Fréttablaðið - 31.10.2006, Side 4
4 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
GenGið 30.10.2006
Gjaldmiðlar kaup sala
Heimild: seðlabanki Íslands
119,9011
GenGisvísitala krónunnar
68,19 68,51
129,52 130,14
86,74 87,22
11,634 11,702
10,425 10,487
9,416 9,472
0,5800 0,5834
100,99 101,59
Bandaríkjadalur
sterlingspund
evra
dönsk króna
Norsk króna
sænsk króna
japanskt jen
sdr
����������������������������������
�������������
��������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
��������������
��������������
���������������
���������������
��������������
��������������
�����������
�������������
�������������
���������������
���������������
��������������
���������������
������������
���������������
������������
����
����������� ������������ ��
����������� �� ����������
� ���������� �����������
�� ����������������
����������������������
����������� ����������
���������� ��������������
�������������������������
������ ��������� ��� �
���������������������
�����������������������
���������������������� � �
����������������������
�� �������������� ��
��� ������ �������� ��
���� ������������������
����������������
�����������
�� ���� ����� ��
����� �������� ���� ����
���� �������������������������
������� ���
�������� ������
�������������������������������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
�
�
��
��
��
��
��
�
�
�
�
�
�
� �
�
�
�
�
�
��� �
�
�
�
��
�
��
��
��
�
�
�
�
BRetlAnD Kafara nokkrum, sem
var að kafa skammt frá Dorset í
Bretlandi, brá heldur betur í
brún þegar hann flæktist í net
togara og var hífður um borð í
skipið. Þetta kom fram á
fréttavef breska ríkisútvarpsins
á sunnudag.
Kafarinn, sem er á fimmtugs-
aldri, hafði verið að kafa á 14
metra dýpi þegar togarann bar
að. Hann fékk kafaraveiki við
atvikið og var fluttur með þyrlu
landhelgisgæslu Bretlands í
þrýstingsklefa hennar í Poole,
þar sem hann jafnaði sig.
Landhelgisgæslan rannsakar
nú atvikið. - smk
óvenjuleg veiði:
Breskur togari
veiddi kafara
KAUpmAnnAhöfn Ísland og Færeyj-
ar munu verða eitt markaðssvæði
um næstu mánaðamót þegar „Hoy-
vikssamningurinn“ svonefndi geng-
ur í gildi.
Þar sem Færeyjar standa utan
við tollabandalag Evrópusambands-
ins en Ísland er aðili að Evrópska
efnahagssvæðinu hafa vissar hindr-
anir verið í vegi fyrir „fjórfrelsinu“
milli frændþjóðanna en í því felst
frjáls flutningur á vöru, þjónustu,
fjármagni og fólki. Á þessu á nýja
samkomulagið, sem gengur í gildi á
morgun, að ráða bót.
Gildistökunni verður fagnað
með móttöku í íslenska sendiráðinu
í Kaupmannahöfn, þar sem Valgerð-
ur Sverrisdóttir utanríkisráðherra
og Jóannes Eidesgaard, lögmaður
Færeyinga, verða sameiginlega í
gestgjafahlutverki.
Umsókn Færeyinga um að fá
fulla sjálfstæða aðild að Norður-
landaráði, sem Íslendingar hafa
stutt, kvað ekki munu verða
afgreidd á þingi Norðurlandaráðs
að þessu sinni. - aa
„Hoyvikssamningurinn“ milli íslands og Færeyja tekur gildi nú um mánaðamótin:
Sameinast í eitt markaðssvæði
Þórshöfn í færeyjum Hindranir hafa verið í veginum fyrir frjálsum flutningum á
vöru, þjónustu, fjármagni og fólki á milli Íslands og Færeyja. NOrdiCpHOTOs/aFp
VInnUmARKAÐUR Framlag hins
opinbera til íslenskukennslu
útlendinga hefur hækkað um 2,9
milljónir króna frá 2002, úr sam-
tals 15,9 milljónum króna sam-
kvæmt fjárlögum 2002 í 18,8 millj-
ónir króna 2006. Mest hefur
upphæðin hækkað síðustu árin.
Hún hækkaði um 700 þúsund milli
ára 2004 og 2005 og um eina og
hálfa milljón króna milli 2005 og
2006. Þetta hefur þó ekki mikið að
segja þegar horft er til þess að
þúsundir manna hafa komið hing-
að til vinnu síðustu misserin.
Samkvæmt upplýsingum frá
menntamálaráðuneytinu fengu 22
aðilar styrki til íslenskukennslu á
haustönn, að meðaltali 494 þúsund
krónur hver. Mímir símennt er
stærsti skólinn með íslensku-
kennslu fyrir útlendinga. Sam-
kvæmt upplýsingum Rósu Jóns-
dóttur hjá Mími eru um 490
útlendingar skráðir þar á íslensku-
námskeið í haust og má því áætla
að ríkið greiði íslenskukennsluna
niður um tæplega 1.000 krónur á
mann. Þetta er aðeins gróft dæmi
um hlutdeild ríkisins.
