Fréttablaðið - 31.10.2006, Side 62
31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR46
Hrósið …
„Ég leit á þetta sem mislukkaða
tilraun. Mér fannt þetta vera mjög
mislukkað allt. Já, og þessi
ummæli fannst mér óvarleg og
algerlega óviðeigandi,“ segir dr.
Sigrún Stefánsdóttir, dagskrár-
stjóri Rásar 2.
Sigrún rak Hjört Howser,
útvarpsmann með meiru, af Rás 2
eftir aðeins einn þátt. Hjörtur
hafði verið fenginn til þess, ásamt
hinum reynda Magnúsi Einars-
syni, að stýra þættinum Helgarút-
gáfunni sem er á dagskrá Rásar 2
á sunnudögum eftir hádegi frá
klukkan eitt til fjögur.
Brottreksturinn er einkum rek-
inn til ummæla sem þeir Hjörtur
og Magnús létu falla um Gus Gus-
fjöllistaflokkinn. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins
móðguðust listamennirnir Einar
Örn Benediktsson og Ragnar
Kjartansson mjög fyrir hönd Gus
Gus-manna og mótmæltu eindreg-
ið. Eftir því sem næst verður kom-
ist er verulegur urgur innan Rásar
tvö vegna brottvikningarinnar því
ummælin teljast tæplega af alvar-
legra taginu. Þrátt fyrir að maður
gengi undir manns hönd, Jakob
Frímann Magnússon, sem formað-
ur FTT talaði máli Hjartar við Pál
Magnússon útvarpsstjóra og svo
virtist sem tekist hefði að ná
lendingu í mál-
inu kom allt
fyrir ekki. Sigrún tók upp
þykkjuna fyrir hönd Gus Gus-
flokksins og vék Hirti umsvifa-
laust frá störfum. Auk þess sem
hún ræddi málið á alvarlegum
nótum við Magnús. Sigrún segist
reyndar ekki vita til þess að neinn
urgur sé í útvarpshúsinu við Efsta-
leiti en hún stýrir Rás tvö frá
Akureyri.
„Það urðu talverð viðbrögð við
þessum ummælum,“ segir Sigrún
aðspurð en brottreksturinn hafi
þó alfarið verið hennar ákvörðun.
„Fólk var mjög óánægt með þessi
umræddu ummæli. Og ég vil geta
treyst fólki með hvað það lætur út
úr sér á Rás 2.“
Hún segir Hjört ekki hafa verið
á samningi en það sé Magnús hins
vegar.
„Hann veit mína skoðun á
þessu. Ég ræddi við hann.“
Sigrún segist nú vinna að
endurskipulagningu þáttarins en
Magnús er þegar mjög atkvæða-
mikill á Rás 2. „Ég er að leita að
„partner“ fyrir Magnús. Og inn-
spýtingu. Ég var á fundi með Tví-
höfða sem hugsanlega kemur
þarna inn með honum. En allt er
þetta í deiglunni.“
Hörtur Howser segir einkenni-
legt að tala um tilraun þegar í hlut
eiga dagskrárgerðarmenn með
margra áratugareynslu í útvarpi
að baki. Jafnvel saman.
„Menn sem hafa stýrt þáttum
af ýmsu tagi undantekningalaust
við góðan orðstír.“
Hjörtur segir að vissulega hafi
mönnum orðið á smávægileg mis-
tök.
„En að hætti sannra heiðurs-
manna voru hlutaðeigandi beðnir
afsökunar á því, bæði skriflega og
með símtali. Aðrir sem að málinu
komu töldu að með því væri mál-
inu lokið. Það komu okkur því í
opna skjöldu þessi ýktu og óskilj-
anlegu viðbrögð doktor Sigrúnar.
Ýmislegt hefur verið látið flakka í
útvarpi í gegnum tíðina án þess að
menn hafi farið af límingunum
þess vegna,“ segir Hjörtur sem
bæði undrast þessi snöggu mála-
lok og er leiður. Hann skilur ekki
við hvað núverandi dagskrárgerð-
armenn Rásar 2 eiga að miða ef
þetta klaufalega spjall þeirra
Magnúsar telst brottrekstrarsök
sem hann vill meina að hafi ekki
verið rætið. jakob@frettabladid.is
veistu svarið
Svör við spurningum á bls. 8
1 7.951 maður.
