Fréttablaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 78
 16. október 2006 MÁNUDAGUR38 HRÓSIÐ … 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2 ákefð 6 hætta 8 stefna 9 veitt eftirför 11 guð 12 ferðalag 14 góð lykt 16 verslun 17 sæ 18 utan 20 frá 21 vangi. LÓÐRÉTT 1 þrár 3 hljóta 4 pressa 5 óhreinka 7 ásækni 10 að 13 skilaboð 15 skott 16 tjara 19 ónefndur. LAUSN Kvikmyndin Börn fær mjög góða dóma hjá hinu virta kvikmynda- tímariti Variety en það hefur oft verið nefnt biblía kvikmyndagerðar- mannsins. Gagnrýnandinn Gunnar Rehlin er mjög ánægður með svart/ hvíta litinn og segir Reykjavík aldrei hafa verið sýnda á þennan hátt. Þegar Fréttablaðið hafði uppi á Ragnari Bragasyni, leikstjóra mynd- arinnar, hafði hann vitað af þessum dómi í þó nokkurn tíma en sagðist vera ánægður að fá hann loksins birtan. „Neikvæðir dómar í Variety hafa oft haft slæm áhrif á sölu mynda og því er fínt að þessi dómur er frá,“ segir Ragnar, sem sat á flug- vellinum í Frankfurt og beið eftir flugvél til Suður-Kóreu þar sem Börn verða sýnd á einni stærstu kvikmyndahátíð Asíu í Kuzam. „Ell- efu tíma flug, hvorki meira né minna. Ég verð bara að drekka nokkra bjóra, lesa tvær bækur og sem betur fer á ég auðvelt með að sofa í flugvélum,“ segir Ragnar en Börn verða sýnd þrisvar á hátíð- inni. Síðustu forvöð eru nú fyrir Íslendinga að sjá þessa rómuðu kvikmynd í bíó og myndin verður ekki fáanleg á myndbandaleigum. Ragnar segir að þau hafi ákveðið að sleppa þeim millilið en þess í stað komi út glæsilegur DVD-pakki með öllu tilheyrandi. „Börn og Fullorðnir verða báðar gefnar út í hefðbundn- um DVD-útgáfum en svo ætlum við að búa til stóran pakka með áður óséðum senum, viðtölum og þar fram eftir götunum,“ útskýrir Ragn- ar en hann segist hafa undir hönd- unum fimmtíu mínútur af efni sem sé engu síðra en það sem birtist í myndinni. „Þessar senur eru marg- ar hverjar þær flottustu sem við gerðum en hentuðu einfaldlega ekki söguþræðinum,“ segir leikstjórinn. Börn fá góða dóma í Variety RAGNAR BRAGASON Börn og Fullorðnir verða hvor- ug fáanleg á myndbandaleigum en verða gefnar út í veglegum DVD-pakka. BÖRN Fengu prýðilega dóma í hinu virta kvikmyndatímariti Variety. Kvikmyndafyrirtækið True North vinnur nú hörðum höndum að því að flokka það mikla magn myndefnis sem náðist á tónleika- ferð Sigur Rósar um landið nú í sumar. Um sextíu manns koma að gerð myndarinnar og segir Finn- ur Jóhannsson hjá True North að verkið þokist í rétta átt. „Þetta gengur mjög vel og er allt í góðri vinnslu,“ segir Finnur og stað- festir jafnframt að mikill áhugi sé erlendis á þessari mynd. Tón- leikaferð hljómsveitarinnar vakti verðskuldaða athygi enda spilaði sveitin á stöðum þar sem jafnan hefur ekki verið mikið um tón- leikahald. Finnur vildi hins vegar ekki upplýsa frá hvaða löndum áhuginn væri mestur og sagði málið einfaldlega ekki komið á það stig. Finnur staðfesti hins vegar að heimildarmyndin myndi rata á hvíta tjaldið, sem hlýtur að telj- ast mikið gleðiefni, og verður eflaust mögnuð sjón að sjá hljóm- sveitina spila á stöðum eins og Ásbyrgi eða á Miklatúni í kvik- myndahúsum borgarinnar. Finn- ur vildi ekkert gefa upp um kostnað á myndinni en miðað við þann fjölda sem vinnur að gerð hennar og umfangið má reikna með að kostnaðurinn sé í kring- um áttatíu milljónir. - fgg Myndin um Sigur Rós á hvíta tjaldið MIKIL EFTIRVÆNTING Kvikmyndarinnar um Sigur Rós er beðið með mikilli eftirvænt- ingu en hún verður væntanlega sýnd í öllum betri kvikmyndahúsum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK LÁRÉTT: 2 ofsa, 6 vá, 8 átt, 9 elt, 11 ra, 12 reisa, 14 ilmur, 16 bt, 17 sjó, 18 inn, 20 af, 21 kinn. LÓÐRÉTT: 1 þver, 3 fá, 4 strauja, 5 ata, 7 áleitni, 10 til, 13 sms, 15 rófa, 16 bik, 19 nn. Enn bíða menn eftir því, innan sem utan útvarpshúss, að Páll Magnússon útvarpsstjóri láti til sín taka. Það sem af er hefur Páll verið með ólíkindum atkvæðalítill og hafa til dæmis þeir sem vinna við Rás 1 og 2 varla séð manninn. Víst er að til dæmis sjónvarpsþulurnar, sem eru barn síns tíma, eru ánægðar með aðgerðalítinn Pál því þær hljóta að vera í hættu í væntanlegum niðurskurði. Hugsanlega heldur Páll að sér höndum og bíður afgreiðslu frumvarps um RÚV á þingi. Einn er þó sá þáttur sem hann lætur sig miklu varða og er það Kastljósið sem nýtur fulltingis Páls, verndar hans og athygli. Ferill Heiðars Jónssonar snyrtis sem veðurfréttamaður á NFS varð ekki langur. Heiðar var nýmættur til starfa þegar stöðinni var lokað og því varð hann að finna sér nýjan starfsvettvang. DV greinir frá því fyrir helgi að hann hafi ákveðið að róa á algerlega ný mið, hafi ráðið sig til starfa við vefsíðugerð hjá hugbúnaðarfyrirtæki. Heiðar fékkst hins vegar ekki til að tjá sig um eðli starfsins eða hjá hvaða fyrirtæki hann starfar. Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal sló rækilega í gegn í liðinni viku með fyrsta þættinum af Tekinn á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir var fyrsta fórnarlambið og á næstu vikum munu fjölmargir þekktir einstaklingar verða teknir fyrir. Sú saga gengur nú manna á milli að þvert á yfirlýsingar stjórnanda þáttarins hafi hann síður en svo lokið sér af við að hrekkja fræga fólkið. Enn eigi eftir að taka upp að minnsta kosti einn þátt svo víst má telja að þjóðþekktir einstaklingar verði vel á varðbergi á næstunni. - jbg/hdm FRÉTTIR AF FÓLKI ... fær Stefán Karl Stefánsson sem kemur fram í nýrri stór- mynd með Owen Wilson og Ben Stiller. Valgeir Sigurðsson dvaldist í Malí á vegum Damons Albarn í fimm daga í lok september, en hann var einn af tuttugu manna hópi sem Albarn bauð til landsins til að kynn- ast tónlistarhefðum þess. Ferðin var fyrsti liðurinn í verkefni sem ber heitið Africa Express og miðar að því að færa saman tónlistarfólk frá Malí og Vesturlöndum, en Damon Albarn hefur verið ötull talsmaður malískrar tónlistar síðan hann heimsótti landið á vegum góðgerðarsamtakanna Oxfam fyrir sex árum. „Mér var boðið með í gegnum umboðsmann úti í London sem ég er í samstarfi við. Hann vann með Damon Albarn við að skipuleggja þetta,“ sagði Valgeir, en með honum í för var fríður flokkur tón- listarmanna, svo sem Norman Cook, Martha Wainwright og Scratch úr The Roots, ásamt skipu- leggjendum og öðrum sem eru viðriðnir tónlistarheiminn. Valgeir er sjálfur upptökustjóri og hefur meðal annars unnið með Björk og Will Oldham. Hópurinn sótti heim ýmsar stór- stjörnur malískrar tónlistar. „Þetta voru einkatónleikar sem voru sett- ir upp gagngert fyrir okkur,“ sagði Valgeir. „Bassekou Koyaté bauð okkur inn í stofu til sín og Salif Keita spilaði fyrir okkur á klúbbn- um sínum. Svo skiptist fólk á að grípa í hljóðfæri með þeim,“ sagði Valgeir, en þeir Koyaté og Keita eru einir færustu tónlistarmenn Malí. Valgeir segir þó ferð hópsins í þorpið Kela standa upp úr, en það er höfuðstöðvar svokallaðs griot. „Í þessu þorpi hefur griot-tónlistar- mannahefðin lifað mann fram af manni í sex hundruð ár,“ sagði Val- geir. „Þetta var ótrúlega merkilegt og þorpið allt mjög frumstætt. Þó að Malí sé eitt af fátækustu lönd- um heims er mjög jákvæð orka og mikil gleði í fólkinu, við fengum alveg ofboðslega hlýjar móttökur,“ sagði hann. Valgeir segir hópinn hafa verið sammála um að ferðin hefði verið framar öllum vonum. „Maður vissi svo sem ekki hverju maður átti von á. En þetta hreyfði allt mjög mikið við manni,“ sagði hann. „Ég var búinn að afgreiða svona heims- tónlist fyrir nokkuð mörgum árum, en þessi ferð gaf henni dálítið nýtt líf. Þetta var allt öðruvísi í svona mikilli nálægð,“ sagði Valgeir. Damon Albarn fól Valgeiri hlut- verk upptökustjóra í ferðinni og hann tók upp alla tónleika sem hóp- urinn sótti. „Ég er nú ekki búinn að hlusta í gegnum þetta, og þetta mið- aði svo sem ekkert að útgáfu,“ sagði hann. „Það gæti vel verið eitthvað þarna sem er vert að gefa út, en ég veit ekkert hvað verður,“ sagði Val- geir, en kvikmyndatökulið var einn- ig með í för svo von gæti verið á heimildarmynd um ævin- týrið. sunna@frettabladid.is VALGEIR SIGURÐSSON: FÓR TIL MALÍ MEÐ DAMON ALBARN Mikil gleði í fátæku landi Í ÞORPINU KELA Valgeir segir móttökur heimamanna hafa verið ótrúlegar, en sum barnanna höfðu aldrei séð hvítan mann áður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGEIR SIGURÐSSON VALGEIR UPPTÖKUSTJÓRI Var falið það verkefni á fyrsta degi ferðarinnar að taka upp tónlistarviðburðina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DAMON ALBARN Heillaðist af malískri tónlist fyrir sex árum og hefur verið ötull við að kynna hana síðan. �������� ��� �� ��� ��� ��� ��� ��� ��� ��� ������ ���������� �� �� �� �� � �� �� �� �� � ���������� ���������� ������������������� ���������� �������������������������� �� ���������� ���������� �������������� ������ ���������� �������������������������� ������������ �������������� �������������� ������� ���������� ����
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.