Stéttarfélögin niðurgreiða
íslenskunámskeið fyrir útlend-
inga en þó er misjafnt hvernig að
því er staðið. Stéttarfélögin hafa
reglur um að viðkomandi þurfi að
hafa verið í félaginu frá þremur
mánuðum og upp í eitt ár til að
geta fengið styrk. Misjafnt er
hversu stór styrkurinn er og getur
hann verið allt upp í 75 prósent af
námskeiðsgjaldinu.
Tveir sjóðir verkalýðshreyf-
ingarinnar hafa verið duglegir við
að styrkja íslenskukennsluna síð-
ustu árin. Frá ársbyrjun 2004 fram
á mitt ár 2006 hefur Starfsafl sett
samtals 17,9 milljónir króna í
íslenskukennslu miðað við 930 ein-
staklinga. Á sama tíma hefur
Landsmennt veitt 30,9 milljónir
króna og er miðað við rúmlega
sextán hundruð einstaklinga. Þetta
gefur aðeins hugmynd því að til
viðbótar er fjöldinn allur af sjóð-
um á vegum launþegahreyfingar-
innar sem hafa styrkt íslensku-
kennsluna.
Stjórnvöld hafa verið gagnrýnd
fyrir stefnu- og þátttökuleysi.
Sveinn Aðalsteinsson, forstöðu-
maður Starfsafls, segir að nú þyki
mönnum nóg komið.
„Menn eru ekkert að firra sig
ábyrgð á þátttöku í þessu verkefni
en aðalatriðið er pólitískt. Það
þarf að laga formlega utanumhald
og stefnu stjórnvalda í þessum
málum,“ segir hann og telur von á
úrbótum. ghs@frettabladid.is
Ríkið niðurgreiðir kennslu
um þúsund krónur á mann
Ríkið niðurgreiðir aðeins íslenskukennslu fyrir útlendinga um þúsund krónur á mann meðan launþega-
hreyfingin niðurgreiðir kennsluna í stórum stíl. Launþegahreyfingin kallar á ábyrgð af hálfu stjórnvalda.
nemendur í íslenskunámi Framlag hins opinbera hefur hækkað úr 15,9 milljónum króna árið 2002 í 18,8 milljónir króna árið
2006. Þetta er þó ekki í neinu hlutfalli við aukinn fjölda erlendra starfsmanna. sjóðir launþegahreyfingarinnar hafa verið duglegir
við að styrkja íslenskukennsluna en krefja ríkið nú um aukna þátttöku.
íslenskukennsla
fyrir útlendinGa
- til ráðstöfunar
samkvæmt fjárlögum
2002 15,9 milljónir
2003 16,3 milljónir
2004 16,6 milljónir
2005 17,3 milljónir
2006 18,8 milljónir
SKÓlAR Starfsmenn Íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur ætla
að kanna hvort mögulegt sé að
draga úr biðlistum á frístunda-
heimili með því að bjóða upp á
hlutavistun. Þetta kom fram í
svari meirihlutans við fyrirspurn
minnihlutans á fundi ráðsins á
föstudag. „Í einhverjum tilvikum
virðist hlutavistun duga. Það
kemur hins vegar verulega á
óvart miðað við fyrri málflutning
sjálfstæðismanna að þeir skuli
ekki vera búnir að leysa vanda
þess fólks sem ekki fær umbeðna
þjónustu frístundaheimila,”
bókuðu fulltrúar Samfylkingar og
Vinstri grænna. - gar
Frístundaheimilin í reykjavík:
Íhuga að bjóða
hlutavistun
löGReGlUmÁl Um tvöleytið
aðfaranótt mánudagsins barst
lögreglunni í Reykjavík tilkynn-
ing um grunsamlegar mannaferð-
ir í Teigahverfi í Mosfellsbæ.
Lögreglan kannaði málið og
handtók tvo unga menn á
Vesturlandsvegi.
Mennirnir höfðu stolið fimmtíu
Doka-plötum, dýru byggingarefni
sem er notað við smíði steypu-
móta, af byggingarsvæði í
hverfinu.
Mennirnir voru yfirheyrðir hjá
lögreglunni en var sleppt að þeim
loknum. - ifv
tveir ungir menn handteknir:
Stálu fimmtíu
Doka-plötum
shell seldi dísilblöndu
Hundruð bíla þurfti að setja í viðgerð
eftir að eigendur þeirra höfðu fyllt á
bensíntankana á bensínstöð shell við
Nyköping-brú í svíþjóð, því bensín-
ið reyndist blandað dísilolíu. Þetta
kom fram í sænska blaðinu dagens
Nyheter í gær. Verið er að rannsaka
hvernig á því stendur að olían komst
í bensínið.
svíÞjóð