2 Ástþór Magnússon.
3 Ásthildur Helgadóttir.
Hafnarfjörður verður í brennidepli
í vikunni venju fremur vegna
komandi prófkjörs Samfylkingar í
Kraganum en meðal Gaflara er að
finna höfuðvígi flokksins. tryggvi
Harðarson, gegnheill krati og
heimamaður, er í framboði og
að ræsa vélar sínar. Um síðustu
helgi opnaði hann
kosningaskrifstofu
sína í Gúttó
- sögufrægu húsi
góðtemplara í
Hafnarfirði. Í anda
þeirrar reglu bauð
Tryggvi ekki upp
á bjór við þetta
tækifæri líkt og
flestir fram-
bjóðendur aðrir
heldur kaffi og kökur. Stuðnings-
mönnum hans þótti þó ekki hætt-
andi á annað en teyma ölþyrsta
verðandi kjósendur á Fjörukrána
þegar kvöldaði til að hella aðeins
upp á þá.
ragnheiður ríkharðsdóttir, bæj-
arstjóri Mosfellsbæjar, sækist eftir
þriðja sætinu í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvesturkjör-
dæmi sem verður haldið
þann 11. nóvember.
Hún lét það þó ekki aftra
sér í að fara í fimm daga
skemmtiferð til New
York ásamt dóttur sinni,
Heklu Daðadóttur
handboltakonu, sem
margir muna eflaust
eftir úr Bachelor þátt-
unum, systur sinni og
dóttur hennar en þær komu heim
í gær. Ferðin mun hafa verið löngu
skipulögð og fannst Ragnheiði ekki
ástæða til að fresta henni þrátt fyrir
að vera í miðri prófkjörsbaráttu.
Aðdáendur Jóns Gnarr
komu sér vel fyrir í sjón-
varpssófunum á sunnu-
dagskvöld og horfðu
á ítarlegt viðtal evu
Maríu Jónsdótt-
ur við hann í
Kastljósinu.
Jón olli sínu
fólki ekki
vonbrigð-
um og
ekki skemmdi fyrir að hann boðaði
endurkomu Tvíhöfða í útvarp. Jón
og sigurjón Kjartansson munu
ákveðnir í því að vera með þætti á
Rás 2 og virðist því sem snautlegt
launatilboð stöðvarinnar hafi verið
hækkað til að fá þá félaga til starfa.
-jbg/hdm
Fréttir aF FólKi
... fær trúbadorinn Helgi Valur
Ásgeirsson, sem ætlar að sýna
fjölhæfni á tónlistarsviðinu
með því að gefa næst út rapp-
plötu.
Ekki hefur mikið spurst til söngv-
arans Einars Ágústs að undanförnu
og því brutust út mikil fagnaðar-
læti þegar hann steig á svið með
fyrrum félögum sínum í Skítamór-
al á Nasa um helgina. Að sögn Adda
Fannars, gítarleikara hljómsveit-
arinnar birtist Einar Ágúst óvænt
á Nasa og var það því sjálfsagt mál
að hann tæki lagið með þeim.
„Þetta kom okkur skemmtilega á
óvart enda var þetta alls ekkert
planað,“ segir Addi Fannar. „Það
var rosalega vel tekið í þetta bæði
af okkur í hljómsveitinni og fólk-
inu í salnum.“
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hefur Einar Ágúst átt við
fíkniefnavanda að stríða en sam-
kvæmt ballgestum á Nasa leit
kappinn vel út og var greinilega
á batavegi. „Hann er að vinna í
sínum málum,“ segir Addi
Fannar.
Skítamórall mun frum-
flytja nýtt lag í þætti Hemma
Gunn, Í sjöunda himni, á
fimmtudaginn en um áramótin
stefnir hljómsveitin að því að
taka sér frí í nokkra mán-
uði.
