Fréttablaðið - 31.10.2006, Síða 2
2 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Spurning dagSinS
Arnbjörg, er Sjálfstæðisflokk-
urinn karlaflokkur?
,,Nei, hann er flokkur beggja kynja
enda batnaði hlutur kvenna frá
síðasta prófkjöri.“
Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingiskona og
þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins,
tjáir sig um stöðu kvenna í flokknum
eftir að einungis þrjár konur lentu í tíu
efstu sætunum í prófkjöri flokksins í
Reykjavík, sem haldið var um helgina.
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
OPEL VECTRA COMFORT
Nýskr. 07.03 - Beinskiptur - Ekinn 82 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
1.350
.00.-
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík hefur í haldi mann sem grun-
aður er um að hafa nauðgað rúm-
lega tvítugri stúlku að morgni
sunnudags fyrir rúmri viku. Mað-
urinn var handtekinn á föstudag
og hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald fram á morgundag-
inn. Hann er af erlendu bergi brot-
inn en búsettur hér á landi.
Stúlkan sem kærði verknaðinn
hafði verið úti að skemmta sér í
miðborg Reykjavíkur, en þáði síðan
far hjá ókunnugum manni á Lauga-
veginum. Hún bar að þau hefðu
keyrt víða um og að endingu farið
út fyrir íbúðabyggð. Þar hafi
maðurinn ráðist á sig og nauðgað
sér. Eftir því sem næst verður
komið mun það hafa verið í nágrenni
Perlunnar. Stúlkan er erlend en er
búsett hér á landi tímabundið vegna
náms.
Enn leitar lögreglan í Reykjavík
fjögurra manna vegna tveggja
nauðgunarmála. Aðfaranótt 8.
október neyddu tveir menn tvítuga
stúlku inn í húsasund bak við
Menntaskólann í Reykjavík. Þar
hélt annar mannanna stúlkunni á
meðan hinn nauðgaði henni.
Snemma laugardagsmorguns helg-
ina þar áður réðust síðan tveir
menn að átján ára stúlku við Þjóð-
leikhúsið á Hverfisgötu og
nauðguðu henni báðir. - jss
pErLan Eftir því sem næst verður kom-
ist var það í nágrenni Perlunnar sem
maður nauðgaði erlendri stúlku.
Lögreglan í Reykjavík leitar enn fjögurra nauðgara:
Einn í haldi vegna nauðgunar
DóMsMÁL Karlmaður á fimmtugs-
aldri var í gær dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í tveggja ára
óskilorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa haft samfarir við þroska-
hefta konu á fertugsaldri í
september í fyrra.
Maðurinn var stuðningsfulltrúi
á hæfingarstöðinni Bjarkarási í
Reykjavík þegar atvikið átti sér
stað. Maðurinn beið á bíl fyrir
utan íþróttahús meðan konan var
á æfingu og fór svo með hana á
gistiheimili Hjálpræðishersins
þar sem hann hafði tvisvar sam-
farir við hana. Því næst ók hann
henni áleiðis heim til sín. Konan er
í sambúð með þroskaheftum
manni sem hafði gert foreldrum
hennar viðvart um að hún væri
ekki komin heim eftir æfinguna.
Faðir konunnar kærði mann-
inn, sem neitaði sök í fyrstu en
viðurkenndi síðar að hafa haft
samfarir við konuna. Það hefði þó
verið með fullu samþykki henn-
ar.
Í dóminum kom fram að konan
væri með vitsmunaþroska fimm
til sjö ára barns og að hún legði
traust sitt á þá sem hún þekkti.
Segir að maðurinn hafi brugðist
trúnaðartrausti konunnar og mis-
notað sér þroskahömlun hennar á
grófan hátt.
Refsivert er samkvæmt lögum
að notfæra sér andlega annmarka
einhvers til að hafa við hann sam-
ræði. Einnig er refsivert ef starfs-
menn tiltekinna stofnana hafa
samræði við vistmenn.
