Fréttablaðið - 31.10.2006, Side 46
31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR30
timamot@frettabladid.is
peter jackson er 45 ára í dag
„Nýja-Sjáland er ekki lítið land
heldur risavaxið þorp.“
Nýsjálenski leikstjórinn vann til ófárra
Óskarsverðlauna fyrir kvikmynd sína sem
gerð var eftir Hringadróttinssögu Tolkiens.
merkisatburðir
1517 Siðaskiptin hefjast í Þýska-
landi þegar Marteinn
Lúther neglir ritgerð sína á
kirkjudyr í Wittenburg.
1892 Fyrsta bókin um Sherlock
Holmes eftir Arthur
Conan Doyle er gefin út.
1931 Strætisvagnar Reykjavíkur
hefja akstur. Fyrsta leiðin
er Lækjartorg-Kleppur.
1936 Útgáfa Þjóðviljans hefst.
1961 Yfirvöld í Sovétríkjunum
láta færa lík Jósefs Stalín
úr grafhvelfingu Leníns.
1964 Í tilefni af aldarafmæli
Einars Benediktssonar er
afhjúpuð stytta af skáld-
inu á Miklatúni.
1984 Indira Gandhi, forsæt-
isráðherra Indlands, er
myrt af tveimur lífvörðum
sínum.
Á þessum degi árið 1926 lést
Harry Houdini, einn fræg-
asti töframaður allra tíma, úr
lífhimnubólgu á sjúkrahúsi í
Detroit í Bandaríkjunum. Tæpum
tveimur vikum áður hafði hinn
52 ára Houdini verið að spjalla
við hóp nemenda eftir fyrirlest-
ur í Montreal og sagt þeim að
magavöðvar hans væru gríðar-
lega sterkir og gætu þolað mjög
föst högg. Öllum að óvörum kýldi
einn nemendanna Houdini tvisv-
ar í magann. Þar sem töframað-
urinn var óviðbúinn sprengdu
höggin í honum botnlangann.
Houdini veiktist á leiðinni til
Detroit en kom þó fram í hinsta
sinn áður en honum var ekið á
sjúkrahús. Hann fór í aðgerð en
allar tilraunir læknanna báru lít-
inn árangur enda hafði botnlang-
inn sýkt út frá sér.
Houdini fæddist í Búdapest árið
1874. Hann fluttist ungur með
foreldrum sínum til Bandaríkj-
anna og sýndi snemma mikla
hæfileika í fimleikum og ótrúlega
hæfni í að opna lása. Hann gekk
til liðs við sirkus aðeins níu ára
gamall og varð frægur fyrir að
sleppa úr ómögulegum aðstæð-
um. Árið 1900 fór hann í sína
fyrstu sýningarferð um heiminn.
Eitt uppáhaldsatriði hans var
að láta binda sig og læsa niður
í járnkistu sem sökkt var ofan í
vatnstank og losna svo úr prís-
undinni.
þetta gerðist: 31. oKTóBER 1926
Sjónhverfingamaður allur
Houdini
Hundrað ár eru liðin síðan Íslands-
glíman, elsta og sögufrægasta íþrótta-
mót á Íslandi, var haldið í fyrsta sinn.
„Það eru hundrað ár síðan Íþrótta-
félagið Grettir á Akureyri safnaði
fyrir og lét búa til Grettisbeltið. Síðan
var keppt um það á Akureyri 1906,“
segir Jón Birgir Valsson, formaður
Glímusambands Íslands.
Iðkendur glímu á Íslandi eru um
fimm hundruð talsins og vonast Jón
Birgir til að bæta við þá tölu jafnt og
þétt næstu árin. „Við erum að fara
nýjar leiðir í útbreiðslu á íþróttinni
núna og höfum skipt þessu upp í tvær
stefnur. Annars vegar með keppnina
sjálfa í huga og hins vegar sem menn-
ingar- og listviðburðinn glímuna. Glím-
an er svo menningarlega tengd við
Íslandssöguna enda er hún eina íþrótt-
in sem hefur fylgt Íslendingum alveg
frá landnámi,“ segir Jón Birgir, sem er
jafnframt Íslandsmeistari í glímu og
því handhafi Grettisbeltisins.
Jón Birgir er nýkominn til Kasak-
stan þar sem hann mun keppa á HM í
Belt-Wrestling ásamt þeim Lárusi
Kjartanssyni og Jóhannesi Héðinssyni.
„Við ætlum að komast að því hvort
þetta eigi við okkar kunnáttu í glímu.
Við erum með hóflegar væntingar í
þessu og förum í þetta með opnum hug,
fyrst og fremst til að þreifa okkur
áfram hvað aðrir eru að gera í þessu,“
segir Jón.
