Fréttablaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 65
MÁNUDAGUR 16. október 2006 25
Allt er í hers höndum í breska X-
Factor þættinum en eins og Frétta-
blaðið greindi frá fyrir hefur
nokkrum keppendum verið vísað
frá vegna tengsla sinna við
umboðsskrifstofu í Liverpool.
Nú hafa framleiðendur þátt-
anna sett þátttakendum þau
ströngu skilyrði að ekki verði
leyfilegt að stunda kynlíf, fá
heimsóknir frá vinum og ætt-
ingjum né drekka áfengi það
sem eftir lifir þáttaraðarinnar.
Þá hefur því verið beint
til meðlima dómnefndarinnar að
þeir hætti öllum dónaskap í garð
hvers annars en slíkur hefur
munnsöfnuðurinn verið að
farið hefur um hina
siðvöndu Breta.
„Þetta er bara
alveg eins og regl-
urnar okkar,“ segir
Þór Freysson,
framleiðandi hins
íslenska X-Factor
þáttar, í gríni.
„Ég leyfi
mér nú
stórlega að efast um að við mynd-
um ganga svona langt,“ bætir
hann við. „Við reynum bara að
höfða til almennrar skynsemi,“
segir Þór. „Ráðleggjum fólki að
haga sér eins og fullorðið fólk,“
bætir hann við.
Hvað reglurnar um dómarana
varðar segir Þór að harkan þeirra
á milli sé nokkuð sem áhorfendur
megi búast við. „Þátturinn er ekki
síður innbyrðiskeppni þeirra á
milli,“ útskýrir Þór. „Þau eiga því
eftir að beita ýmsum brögðum til
að hampa sínum keppanda fram
fyrir hina,“ segir Þór og því aug-
ljóst að áhorfendur mega eiga von
á ýmsu í vetur.
- fgg
Allt brjálað hjá X-Factor
ENGAR SVÍVIRÐINGAR, TAKK Simon
Cowell hefur hingað til ekki þótt barn-
anna bestur þegar kemur að samskipt-
um en hefur nú verið beðinn um að
halda sig á mottunni.
VERÐUM EKKI JAFN HÖRÐ
Þór Freysson, framleið-
andi X-Factor á Íslandi,
segist ætla að höfða til
almennrar skynsemi
þátttakenda.
Tónlistarframleiðandinn Timba-
land hefur áhyggjur af því að nýj-
asta lag Justins Timberlake, Sexy-
back, fái karlmenn til að líða eins
og þeir séu samkynhneigðir. Lagið
hefur verið á toppi vinsældalista
út um allan heim og segir Timba-
land í viðtali við Blender tímaritið
að karlmenn eigi ekki að hræðast
það að hlusta á lagið og ef vel sé
hlustað sé þetta mjög kynþokka-
fullt lag.
Nýjasta plata Justins hefur
notið mikillar vinsælda og er
kappinn að hefja tónleikaferð um
Bandaríkjin á næstu dögum.
Ekki hræð-
ast lagið
JUSTIN TIMBERLAKE Vill að karlmenn
hlusti á lag sitt.
Söngvarinn þekkti Boy George
hefur lýst því yfir að hann vilji
fara að gera lög í samvinnu við
partýljónið Robbie Williams. Þetta
vill hann gera því hann heldur því
fram að síðasta plata Williams
hefði verið svo slök að hann þurfi
á hans kröftum að halda. „Ég veit
að hann vill og verður að fá mína
hjálp,“ segir Boy George en
stjarna hans reis hæst á níunda
áratugnum.
Boy George er með sinn eigin
þátt í bresku sjónvarpi og þar
hafur hann einnig gagnrýnt nýj-
ustu plötu Madonnu.
Leggur fram
hjálparhönd
BOY GEORGE Er sannfærður um að hann
geti hjálpað Robbie Williams að gera
góða tónlist.
Söngvarinn David Bowie hefur
bælt niður sögusagnir um að hann
ætli að verða fyrsti almenni borg-
arinn til að fara til tunglsins. Hann
segir sögusagnirnar úr lausu lofti
gripnar og búnar til sem auglýs-
ingabrella fyrir fyrirtækið Virgin,
sem er að undirbúa ferð fyrir
almenning til tunglsins árið 2008.
Leikurunum Sigourney Weaver
og William Shatner hefur báðum
verið boðið að taka þátt í þessari
för til tunglsins.
Ekki á leið
til tunglsins
DAVID BOWIE Segir að sögusagnirnar
um að hann sé á leið til tunglsins séu
auglýsingabrella
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954
Opið virka daga: 10-18 og laugardaga: 11-16
��������������
���� �����������������������������
����������������������������
�������������������������