Fréttablaðið - 31.10.2006, Síða 59
ÞRIÐJUDAGUR 31. október 2006 43
Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.is
Kolefnin minnka loft-
þrýstinginn í boxinu sem gefur
hátalaranum meira rými til að
hreyfast fram og til baka.
Þannig verður til meiri dýpt og
hljómurinn úr litlu boxi verður
kraftmeiri heldur en úr stærra
hátalaraboxi.
Fyrir utan háþróaða tækni
hefur KEF lagt mikla áherslu
á glæsilegt útlit, nútímalega og
stílhreina hönnun sem fyrir
marga er hinn helmingurinn af
ánægjunni.
Njóttu þess í botn að hlusta á
góða tónlist í hátölurum sem
búa yfir tækni sem engir aðrir
hátalarar geta státað af.
Það sem gerir KHT6000
hátalarana frá KEF einstaka
er svokölluð ACE-tækni
(Acoustic Compliance
Enhancement). KEF hefur
kollvarpað lögmálinu um að
krafturinn í hljómburðinum sé
í réttu hlutfalli við stærðina á
hátalaraboxinu.
Tækni KEF byggir á því að
setja örlitlar agnir af sérstöku
kolefni í hátalaraboxið.
Helmingurinn
af ánægjunni
KEF KHT6000
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 6
0
5
6
0
FótboltI Veigar Páll Gunnarsson
var á sunnudagskvöldið valinn
leikmaður ársins úr röðum leik-
manna norska úrvalsdeildarliðs-
ins Stabæk af stuðningsmönnum
liðsins. Hefur hann skorað sautján
mörk í deildinni í ár en félagi hans,
Svíinn Daniel Nannskog, hefur
skorað einu marki meira. Er hann
markahæsti leikmaður deildarinn-
ar. Veigar er hins vegar ofar í ein-
kunnagjöf fjölmiðlanna í Noregi
og því virðast stuðningsmenn
Stabæk vera sammála.
„Þetta er mikill heiður,“ sagði
Veigar Páll í samtali við Bud-
stikke. „Ég vil þakka stuðnings-
mönnunum kærlega fyrir að velja
mig leikmann ársins. Valið kom
mér mjög á óvart.“
Stabæk vann sér sæti í úrvals-
deildinni síðastliðið haust og hefur
gengið vel í deildinni. Liðið er í
fimmta sæti þegar ein umferð er
óleikin og má vel við una. Bæði
Veigar Páll og Nannskog voru til-
nefndir sóknarmenn ársins. Þeir
skrifuðu báðir undir langtíma
samninga við félagið í sumar, nú
síðast Nannskog en tilkynnt var
um samning hans um síðustu
helgi. Báðir tveir eru þó eftirsóttir
af liðum víða í Evrópu.
„Ég er ótrúlega glaður yfir að
hann verður áfram,“ sagði Veigar
Páll. „Það er afar mikilvægt. Hann
veit, rétt eins og allir í félaginu, að
ég vil spila með honum í framlín-
unni. En það er ekki satt að bara
við tveir náum vel saman. Við
þurfum að ná því með öllum í lið-
inu.“
Þeir félagar hafa skorað 35 af
48 mörkum liðsins í deildinni í
sumar og er það fáheyrt að tveir
framherjar reynist jafn drjúgir
fyrir sama liðið á einu tímabili.
Eins og hefð gerir ráð fyrir fær
leikmaður ársins hjá Stabæk einn
kassa af bjór að gjöf frá stuðn-
ingsmönnunum.
- esá
Veigar Páll Gunnarsson fékk kassa af bjór frá stuðningsmönnum Stabæk:
Veigar Páll valinn leikmaður
ársins af stuðningsmönnum
Veigar Páll Leikmaður ársins hjá stuðningsmönnum Stabæk. fréttabLaðið/Scanpix
FótboltI David Beckham,
leikmaður Real Madrid, reyndi í
eitt skipti fyrir öll að kveða niður
þann orðróm að hann sé á leið frá
Real Madrid og aftur til Eng-
lands. „Ég er ekki að velta því
fyrir mér að fara. Og ég fer ekki
neitt í janúar,“ sagði Beckham en
samningur hans rennur út í
sumar. Orðrómur hefur því verið
á kreiki að Real vilji selja
leikmanninn þegar félagaskipta-
glugginn opnast í janúar.
Mörg félög hafa verið orðuð
við Beckham, nú síðast Celtic og
Tottenham. - esá
David Beckham:
Fer ekki frá
Real í janúar
DaViD Beckham Þreyttur á orðrómun-
um eins og sjá má. nordic photoS/afp
FótboltI Shay Given, markvörður
írska landsliðsins og Newcastle,
hefur hafið æfingar á nýjan leik
eftir að hann meiddist í leik gegn
West Ham hinn 17. september.
Hann lenti í samstuði við Marlon
Harewood með þeim afleiðingum
að magi Givens rifnaði.
Síðan Given meiddist hefur
Newcastle aðeins náð í tvö stig af
átján mögulegum í ensku
úrvalsdeildinni. - esá
Shay Given:
Byrjaður að
æfa á nýjan leik
FótboltI Franski fótboltasnilling-
urinn Youri Djorkaeff tilkynnti í
gær að hann væri hættur
knattspyrnuiðkun sem atvinnu-
maður. Hann var í liði Frakka
sem varð heimsmeistari árið 1998
og Evrópumeistari tveimur árum
síðar. Hann lék bæði með
Blackburn og Bolton í ensku
úrvalsdeildinni en nú síðast með
New York Red Bull í bandarísku
MLS-deildinni.
Nú eru aðeins fjórir leikmenn
enn að sem unnu áðurnefnda
tvennu; þeir Patrick Vieira,
Thierry Henry, David Trezeguet
og Lilian Thuram. - esá
Youri Djorkaeff:
Leggur skóna á
hilluna
Djorkaeff Áhorfendur hylla kappann
eftir hans síðasta leik með new York
red bull. nordic photoS/afp
FótboltI Markvörðurinn Tomasz
Kuszczak var í gær valinn í
pólska landsliðshópinn í fyrsta
skipti en hann er markvörður hjá
Manchester United. Hann var á
milli stanganna hjá liðinu í deilda-
bikarkeppninni er liðið mætti
Crewe en þar áttu þau skondnu
mistök sér stað að nafn hans á
treyjunni var rangt stafsett.
Pólverjar mæta Belgum í
undankeppni EM 2008 í næsta
mánuði en ásamt Kuszczak voru
markverðirnir Artur Boruc hjá
Celtic og Mariusz Pawelek frá
Wisla Krakow valdir. - esá
Tomasz Kuszczak:
Valinn í pólska
landsliðið
kuszczak Í leiknum fræga þar sem
nafn hans var rangt stafsett á treyju
hans. nordic photoS/gettY
FótboltI Sol Davis, leikmaður
Luton Town, mun á næstu dögum
gangast undir rannsóknir á heila
og hjarta eftir að hafa fengið slag
í rútu liðsins á laugardaginn var.
„Honum líður ágætlega en
leiðist þó nokkuð,“ sagði Mike
Newell, stjóri Luton. „Hann mun
nú gangast undir rannsóknir og
vonandi mun hann hafa náð sér af
fullu eftir þrjá til sex mánuði.“
Liðið var á leið til Ipswich
þegar atvikið átti sér stað. Því var
haldið leyndu þar til eftir leikinn,
sem Luton tapaði 5-0. - esá
Sol Davis:
Gengst undir
rannsóknir
sol DaVis fékk slag í rútu Luton á laug-
ardaginn. nordic photoS/gettY