Fréttablaðið - 31.10.2006, Qupperneq 6
6 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
KjörKassinn
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
3
40
42
08
/2
00
6 Verið velkomin á Nesjavelli
Orkuveita Reykjavíkur býður gestum og gangandi
að heimsækja Nesjavelli, kynna sér orkuverið
ásamt því hvernig staðið hefur verið að umhverfismálum
og aðgengi fyrir ferðamenn og gesti á Nesjavöllum.
Opið á Nesjavöllum í september og október:
Mánudaga til laugardaga er opið frá kl. 9:00–17:00.
LOKAÐ á sunnudögum.
Hvað veistu
um jarðvarmavirkjanir?
H
rin
gb
ro
t
DAnmöRk Vilhjálmur Örn Vil-
hjálmsson fornleifafræðingur,
sem búsettur er í Kaupmannahöfn,
hefur kært Jan Jensen, einn rit-
stjóra Ekstra Bladet, fyrir að halda
því fram að Íslendingar stefni allir
sem einn að heimsyfirráðum í
blaðinu á sunnudaginn. „Þar er því
haldið fram að Íslendingar eigi í
alheimssamsæri,“ segir Vilhjálm-
ur. „Ég kannast ekki við að stefna
að heimsyfirráðum og mín kæra
byggir á hegningarlögum 266-B,
en Danir kalla þá lagagrein gjarn-
an „rasistaparagraffið“ því það er
oft notað gegn stjórnmálamönn-
um, til dæmis Þjóðarflokksins,
sem hafa horn í síðu útlendinga.
Að sögn Vilhjálms er lagagrein-
in skýr og hann telur fulla ástæðu
til að kæra. „Það er ekki á hverj-
um degi sem því er lýst yfir að ein
þjóð eða þjóðarbrot sé að taka yfir
heiminn. Hvað þá að haldið sé
fram að bróðurþjóð Dana sé í
samsæri gegn Dönum. Þetta var
reyndar gert á stríðsárunum
þegar nasistar lýstu því yfir að
danskir gyðingar væru í alheims-
samsæri. Kæra mín er prófmál og
mér finnst tilvalið að láta reyna á
þessa grein hegningarlaganna í
þessu tilfelli. Menn geta hlegið að
þessu en þetta er enginn brand-
ari,“ segir Vilhjálmur.
- kóþ
Umfjöllun Ekstra Bladet um Íslendinga í dönsku viðskiptalífi:
Kærð fyrir niðrandi ummæli
Vilhjálmur örn Vilhjálmsson
fornleifafræðingur Hefur farið í
mál við ritstjóra Ekstra Bladet og kærir
samkvæmt lagagrein um kynþáttahatur í
dönskum hegningarlögum.
FréttaBlaðið/ÓlaFur
Dómsmál Aðalmeðferð fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í
máli á hendur Sarunasi Budvytis
og Virunasi Kavalciukas vegna
stórfellds fíkniefnainnflutnings.
Mönnunum, sem báðir eru frá Lit-
háen, er gefið að sök að hafa í
hagnaðarskyni reynt að flytja
hingað til lands rétt tæp tólf kíló
af amfetamíni.
Efnin fundust í eldsneytistanki
bifreiðar sem þeir voru á um borð
í Norrænu þegar ferjan lagði að á
Seyðisfirði snemma í júlí á þessu
ári. Magn fíkniefnanna er það
langmesta sem reynt hefur verið
að smygla með Norrænu og er
talið að söluverðmæti þeirra geti
hlaupið á mörgum tugum milljóna
króna.
Sarunas sagði fyrir dómi að par
í Litháen hefði beðið hann um að
fara með bílinn til Íslands. Sagðist
hann hafa haldið að efnin í elds-
neytistankinum væru hestasterar.
Átti hann að fá greidd 3.000 pund,
eða um 390 þúsund krónur, fyrir
innflutninginn auk alls ferðakostn-
aðar.
Hann sagði að upprunalega
hefði maður sem heitir Arvidas
átt að fara með honum í ferðina en
hann fótbrotnaði nokkrum dögum
áður en þeir áttu að leggja í hann.
Þar sem um langa ferð var að
ræða vildi hann ekki fara einn og
hefði því beðið Virunas um að
koma með sér þegar hann rakst á
hann á götu úti tveimur dögum
áður en farið var af stað, en þeir
þekktust frá fornu fari.
Sarunas fullyrti að Virunas
hefði ekki vitað hver tilgangur
ferðarinnar væri og haldið að þeir
ætluðu sem ferðamenn til Íslands.
Hann væri því saklaus af öllu mis-
jöfnu.
