Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 2
„Ég og fjölskylda
mín erum í sjokki,“ segir Sokol
Hoda, íbúi á Boðagranda 7.
Í lok september fékk Sokol bréf
frá byggingafulltrúanum í Reykja-
vík. Þar sagði að leyfi sem Sokol
fékk í júní í fyrra fyrir gervi-
hnattadiski utan á blokkinni á
Boðagranda yrði afturkallað. Tveir
íbúðareigendur í blokkinni hefðu
kært diskinn og þeir hefðu réttinn
sín megin þar sem byggingafull-
trúinn hafði heimilað diskinn án
þess að nægjanleg mæting hefði
verið á aðalfund félagsins. Á aðal-
fundinum í þvottahúsinu á Boða-
granda í maí í fyrra samþykktu
fimmtán diskinn en tveir voru á
móti. Alls er sextíu íbúðir í hús-
inu.
Sokol er frá Kosovo en flutti til
Íslands fyrir meira en áratug og er
íslenskur ríkisborgari.
„Þetta er bara útlendingahatur
hjá heimsku fólki. Diskurinn er
bak við hús og ekki fyrir neinum.
Ég setti hann upp til að börnin mín
gætu séð sjónvarp frá föðurlandi
mínu og lært móðurmálið,“ segir
Sokol.
Gunnar H. Sigurgeirsson á tvær
af þremur íbúðum á 10. hæð húss-
ins og Kristín Hinriksdóttir þá
þriðju. Gunnar og Kristín vilja
diskinn burtu þar sem hann spilli
útliti hússins. Þau hafi hins vegar
ekkert á móti því að diskinum yrði
komið fyrir upp á þaki.
Sokol segir að diskur hans sé
einfaldlega of lítill og veikbyggð-
ur til að standast þá vinda sem
leiki um þak hússins á Boða-
granda 7.
Að sögn Sokols hefur hann
þegar fengið undirskriftir allra í
blokkinni nema Gunnars og Krist-
ínar en til þess að fá aftur leyfið
fyrir diskinum þarf að kalla saman
húsfund þar sem tveir þriðju hlut-
ar íbúðareigendanna mæta og
meirihluti þeirra þarf að sam-
þykkja diskinn. En Sokol gengur
illa að fá fund í húsfélaginu. Nýlega
tók annar andstæðinga hans í disk-
amálinu, Kristín Hinriksdóttir, við
formennsku í félaginu.
„Lögfræðingur minn sendi for-
manni húsfélagsins bréf fyrir
nokkrum vikum og óskaði eftir
því að boðað yrði til húsfundar
eins og ég á rétt á. Hún hefur ein-
faldlega ekki svarað bréfinu,“
segir Sokol.
„Ég vil ekki svara þessu,“ svar-
ar Kristín formaður, aðspurð
hvort það væri rétt að hún hefði
ekki svarað beiðni Sokols um hús-
félagsfund.
Gervihnattadiskur
veldur harðri deilu
Borgin afturkallar leyfi fyrir gervihnattadiski sem innflytjandi frá Kosovo setti
upp utan á tíu hæða blokk á Boðagranda. Tveir íbúðareigendur hótuðu mála-
ferlum. Útlendingahatur, segir diskeigandinn sem gengur illa að fá húsfund.
Í bókinni Kerti í nýju ljósi er
kennt að búa til allra handa
kerti, s.s. klakakerti, ávaxta-
kerti, flotkerti, friðarljós og
kyndla.
Fjöldi mynda prýðir bókina og
aðgengilegar leiðbeiningar eru
með hverri uppskrift. Auk þess
er fjallað um helstu áhöld og
efni sem þarf til kertagerðar.
edda.is
Búðu til þín eigin kerti!
Gengið hefur verið frá
yfirtöku Sparisjóðsins í Keflavík
á Sparisjóði Ólafsvíkur. Stefnt er
að fullum samruna sjóðanna fyrir
áramót, eftir samþykki fundar
stofnfjáreigenda.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafa stjórnir
beggja sjóða samþykkt samning-
inn auk þess sem hann hefur
uppáskrift Fjármálaeftirlitsins.
Sjóðirnir renna saman með
þeim hætti að hlutfall eiginfjár
þeirra er reiknað upp og stofn-
fjáreigendum úthlutað stofnfé í
þeim hlutföllum. Ljóst má þó vera
að Sparisjóður Keflavíkur verður
ráðandi enda nærri tuttugu
sinnum stærri.
Tekur yfir Spari-
sjóð Ólafsvíkur
SPRON býður viðskipta-
vinum sínum, sem skrá sig í nýja
þjónustu undir nafninu DMK,
sem stendur fyrir debet með
kredit, nú kostur á að taka níutíu
prósenta íbúðalán. Markhópur
þeirrar þjónustu er ungt fólk sem
er að fara út í lífið.
Ólafur Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri SPRON, segir þá
lækkun sem orðið hefur á
lánshlutfalli íbúðalána hafa
torveldað ungu fólki að fjár-
magna sína fyrstu íbúð. Það hafi
leitt til þess að margir séu á
leigumarkaði eða hafi neyðst til
að leita á náðir ættingja, þrátt
fyrir að hafa greiðslugetu til að
standa undir afborgunum. Hann
segir íbúðamarkaðinn nú vera að
ná jafnvægi og með þessu sé
SPRON að bregðast við því. -
Bjóða aftur 90
prósenta lán
Valgerður Sverrisdóttir ætlar að
fordæma árásir Ísraelsmanna á óbreytta
borgara Gaza-svæðisins á fundi með sendi-
herra Ísraelsríkis, sem kemur til landsins í
næstu viku. Steingrímur J. Sigfússon,
þingmaður vinstri grænna, impraði á því í
gær að það mætti taka til athugunar hvort
Íslendingum væri stætt á því að halda
stjórnmálasambandi við ríki sem fremji
fjöldaaftökur á saklausu fólki.
