Fréttablaðið - 31.10.2006, Qupperneq 31
ÞRIÐJUDAGUR 31. október 2006 7
Ný vefsíða um sérhæfða heima-
þjónustu fyrir veika aldraða.
Á vefsíðunni má finna upplýsingar
um starfsmenn, símanúmer og
þjónustuferlið. Heimaþjónusta
fyrir veika aldraða er samvinnu-
verkefni Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss og Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins sem hófst
í september í ár.
Þetta er nýbreytni í meðferð og
eftirfylgni við veika aldraða en
þjónustunni var hleypt af stokkun-
um fyrir tilstuðlan heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins sem
svar við þeim vanda LSH að útskrifa
veika aldraða af sjúkrahúsinu.
Hlutverk þjónustunnar er að
stýra, skipuleggja og veita
sjúkrahústengda heimaþjónustu
og meðferð, að beiðni LSH, í tvær
til tólf vikur fyrir 67 ára og eldri á
höfuðborgarsvæðinu sem þurfa
víðtækari fagþjónustu en þegar er
í boði.
Að tryggja samfellu í meðferð
frá sjúkrahúsi til heimilis og styrkja
aðlögunarhæfni einstaklinga og/eða
fjölskyldu eftir útskrift af sjúkra-
húsi.
Markmiðið er að aldraðir geti
búið heima þrátt fyrir veikindi.
Þverfaglegt teymi sinnir þjón-
ustunni. Frá LSH koma öldrunar-
læknar, klínískur sérfræðingur í
öldrunarhjúkrun, iðjuþjálfi og
sjúkraþjálfari. Frá Miðstöð heima-
hjúkrunar koma hjúkrunarfræð-
ingar, sjúkraliðar og félagsliðar.
Gert er ráð fyrir því að þjónustan
nái að jafnaði til tuttugu sjúklinga á
hverjum tíma.
Nánari upplýsingar á www.lsh.is
Aukin þjónusta
við veika aldraða
Aukin þjónusta við veika aldraða gerir þeim kleift að búa lengur heima.
Nordicphoto/gettyimAges
Vísindamenn við Edinborgar-
háskólann í Skotlandi segjast
hafa fundið gen sem eigi þátt í
tjáningu geðklofa.
200 manns á aldrinum 16 til 25 ára
voru rannsakaðir. Vitað var að
geðklofi gengi í erfðir að ein-
hverju leyti og áttu allir þátttak-
endur að minnsta kosti tvo ætt-
ingja sem þjáðst hafa af geðklofa.
Niðurstöðurnar urðu þær að ein-
staklingar með tiltekin gen voru
mun líklegri til að þjást af geðklofa
en aðrir. Þessir sömu einstaklingar
voru einnig líklegri til að þjást af
óeðlilegri heilastarfsemi í vissum
hlutum heilans, en slík starfsemi er
tengd geðklofa.
Þrátt fyrir að genin séu fundin er
langur vegur í að niðurstöðurnar
nýtist í leit að lækningu. Dr. Jeremy
Hall, forsvarsmaður rannsóknarinn-
ar, segir hins vegar að til að lækna
sjúkdóm sé nauðsynlegt að vita hvað
veldur honum. Þannig séum við
skrefi nær því að lækna þann illvíga
sjúkdóm sem geðklofi er. - tg
Geðklofagen fundin
geðklofi er alvarlegur sjúkdómur sem erfitt er að lækna. Nordicphotos/getty imAges
Endurbætt upplýsingahefti
Landspítala – háskólasjúkra-
húss komið út í fyrsta sinn.
Upplýsingaheftinu er ætlað að
veita starfsmönnum LSH og
almenningi mánaðarlega innsýn í
starfsemi spítalans.
Starfsemisupplýsingar LSH
eru endurskoðuð útgáfa Stjórnunar-
upplýsinga LSH, sem út hafa
komið á síðastliðnum fimm árum.
Frá því að útgáfa heftisins
hófst hafa ábendingar komið fram
um hvernig bæta megi það, svo
það gagnist notendum sem best.
Til stendur að gera frekari breyt-
ingar á heftinu á næstu mánuðum,
svo það standist betur ofan-
greinda kröfu.
Efni og efnistök verða mis-
munandi eftir tímabilum og reynt
að láta heftið hafa sem víðasta
skírskotun til starfsemi LSH. Af
þeirri sök hefur það fengið hið
nýja heiti Starfsemisupplýsingar
LSH. -rve
Starfsemisupplýsingar LSH
starfsemisupplýsingar Lsh eru endur-
skoðuð útgáfa stjórnunarupplýsinga.
fréttAbLAðið/stefáN
Gerðu það heima. . .
MIKIÐ ÚRVAL AF LÍKAMSRÆKTARVÖRUM TIL HEIMILISNOTA OG Í RÆKTINA
Úlnliðsvafningar
kr. 1.490,-
Æfi ngagriffl ur
kr. 1.790,-
Lyftingaólar
kr. 990,-
Ab Strap
kr. 7990,-
Púðahanskar.
kr. 6.990,-
Sippubönd frá
kr. 490,-
Teygjur
kr. 1.990,-
Lyftingakrókur
kr. 2.990,-
Æfi ngaboltar
55cm - 75cm
verð frá kr. 2990,-
Róðravél
kr. 65.900,-
Fjölþjálfar frá
kr. 49.900,-
Þrekhjól
kr. 72.900,-
FJALLAHJÓLABÚÐIN FAXAFENI 7
SÍMI 5200 200
MÁN - FÖS KL. 9-18
LAU. KL. 10-14
Mischief
kr. 25.900,-
Rogue
kr. 38.900,-
Etto, Pshyco, Freestyle og BMX
hjólahjálmar
Villain
kr. 32.900,-
Sniper
kr. 28.900,-
Uppsel
t!