Var manninum gert að greiða
konunni 800.000 krónur í miska-
bætur og allan sakarkostnað. - sdg
giStihEimiLi hjáLpræðiShErSinS
Maðurinn fór með konuna á gistiheim-
ilið þar sem hann hafði samfarir við
hana í tvígang áður en hann keyrði hana
áleiðis heim til sín.
Fyrrverandi stuðningsfulltrúi á hæfingarstöð dæmdur í tveggja ára fangelsi:
Misnotaði þroskahefta konu
VInnUMARkAÐUR Undirritað verður
í dag samkomulag Einingar-Iðju
og Akureyrarbæjar um réttindi
og kjör þeirra sem starfa hjá
Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi.
Þetta er fyrsta samkomulag
sinnar tegundar sem sveitarfélag
gerir við verkalýðsfélag á Íslandi.
Ólöf Leifsdóttir, forstöðumað-
ur Bjargs-Iðjulunds, segir að
verið sé að bæta kjör og réttindi
fatlaðra á vinnustöðum fatlaðra.
Fatlaðir geti nú átt aðild að
stéttarfélagi og njóta allra
almennra réttinda. Laun verði
greidd í samræmi við vinnugetu
samkvæmt samræmdu starfs-
mati. - ghs
Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur:
Fatlaðir fá aðild
að stéttarfélagi
kAUpMAnnAhÖfn Geir H. Haarde
forsætisráðherra segir Dani „fúsa
til samstarfs um mjög margt, svo
sem á sviði björgunarmála“. Þetta
segir hann danskan kollega sinn,
Anders Fogh Rasmussen, hafa
tjáð sér á tvíhliða fundi þeirra í
Kaupmannahöfn í gær, þar sem
þeir ræddu stöðuna í varnarmál-
um Íslands eftir að gengið var frá
nýjum samningum um þau mál við
Bandaríkjamenn.
Auk tvíhliða fundarins við Fogh
sat Geir sameiginlegan leiðtoga-
fund Norðurlandanna fimm og
Eystrasaltslandanna þriggja. Hefð
er komin á að halda slíka fundi í
tengslum við Norðurlandaráðs-
þing, en það hefst í Kaupmanna-
höfn í dag.
Geir segir í samtali við Frétta-
blaðið að hann hafi á fundinum með
Fogh sett hann inn í hina breyttu
stöðu varnarmála Íslands. Hann
segir Dani reyndar hafa fylgst
mjög vel með því máli og lýst vilja
til ýmiss konar samstarfs sem
Íslendingar telji geta komið að
haldi, einkum til að tryggja öryggi
á hafsvæðinu í kringum landið, sem
liggur jú að danskri lögsögu Græn-
lands og Færeyja.
Geir sagði aðspurður að ekki
væri enn búið að útkljá ráðningu í
embætti framkvæmdastjóra Nor-
rænu ráðherranefndarinnar, en
Svíinn Per Unckel lætur af því um
áramótin. Hann sagðist þó telja að
þess væri ekki langt að bíða að
niðurstaða fengist í það mál. Hall-
dór Ásgrímsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra, er sagður etja þar
kappi við finnska ráðherrann Jan-
Erik Enestam.
Geir sagðist einnig hafa rætt
við Fogh um að næsta ár yrði
merkisár í sögu samskipta Íslands
og Danmerkur, en þá verður rétt
öld liðin frá því að Friðrik konung-
ur VIII kom í merka heimsókn til
Íslands, sem til stendur að minn-
ast með tilhlýðilegum hætti. Þá
þurfi enn fremur að endurnýja
samning um dönskukennslu sem
rennur út á næsta ári.
