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.