Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGjuM FRÉTTIR SMáAuGLýSINGASÍMINN ER 550 5000
...Í SPARNAÐI
– til að mæta óvæntum fjárútlátum,
t.d. ef bíllinn bilar eða húsnæðið
þarfnast viðgerðar. Og já, líka ef
börnin þurfa tannréttingar.
VARASPARNAÐUR
– til að safna fyrir öllu því sem
hugurinn girnist, t.d. húsgögnum,
heimilistækjum og utanlandsferðum.
Eða bara fyrir því sem þú vilt!
NEYSLUSPARNAÐUR
– til að byggja upp fjárhagslega
velgengni í framtíðinni, t.d. kaupa betra
húsnæði eða sumarhús, fara í heimsreisu
eða eiga fyrir menntun barnanna.
LANGTÍMASPARNAÐUR
Ný aðferð til að ná betri árangri í sparnaði.
Farðu í næsta útibú Glitnis eða á www.glitnir.is og kláraðu málið!
Þrískiptur sparnaður Glitnis
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN ER OKKAR VERKEFNI
STÚDENTABLAÐIÐ
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Á
HÖFÐUBORGARSVÆÐINU Í DAG.
Nývakin umræða um gildi for-eldrahlutverksins leiðir hug-
ann að konum sem eru komnar
yfir miðjan aldur, síðastu kynslóð
mæðra til að líta á uppeldi eftir
lögbundið fæðingarorlof sem fulla
vinnu. Togstreitan sem þjakar
okkur yngri ofurmæðurnar um
allar þær skyldur sem við höfum
við sjálfar okkur og starfsframa
ofan á uppeldishlutverkið hafði
litla fyrirferð í lífi margra þessara
kvenna. Fyrst og fremst voru þær
mæður.
SuMAR losna aldrei úr þumal-
skrúfu umhyggju og umsjár með
öðru fólki. Móðir mín hlær stund-
um dátt yfir því að vera næstum
jafn kyrfilega bundin yfir börnum
sínum rígfullorðnum og á meðan
þau voru lítil. Það segir reyndar
meira um hana en hin ósjálfstæðu
afkvæmi að hún skuli yfirhöfuð
hafa húmor fyrir þessu. Að þó hún
sé orðin bæði amma og langamma
skuli hún ennþá vera potturinn og
pannan í öllum umsvifum í stórfjöl-
skyldunni. Við flutninga, veikindi,
veislur og framkvæmdir yfirhöfuð
sé hún hin ómissandi driffjöður,
stýri gangverkinu og sinni fólkinu
sínu af endalausri alúð.
VEGNA þess að móðir mín á
meira hjartapláss en húspláss þá
vafðist síst fyrir henni að taka að
sér okkur fimm á meðan heimili
fjölskyldunnar var undirlagt af
byggingaframkvæmdum. Á þeim
vikum sem við bjuggum undir þaki
móður minnar rann upp fyrir mér
hversu sterk fyrirmynd hún er. Að
smátt og smátt höfum við meira og
minna tekið upp háttsemi hennar,
göngulag, takta og tilsvör og erum
núorðið öll eiginlega alveg eins og
lítil gömul kona í Kópavoginum.
SVoNA mæður þurftu ekki nám-
skeið í tengslauppeldi því það var
þeim náttúrulegt. Þær gerðu ekki
utanaðkomandi aðila í lífi barna
sinna ábyrga fyrir því hvernig til
tókst með uppeldið, heldur báru
hana sjálfar. Svona mæður lögðu
áherslu á samveru með börnunum
sínum án þess að hafa lesið það í
bók, það var ekki búið að tala úr
þeim sjálfstraustið við barnaupp-
eldi með fræðilegum kenningum.
AÐ lokum kemur röðin að mér og
minni kynslóð að fylla skarð þess-
arar undirstöðu samfélagsins. Að
vera sá sem hefur alltaf tíma til að
leggja lið, er uppspretta vísdóms
og góðra ráða og stendur undir
þeim völdum sem felst í að vera
öðrum fyrirmynd. Og ætti svo skil-
ið að fá fálkaorðuna.
Vísdómur og
völd