Halldór Blöndal, formaður utanríkismála-
nefndar, segir farsælast að Íslendingar vinni
að því að byggja upp traust og samvinnu
innan Sameinuðu þjóðanna. „Þessi árás var
forkastanleg og því verður komið kröftuglega
til skila við sendiherrann,“ segir Halldór.
Varðandi hugsanleg slit stjórnmálasambands
ríkjanna telur hann að lítill tilgangur sé
fólginn í því að þjóðir heims hætti að tala
saman.
Hamas-samtökin hafa hótað að hefja árásir
að nýju á borgara í Ísrael, eftir að 18 Palest-
ínumenn létust í sprengjuárás á miðvikudag-
inn. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels,
kennir tæknilegum mistökum um mannskað-
ann, en sagði í gær að Ísraelsmenn myndu
halda áfram árásum sínum, þó að hann gerði
sér grein fyrir hættunni sem af því stafaði
fyrir almenning. Hann kvaðst viljugur til að
funda og vinna að friði með Mahmoud Abbas,
forseta Palestínu, hvenær og hvar sem er.
Ríkisstjórnin fordæmir árásir Ísraela
Aðstandendur og
baráttufólk um bættan hag aldr-
aðra munu halda baráttufund
laugardaginn 25. nóvember í
Háskólabíói. Þar verður skorað á
Alþingi og ríkisstjórn að í fjárlög-
um sem gengið verður frá fyrir
áramót verði umtalsvert fjármagn
lagt í málaflokk aldraðra. „Við
vonumst til að þjóðin mæti og það
verði skilaboð til ráðamanna að nú
sé mál að linni,“ sagði Reynir Ingi-
bjartsson, formaður Aðstandenda-
félags aldraðra, AFA, sem hélt
blaðamannafund í gær í félagi við
Félag aðstandenda Alzheimer-
sjúklinga og Félag aðstandenda
heimilisfólks á Skjóli.
Reynir segir tilefni fundarins
nýlega yfirlýsingu heilbrigðisráð-
herra um að byggja eigi hjúkrun-
arheimili á næstu fjórum árum.
„En þegar skoðað er hvernig á að
fjármagna er það ekki fyrr en á
fjárlögum 2008 og 2009.“ Reynir
bendir á að kosið verði um þing og
ríkisstjórn í millitíðinni og ekki sé
forsvaranlegt að leysa þennan
vanda með slíkri ávísun inn í fram-
tíðina. „Aðalpunkturinn er sá að ef
hugur hefði fylgt máli varðandi
fjölgun hefði verið eðlilegra að
ráðstöfun fjár hefði verið á næstu
fjárlögum.“
Á fundinum kom fram að
hundruð einstaklinga séu á biðlist-
um í bráðri þörf eftir hjúkrunar-
rýmum. Og tæplega eitt þúsund
aldraðir búa enn í fjölbýli á hjúkr-
unar- og dvalarheimilum.
Aukið fé til aldraðra á fjárlögum
Upp á síðkastið hafa
nokkrir sjúklingar verið lagðir
inn á Landspítalann með noro-
veirusýkingu, en hún er árlegur
fjandi landsmanna. Einkenni
pestarinnar eru meðal annars
mikill niðurgangur og uppköst.
Þeir sem leggjast inn á sjúkra-
hús þjást yfirleitt af uppþornun
og eru undir eftirliti lækna á
meðan þeim er bætt upp
vökvatapið úr líkamanum.
Sýkingin leggst verst á eldra
fólk og þá sem eru heilsutæpir
fyrir.
Már Kristjánsson, smitsjúk-
dómalæknir á Landspítalanum,
segir að engin sérstök hætta sé
á ferðum fyrir heilsuhraust fólk.
„Þetta er ein af þessum miðs-
vetrarskitupestum sem ganga
alltaf. Þetta eru yfirleitt stutt
veikindi sem vara í einn eða tvo
daga,“ segir Már en tekur fram
að veiran geti þó verið hættuleg
þeim sem eru veikburða fyrir af
öðrum orsökum.
Smitandi veiru-
sýking gýs upp
Bandaríkjamaðurinn
Ed Bradley, einn stjórnenda
fréttaskýringa-
þáttarins 60
mínútur, lést í
gær úr hvít-
blæði á
sjúkrahúsi í
New York í
Bandaríkjun-
um.
Bradley, sem
var 65 ára
gamall þegar
hann lést, gekk til liðs við 60
mínútur árið 1981.
Bradley vann til fjölda
verðlauna og viðurkenninga fyrir
fréttaflutning sinn um ævina og
þar á meðal 19 Emmy-verðlaun.
Bradley var heiðraður með
verðlaunum fyrir ævistarfið af
Blaðamannafélagi blökkumanna í
Bandaríkjunum.
Ed Bradley lést
úr hvítblæði
Magnús Þór, þurfið þið ekki að
breyta um nafn?