Fréttablaðið - 31.10.2006, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 31. október 2006 11
Genf, AP Hin umdeildu lög sem sett
voru í Bandaríkjunum á dögunum
um réttarstöðu meintra hryðju-
verkamanna og að mál þeirra
verði sótt fyrir herdómstólum,
samræmist ekki alþjóðlegum
mannréttindasáttmálum. Þetta er
mat Martins Scheinin, sérfræð-
ings Sameinuðu þjóðanna í stöðu
mannréttinda í „stríðinu gegn
hryðjuverkum“.
Sum ákvæði laganna geta svipt
meinta hryðjuverkamenn réttin-
um til sanngjarnra réttarhalda,
segir Scheinin og bendir sérstak-
lega á hugtakið „ólöglegur og
fjandsamlegur bardagamaður“.
Þetta hugtak er óþekkt í alþjóða-
lögum, segir Scheinin, en með
lagasetningunni getur forseti
Bandaríkjanna ákveðið upp á sitt
einsdæmi hverjir falla undir þessa
skilgreiningu.
Ólöglegir bardagamenn munu
ekki njóta „habeas corpus“-ákvæð-
isins, sem kveður á um að menn
sitji ekki inni án þess að koma
fyrir dómara og sæta ákæru.
Þetta, segir Scheinin, er „í aug-
ljósri mótsögn“ við Alþjóðasátt-
málann um borgaraleg og pólitísk
réttindi, sem Bandaríkin fullgiltu
árið 1992.
Fulltrúi Bandaríkjanna í Genf
svaraði því til að lögin væru þvert
á móti gerð „í samráði við banda-
menn okkar og sem svar við
áhyggjum þeirra“. Lögfræðiráðgjafi
bandaríska heimavarnaráðuneyt-
isins sagði einnig að hugtakið
„ólöglegur bardagamaður“ væri
ekki uppfinning Bush-stjórnarinnar,
heldur hefði það verið notað af
virtum evrópskum lögspekingum
um áraraðir.
- kóþ
Nýsamþykkt lög í Bandaríkjunum um meðferð meintra hryðjuverkamanna:
Ný lög sögð í mótsögn við mannréttindi
Úr Guantanamo-fanGabÚðunum Óttast er að umdeild lög Bandaríkjamanna um
meðferð meintra hryðjuverkamanna brjóti í bága við ýmis alþjóðalög sem Banda-
ríkjamenn hafa samþykkt. FréttaBlaðið/aP
BoRGARfJöRÐUR eystRI Lagfæring-
um á vatnsbólum í Borgarfirði
eystri, vegna saurgerla sem
komust í þau fyrr í haust, er
nánast lokið. Búið er að setja upp
nýjan lindarbrunn í stað eldri
brunna á Engi auk þess sem
annar brunnur á Kúahjalla hefur
verið endurbættur. Talið er að
gerlarnir hafi komist í brunnana
vegna þess að yfirborðsvatn
komst að vatnsveitukerfi
Borgfirðinga, en það á ekki
lengur að vera mögulegt þegar
endurbótunum er lokið. - þsj
Lagfæring á vatnsbólum:
Viðgerðum
næstum lokið
ALMAnnAtRyGGInGAR Trygginga-
stofnun ríkisins hefur ákveðið að
fara eftir ábendingum umboðs-
manns Alþingis og fella út af
eyðublöðum sínum ákvæði um að
bótaþegar heimili stofnuninni að
millifæra fé af bankareikningum
sínum hafi þeir fengið ofgreitt
vegna mistaka. Maður einn hafði
kvartað til umboðsmanns vegna
þess að Tryggingastofnun gerði
þessa heimild frá lífeyrisþeganum
að skilyrði fyrir bótagreiðslum.
Tryggingastofnun sagði að þessi
háttur hefði lengi verið hafður á
en viðurkenndi að ekki væri
heimild fyrir vinnbrögðunum í
lögum. Því yrði nú gerð breyting á.
- gar
Hlustað á umboðsmann:
Ekki millifært
frá bótaþegum
tRyGGInGAR Vátryggingafélag
Íslands mun slysatryggja öll börn
undir 18 ára aldri sem stunda
íþróttir eða aðra skipulagða
félagsstarfsemi í Kópavogi.
Í samkomulagi Kópavogsbæjar
og VÍS segir meðal annars að
vátryggingin taki til skipulagðrar
starfsemi þess félags sem getið
er um í vátryggingarskírteini auk
ferða til og frá heimili vegna
starfseminnar svo sem íþrótta-
æfinga og skátafunda.
Þetta er í fyrsta skipti sem
bæjarfélag tryggir börn og
unglinga með þessum hætti en
VÍS ber þann kostnað sem ekki
fæst endurgreiddur hjá
Tryggingastofnun ríkisins. - hs
VÍS og Kópavogsbær:
Öll börn verða
slysatryggð
undirritun samninGsins auður Björk
Guðmundsdóttir, forstöðumaður hjá VÍS,
Gunnar i. Birgisson bæjarstjóri, Ásgeir
Baldurs, framkvæmdastjóri VÍS, og Ómar
Stefánsson, formaður bæjarráðs.
svíÞJóÐ Svíar sækja í auknum
mæli út fyrir landsteinana til að
læra læknisfræði þar sem sænska
menntakerfið nær ekki að anna
eftirspurninni og það þrátt fyrir
að gert séð ráð fyrir stöðugt fleiri
nemendum. Ákveðið hefur verið
að tæplega 1.500 hefji nám í
læknisfræði í Svíþjóð haustið 2007
eða um 60 fleiri en hófu nám í ár.
Sænsku læknanemarnir hafa
einkum sótt til Danmerkur en eru
þó orðnir óvinsælir þar því þeir
hafa tekið pláss frá Dönum. Þeir
fara því í auknum mæli til náms í
Póllandi. Samtals nema nú
tæplega 1.500 Svíar læknisfræði
erlendis en þeir voru tæplega 250
fyrir tíu árum. - ghs
Sænskir námsmenn:
Fara utan til að
læra til læknis HVÍ
T
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
7
4
8
0
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU. Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í heiminum í dag.
Það er ekkert skrítið þegar hægt er að bjóða þessi gæði á svona verði.
3.475.000 kr.
Við kynnum nýjan alvörujeppa, KIA Sorento
– fullbúinn jeppi með ríkulegum staðalbúnaði
• hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél
• ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)
• 16" álfelgur • þakbogar
• vindskeið • þokuljós
Sorento hefur slegið í gegn um allan heim og eignast dygga fylgismenn á
Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn einn vinsælasti
jeppi landsins, enda líklega bestu jeppakaupin í dag.
Nýtt verð