- sig
Einar Ágúst á sviði með Skítamóral
Bubbi Morthens vakti ekki mikla
kátínu meðal Eyjamanna þegar
hann hélt tónleika í Höllinni fyrir
hálfum mánuði en þar lét tónlista-
maðurinn Árna Johnsen óspart
heyra það og taldi það með ólík-
indum að „glæpon færi á þing,“
svo vitnað sé til umsagnar um tón-
leikanna á Eyjar.net. „Slíkt gerðist
hvergi annars staðar í heiminum
nema kannski í Afganistan.“ Bubbi
rifjaði jafnframt upp atvik sem
átti sér stað á Þjóðhátíð fyrir
tveimur árum þegar Árni var
sagður hafa slegið til söngvarans
Hreims Arnar Heimissonar á svið-
inu í Herjólfsdal en Árni neitaði
öllum ásökunum í sjónvarpi á
sínum tíma. Bubbi bar hins vegar
vitni í Höllinni að þingmaðurinn
fyrrverandi hefði logið að þjóð-
inni.
Jóhann Ingi Árnason skrifar
um tónleikana á áðurnefndum vef
og hann sagði í samtali við Frétta-
blaðið að áhorfendurnir hefðu
skipst í tvær fylkingar.
Sumir hefðu hlegið að
þessum skotum Bubba en
öðrum hefði vart stokkið
bros á vör. „Þetta er orðið
gamalt og leiðinlegt mál
og það er enginn að pæla í
þessu lengur,“ segir
Jóhann Ingi.
Tónlistarmaðurinn sjálfur sat
hins vegar fastur við sinn keip og
taldi Eyjar hafa verið hárréttan
stað til að gera grín að Árna John-
sen, framboði hans og lygum þing-
mannsins fyrrverandi í kringum
kjaftshöggið. „Menn halda að bitið
hafi orðið beiskt vegna velgengni
minnar en því fer fjarri sanni,“
sagði Bubbi. „Ef menn geta ekki
tekið því að ég hafi skoðun á
framboði Árna Johnsen þá verð-
ur bara svo að vera,“ bætir
Bubbi við. „Kannski
skammast Eyjamenn sín
svolítið fyrir Árna og
þess vegna má ekki
tala um þetta,“ segir
Bubbi og upplýsir
jafnframt að við-
brögðin hafi komið
honum á óvart. „Ég
hef hins vegar ekk-
ert annað en gott
um Vestmanna-
eyjar að segja og
mörg af mínum
bestu lögum urðu
þar til.“ - fgg
Árni fékk á baukinn hjá Bubba
BuBBi MortHens
Árni á enga samúð inni
hjá tónlistamannnin-
um Bubba Morthens
sem lét þing-
manninn fyrrver-
andi heyra það.JóHann inGi Árnason
Einn þeirra Eyjamanna
sem voru ekki par
hrifnir af skotum Bubba
á Árna Johnsen.
DR. SiGRúN STEFÁNSDóTTiR: RekuR HjöRt HowseR af Rás 2
Enginn húmor fyrir Hirti
H: Hvað er þetta Gus Gus? Var
keisarinn í einhverjum fötum?
M: Nei, ég held að það hafi verið
gersamlega ofmetið. Þegar maður
fékk fréttir af því að þeir hefðu
verið lengur að ná inn bassa-
trommusándi inni í stúdíói heldur
en Bítlarnir þegar þeir tóku upp
sína fyrstu plötu, sem tók þrettán
og hálfan tíma, þá vissi maður að
það var ekki allt í góðu lagi.
H: Um tíma hneykslaðist ég mikið
á því og lét fara í taugarnar á mér
að það var svoleiðis dælt svoleið-
is peningum inn í þetta fyrirbæri
„þessir krakkar“
M: Varstu ekki bara öfundsjúk-
ur?
H: Já, já, auðvitað var þetta bara
öfundssýki. En við sem höfðum
þurft að lepja dauðann úr skel,
skuldandi Magga í Rín víxla von
úr viti, þessir krakkar áttu allt í
einu upptökubúnað, stafrænan,
hljóðfæri og tæki til hljóðmynd-
unar, fyrir tugi milljóna. Allt á
einhverjum iðnþróunarlánssjóðs-
verkefniskjaftæðislánum og svo
kom ekki neitt.