Sarunas sagðist hafa haldið
öllum kvittunum til haga vegna
kostnaðar við ferðina til að fá
endurgreitt síðar og geymt þær
kvittanir í bílnum. Þær hafa hins
vegar aldrei fundist og sagði Sar-
unas líklegast að tollverðir á Seyð-
isfirði hafi hirt þær. Þegar til
Íslands væri komið átti hann að
hringja í ákveðið símanúmer og fá
leiðbeiningar um hvert hann ætti
að fara með bílinn. Hann hafði
engar frekari upplýsingar um það
utan þess að um íslenskan sveita-
bæ væri að ræða. Eftir handtök-
una hafi lögreglumenn reynt að
hringja í það númer sem hann var
með en enginn svarað.
Virunas neitaði því að hafa
vitað um nokkur efni í bílnum.
Hann sagði Sarunas hafa boðið sér
með sem ferðamanni og hann
hefði þegið boðið vegna þess að
ferðin væri honum að kostnaðar-
lausu. Hann væri því saklaus af
ákærunni. thordur@frettabladid.is
Sarunas segir að
Virunas sé saklaus
Aðalmeðferð hófst í gær í máli Sarunasar Budvytis og Virunasar Kavalciukas
vegna innflutnings á tólf kílóum af amfetamíni til Íslands. Sarunas segist hafa
haldið að efnin væru hestasterar. Hann segir Virunas ekki hafa vitað um efnin.
hinir áKærðu Ásamt Sveini andra Sveinssyni, lögmanni annars þeirra. Þeim er
gefið að sök að hafa reynt að smygla tólf kílóum af amfetamíni til landsins með
Norrænu í júlí síðastliðnum.
Hefur þú lent í árekstri?
já 75,1%
nei 24,9%
spurning dagsins í dag
Heldur þú að þingkonum fækki
eftir næstu alþingiskosningar?
Segðu skoðun þína á visir.is
álIt „Ég er mjög glöð að með tím-
anum hefur það komið í ljós að
mín rök voru rétt,“ segir Hanna
María Siggeirsdóttir, fyrrverandi
lyfsali í Apóteki Vestmannaeyj-
um.
Umboðsmaður Alþingis segir
að með úthlutun Jóns Kristjánson-
ar, þáverandi heilbirgðisráðherra,
á lyfsöluleyfi til lyfjafræðings
Lyfja og heilsu ehf. hafi verið
brotið gegn ákvæði lyfsölulaga
um að fimm þúsund íbúa þurfi að
baki hverju apóteki.
„Árið 2003 sótti lyfjafræðingur
um lyfsöluleyfi í Vestmannaeyj-
um þar sem rekstraraðilinn átti að
vera Lyf og heilsa. Ráðherrann
hafnaði að veita það leyfi á þeirri
forsendu að það væri of fátt fólk í
Vestmannaeyjum fyrir tvö apótek.
Tveimur árum seinna, og þegar
var tvö hundruð manns færra í
Vestmannaeyjum, sótti annar
lyfjafræðingur um lyfsöluleyfi
fyrir Lyf og heilsu og þá veitti
sami ráðherra lyfsöluleyfi,“
útskýrir Hanna María, sem segist
aldrei hafa fengið haldbærar skýr-
ingar á þessari breyttu afstöðu
ráðherrans. Hún seldi apótek sitt
til Lyfja og heilsu í júní í fyrra.
Umboðsmaður segir að þótt
heilbrigðisráðuneytið hafi bæði
brotið lyfjalög og stjórnsýslulög
séu ekki forsendur til að beina því
til ráðuneytisins að afturkalla
leyfið. Skaðabótakröfur verði
Hanna María að setja fram fyrir
almennum dómstólum. Hún segist
vera að skoða hvort slík krafa
verði sett fram. - gar
Umboðamaður Alþingis segir úthlutun lyfsöluleyfis í Vestamannaeyjum ólöglega:
Apótekari íhugar skaðabóta-
mál gegn heilbrigðisráðherra
jón Kristjánsson og siV friðleifs-
dóttir Jón var heilbrigðisráðherra þegar
málið kom upp en ef skaðabótamál
verður höfðað verður það gegn Siv, sem
er núverandi heilbrigðisráðherra.
FréttaBlaðið/gva
löGREGlUmál Fólksbíll og
dráttarvél lentu í árekstri á
Suðurlandsvegi við bæinn
Kálfafell um sjöleytið á sunnu-
dagskvöldið.
Ökumaður fólksbílsins var
fluttur alvarlega slasaður með
þyrlu á Landspítalann í Fossvogi.
Maðurinn liggur alvarlega
slasaður á gjörgæsludeild
sjúkrahússins að sögn vakthaf-
andi svæfingalæknis.
Lögreglan á Kirkjubæjar-
klaustri segir fólksbílinn mikið
skemmdan og óökufæran.
Dráttarvélin er nokkuð skemmd.
Tildrög slyssins eru óljós og er
málið í rannsókn. - ifv
Árekstur bíls og dráttarvélar:
Ökumaður al-
varlega slasaður