Spurður um fréttaflutning
danska blaðsins Ekstra bladet
undanfarna daga af meintum fjár-
glæfrum og skattsvikum íslenskra
fyrirtækja sem eru umsvifamikil í
Danmörku segir Geir að það sé
mál sem sé ríkisstjórnum land-
anna óviðkomandi. „Það er mál
fyrirtækjanna að svara fyrir sig,“
segir forsætisráðherra en bætir
svo við: „Hins vegar sýnist mér,
eftir að hafa lesið þessar tvær
greinar, í dag og í gær, að það sé
verið að lýsa þarna miklu almenn-
ara máli en sem snýr að þessum
íslensku fyrirtækjum. Það er verið
að tala um hvernig skattkerfið er í
Lúxemborg og hvernig fyrirtæki í
Danmörku geta nýtt sér það. Þetta
er ekki mál sem ríkisstjórnir,
hvorki hér (í Danmörku) né heima,
blanda sér neitt í.“
audunn@frettabladid.is
Samstarf við Dani
um björgunarmál
Geir H. Haarde forsætisráðherra sat leiðtogafund Norðurlandanna og Eystra-
saltsríkjanna í Kaupmannahöfn í gær. Norðurlandaráðsþing verður sett þar
í dag. Geir átti einnig tvíhliða fund með gestgjafanum Anders Fogh Rasmussen.
gEir h. haardE á LEiðtogafundinum í gær Ræddi meðal annars breytta stöðu
varnarmála Íslands við Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur.
NoRDEN.oRg/JANSSoN
Páll Hreinsson, formaður nefndar-
innar sem rannsakar opinber gögn
um öryggismál á kaldastríðsárunum,
er tekinn að kalla eftir gögnum. Páll
hefur sent sveitarstjórnum erindi og
óskað eftir að upplýst verði hvaða
gögn séu í vörslu þeirra sem snerti
öryggismál Íslands, innra og ytra
öryggi, á árunum 1945 til 1991.
hLErunarmáL
Víða leitað fanga
fótboLtI Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, neitaði að tjá sig
um launamál A-landsliðs karla og
kvenna, en Fréttablaðið greindi
frá því í gær að verulegur munur
væri á þeim greiðslum sem
leikmenn liðanna fengju og hallar
þar á konurnar. Í stað viðtals kom
yfirlýsing frá KSÍ sem má lesa á
síðu 40.
Kjartan Daníelsson, formaður
landsliðsnefndar kvenna, var
varkár í yfirlýsingum við
Fréttablaðið en sagði að nefndin
„myndi örugglega gera eitthvað“
í málinu. - hbg / nánar á síðu 40
Launamál landsliðsmanna:
Eggert neitar
að tjá sig
EggErt magnúSSon Vill ekki ræða um
greiðslur til handa leikmönnum.
pAkIstAn, Ap Miklar óeirðir brutust
út í Pakistan í gær eftir jarðarfarir
80 manna sem talsmenn stjórnar-
hersins segja hafa verið uppreisn-
armenn, en heimamenn halda fram
að hafi verið óbreyttir borgarar.
Þetta var mannskæðasta árás
stjórnarhersins gegn meintum
uppreisnarseggjum.
Árásin var gerð snemma í
gærmorgun á meintar æfingabúðir
al Kaída hryðjuverkanetsins í
norðausturhluta Pakistans, skammt
frá landamærum Afganistans.
Voru hinir látnu jarðsettir
síðdegis í gær og brutust
óeirðirnar út í kjölfarið. Helsti
stjórnmálamaður múslima í
landinu kenndi Bandaríkjastjórn,
en ekki þeirri pakistönsku, um
árásina, og kallaði eftir víðtækum
mótmælum í dag. - smk
Óeirðir í Pakistan:
Meintir upp-
reisnarmenn
voru drepnir
pakiStan Frá jarðarförinni í gær.
FRéttAblAðið/AP
stJóRnsýsLA „Við munum kalla
eftir skýringum á af hverju
fjárframlög til Skógræktar
ríkisins séu með þessum hætti,“
segir Birkir Jón Jónsson,
formaður fjárlaganefndar.
Framlög til stofnunarinnar á
næsta ári lækka um tíu milljónir
frá 2006 og um 24 milljónir frá
2004, samkvæmt fjárlagafrum-
varpi sem fjárlaganefnd er nú að
fara yfir.
„Mér er það til efs að til séu
margar opinberar stofnanir þar
sem þróun fjárframlaga til
starfseminnar hafi dregist eins
mikið saman og raun beri vitni,“
segir Birkir Jón. - sdg
Minna fé til skógræktar:
Nefndin mun
óska skýringa