(Síðar í þættinum:)
H: Hafa skal það sem betur hljóm-
ar. Við erum menn til að leiðrétta
ef við förum með rangt mál. Við
vændum Gus Gus-meðlimi um að
vera styrkþegar. Þeir fengu ekki
krónu, enda sér maður það á
útganginum á þeim og holdafari
að þar fer ekki fólk sem borðar
með silfurskeiðum. Og leiðréttist
hér með. Fátækir og hafa aldrei
þegið opinbert fé. En frægir út
um allan heim. Einhverjir slúbb-
ertar aðrir sem hirtu þennan pen-
ing allan og byggðu stúdíó sem
Gus Gus-menn notuðu til upp-
töku.
Þetta sögðu Hjörtur og Magnús
HJörtur Howser Segir
að ummælin hafi verið
klaufaleg en
dregur í
efa að
þau
séu
brott-
rekstrar-
sök.
MaGnús ein-
arsson
Fékk tiltal
frá dag-
skrárstjór-
anum.
Dr. siGrún steFÁns-
Dóttir Hafði engan
húmor fyrir Hirti og rak
hann umsvifalaust.
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Sérferð Einstök gönguferð á Alicante
69.900 kr.1.–4. nóv.
Fótbolti Chelsea–Watford
56.900 kr.10.–12. nóv.
Fótbolti Arsenal–Hamburg SV
49.900 kr.21.–22. nóv.
Fótbolti Tottenham–Wigan
58.900 kr.24.–27. nóv.
Golf Bonalba, Alicante
Verð frá 69.900 kr.Valfrjálst
Sérferð Berlín í jólaundirbúningi
51.900 kr.24.–27. nóv.
Fótbolti Fulham–Arsenal
49.900 kr.29.–30. nóv.
Fótbolti Man. Utd.–Man. City
64.900 kr.8.–10. des.
Sérferð Aðventuferð til Berlínar
49.900 kr.8.–11. des.
Fótbolti Arsenal–Portsmouth
59.900 kr.15.–17. des.
Sólarferð Alicante, Hotel Sidi San Juan
Verð frá 47.121 kr.Valfrjálst
Golf Sheraton Real de Faula
Verð frá 59.180 kr.Valfrjálst
Öll verð miðast við að tveir séu saman í herbergi.
Þriggja daga ganga með íslenskri leiðsögn.
Gist á litlum fjallahótelum, ekta spænskur
matur og þægileg herbergi. Fjölbreyttar
gönguleiðir, ólýsanlega fallegt útsýni og
einstakar minjar.
Tónleikar George Michael
69.900 kr.27.–29. nóv.
Sérferð Aðventuferð til Trier
59.900 kr.8.–11. des.
Fótbolti Chelsea–Arsenal
69.900 kr.9.–11. des.
Risaslagur af bestu gerð á Stamford Bridge!
Síðustu leikir þessara liða hafa verið
magnaðir og verður eflaust hart barist að
þessu sinni enda byrja bæði lið vel í deildinni.
Innifalið: Flug með sköttum, gisting á St.
Giles í tvær nætur og miði á leikinn.
lÁrétt
2 örugglega 6 kusk 8 forsögn 9 fæða 11
tímabil 12 ýfun 14 steinn 16 skóli 17 sjón-
varpsstöð 18 flýtir 20 í röð 21 prik.
lóðrétt
1 kaupbætir 3 klaki 4 splunkunýr 5 lítill
sopi 7 vera með fyrirgang 10 örn 13 þang-
að til 15 svara 16 blaður 19 tveir eins.
lausn
lÁrétt: 2 víst, 6 ló, 8 spá, 9 ala, 11 ár, 12
gárun, 14 tinna, 16 ma, 17 sýn, 18 asi, 20
rs, 21 stig.
lóðrétt: 1 álag, 3 ís, 4 spánnýr, 5 tár, 7 ólát-
ast, 10 ari, 13 uns, 15 ansa, 16 mas, 19 ii.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
einar ÁGúst oG sKítaMórall Mikla
athygli vakti þegar Einar Ágúst steig
óvænt á svið á Nasa um helgina og
söng með gömlu félögunum sínum.