Fréttablaðið - 31.10.2006, Síða 25

Fréttablaðið - 31.10.2006, Síða 25
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is fasteignir heimili heilsa hús börn nám ferðir matur bílar tíska atvinna brúðkaup tilboð o.fl. Birgir Már Vigfússon er leikmaður meistaraflokks karla í blaki hjá Þrótti í Reykjavík og segir það tilvalið til að komast í form. Birgir er búinn að æfa blak í rúm tíu ár. Hann segir áhugann fyrst hafa kviknað þegar hann fór þrettán ára gamall í prufu- tíma hjá kínverskum blakþjálfara úti á landi. „Þjálfarinn gerði sér ferð til Hornafjarðar, þar sem við fjölskyldan áttum heima, og vildi sjá hvað í okkur strákunum byggi,“ segir Birgir. „Honum fannst ég sýna góða takta á æfingu og hvatti mig til að leggja blak fyrir mig. Ég þurfti ekki að láta segj- ast, enda fannst mér þetta strax áhugaverð íþrótt.“ Birgir er mikill íþróttaáhugamaður og segist hafa reynt fyrir sér í mörgum grein- um áður en golf og blak urðu ofan á. „Sú góða útrás sem fæst í blakinu réði að það varð fyrir valinu,“ útskýrir hann. „Ég æfi þrisvar sinnum í viku, eina til eina og hálfa klukkustund í senn með upphitun og hopp- æfingum. Þær styrkja lærin og auka stökk- kraftinn og eru því afar mikilvægar.“ Birgir bætir við að blakið sé auk þess sameiginlegt áhugamál fjölskyldunnar, en móðir hans lék blak með Sindra á sínum tíma og kærasta hans, Lilja Jónsdóttir, er fyrirliði kvennaliðs Þróttar í blaki sem hefur sópað til sín titlum á undanförnum árum. Að mati Birgis hefur blak ennfremur ýmsa kosti fram yfir aðrar íþróttagreinar, til að mynda hamli líkamsstærð ekki þátt- töku. „Sé leikmaður lágvaxinn, er sá hinn sami oft settur í vörn,“ segir hann. „Það er engum vísað frá vegna hæðar. Þetta er góð íþrótt, krefjandi, styrkjandi og liðkandi. Hún er tilvalin til að komast í gott form, enda kvarta ég ekki undan því.“ roald@frettabladid.is Fjölskylduáhugamál Auk þess að spila blak er Birgir á kafi í golfi. fréttABlAðið/Antongóðan dag! í dag er þriðjudagurinn 31. október, 304. dagur ársins 2006. sólarupprás hádegi sólarlag reykjavík 9.07 13.11 17.15 akureyri 9.01 12.56 16.50 flensan er víða í heimsókn þessa dagana og tilvalið að sjóða hreinan eplasafa, bæta út í ferskum engifersneiðum og láta malla, bæta síðan í sítrónu- sneiðum og teskeið af lífrænu hunangi. Þá eru fyrirtæki farin að bjóða upp á flensusprautur fyrir starfsmenn sína og ágætt að nýta sér það. dagsljósslampar eru tilvaldir þegar líða fer á skammdegið í viðbót við lýsi og vítamín. rann- sóknir sýna að dagsljós dregur úr árstíðabundnu þunglyndi og Það er hægt að komast ókeypis í lampana í Vesturbæjarlaug- inni milli klukkan 6.30 og 22 á virkum dögum og milli klukkan 8 og 20 um helgar. kuldakrem er gott að bera á kinnar á litlum krökkum áður en þau fara í leikskólann. Best er að velja feit krem sem verja húðina og leyfa henni að anda og sleppa kremum með auka-, rotvarnar- og ilmefnum. Þá geta foreldrarnir verið áhyggju- lausir um að þau kali á kinn. allt hitt [ heilsa Best að forðast sykur og salt Næring og mataræði ungbarna heilsa SkApAndi dAnS Verður í GerðuBerGi næStA lAuGArdAG milli 13 oG 17. dAnSkennAri er mArtA eiríkSdóttir. „fangaðu drauma þína gegnum dans“ er yfirskrift námskeiðs sem haldið verður í Gerðubergi á laugardaginn, 4. nóvember. marta eiríksdóttir leiklistarkennari sér um kennsluna en hún er einnig með kripalu dansjógakennararéttindi og hefur þróað og kennt orkudansþerapíu í meira en 15 ár. „Þetta námskeið í Gerðubergi er tilvalið fyrir þá sem finnst gaman að dansa og vilja um leið koma hreyfingu á tilveruna,“ segir marta og telur daginn verða spenn- andi fyrir alla en sérstaklega þá sem leita breytinga. „Það leysist svo mikill kraftur úr læðingi með því að sameina huga og dans og útkoman verður heilun fyrir líkama og sál,“ útskýrir hún og er komin á flug. „Þátttakendur endurnýjast á líkama og sál því losað er um höft og opnað fyrir gleðina. Stundin fullkomnast svo í djúpslökun í lokin.“ nánari upplýsingar og skrán- ing fer fram á netinu www. pulsinn.is en einnig í síma 848-5366. losað um höft og opnað fyrir gleðina marta segir það líkjast krafta- verki þegar orkudans er iðkaður. fréttABlAðið/GVA Árvekni allt Árið Aðsókn í leitarstöð Krabba- meinsfélagsins margfald- ast í október ár hvert heilsa

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.