Belt-Wrestling er frábrugðin
íslensku glímunni að því leyti að kepp-
endur hafa reipi um sig miðja í stað
þess að vera með belti eins og tíðkast
hér á landi. „Belt-Wrestling þekkist
mjög vel í Kasakstan og Mongólíu og
þar um kring. Maður hefur séð þessa
íþrótt í þáttum eins og á Discovery og í
jaðarsporti á Eurosport,“ segir Jón.
Auk þess að keppa ætla þeir félagar
að taka þátt í ráðstefnu í Kasakstan um
glímu og athuga hvort að möguleiki sé
á því að markaðssetja íslensku glím-
una þar í landi og víðar. „Sumir vilja
meina að fangbrögð hafi borist frá
Asíu á sínum tíma og síðan vestur eftir
og þau nái aftur til tíma Atla Húnakon-
ungs. Aðrir segja að þetta sé algjör-
lega íslenskt fyrirbrigði. Glíman er
íslensk þó að hún hafi komið á sínum
tíma með víkingum.“
Alþjóðlegu glímumóti, Icelandair
Open, lauk sl. sunnudag í glímuhúsi
Ármanns. „Þetta heppnaðist glimrandi
vel og vakti stormandi lukku bæði hjá
okkar erlendu gestum og þeim glímu-
köppum og konum sem mættu á stað-
inn. Við bindum miklar vonir við að
þetta verði árlegt og við stefnum líka
að því að halda HM í glímu innan
tveggja ára,“ segir Jón og ætlar glím-
unni greinilega stóra hluti í framtíð-
inni. freyr@frettabladid.is
Jón BIRGIR vALSSon: ÍslandsglÍman 100 ára
keppa í kasakstan
glíma Það var hart barist á alþjóðlega glímumótinu sem var haldið um síðustu helgi.
FRéTTABLAðIð/vILHELM
Elsku systir mín,
Ása Hjördís Þórðardóttir
lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn
28. október.
F.h. ættingja,
Margrét Anna Þórðardóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Klara Ásgeirsdóttir
Kirkjuvegi 1, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 27. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kjartan Sædal Sigtryggsson Ása S. Atladóttir
Sigríður Sædal Anatrella William Joyner
Steinar Sædal Sigtryggsson Birna Martinsdóttir
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir Hallur A. Baldursson
Hólmfríður Sædal Sigtryggsdóttir Þórður Kárason
barnabörn og langömmubörn.
Þökkum hlýhug og vináttu vegna andláts
og útfarar ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu
Þorbjargar Friðrikku Jónsdóttur.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Félagsmiðstöðvarinnar Aflagranda og líknardeildar-
innar á Landakoti fyrir einstaka ummönnun og hlýhug.
Sigrún J. Jensdóttir Hilmar Logi Guðjónsson
Jens S. Jensson Kristín Sigurgeirsdóttir
Anna Friðrikka Jensdóttir Páll Jensson
Helga Jensdóttir Rúnar Gunnarsson
Karl Jensson Guðrún I. Sturlaugsdóttir
Guðrún Elísabet Jensdóttir Baldur F. Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
Hjörleifur Ingólfsson
slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður,
frá Vöglum í Vatnsdal, Tjarnargötu 25a,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn
28. október. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 2. nóvember kl. 14. Þeim sem vilja minn-
ast hans er bent á Félag langveikra barna.
Sigrún Bryndís Gunnarsdóttir
Arna Björk Hjörleifsdóttir Högni Sturluson
Ingvi Þór Hjörleifsson Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
Árni Jakob Hjörleifsson Geirþrúður Ósk Geirsdóttir
Halldór Hagalín Hjörleifsson
Ingunn Guðmundsdóttir Larsson
Gunnar Brynjólfur Sigurðsson Ólöf Haraldsdóttir
Sara Björg Pétursdóttir
og barnabörn.
50 ára afmæli
Erlen Sveinbjörg Óladóttir
er 50 ára í dag. Hún tekur
á móti gestum á heimili sínu,
Laufási 4a í Garðabæ, á
afmælisdaginn.
Fjölskyldan
����
�� �����
���������
�����
����������
�����������������������������������������
����������������������� �������������
Innilegustu þakkir til ykkar fjölmörgu sem
tókuð þátt í sorg okkar og sýnduð okkur með
margvíslegum hætti samúð og hlýhug vegna
andláts ástkærs eiginmanns míns og vinar,
föður okkar, tengdaföður, afa og bróður,
Antons Sölva Jónssonar
Heiðarbrún 11, Keflavík.
Sérstakar þakkir til Karlakórs Keflavíkur og
Sindrabræðra, að ógleymdum traustum vinum okkar.
Sá sómi sem hinum látna var sýndur við útför hans
gleymist aldrei. Guð launi ykkur ríkulega.
Jórunn Jónasdóttir
Jóna Björg Antonsdóttir Ellert Þ. Ólafsson
Guðrún Anna Antonsdóttir
Bogi Jón Antonsson
Anton Ellertsson Þorbjörg Bergþórsdóttir
Kristrún Jónsdóttir Magnús B. Magnússon
og aðrir aðstandendur.