Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 8
Hvaða stjórnmálaflokkur
fimmfaldaði fylgi sitt í nýjustu
könnun Fréttablaðsins?
Hvaða stjórnmálaflokkur
hlaut meirihluta á Bandaríkja-
þingi eftir þingkosningarnar nú
í vikunni?
Hvaða heimsfræga söng-
kona hefur sótt um skilnað við
eiginmann sinn?
Sigurður Helgi Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
hjúkrunarheimilisins Eirar, telur
ekkert óeðlilegt við að Eir standi
að byggingu og rekstri menning-
armiðstöðvar fyrir Reykjavíkur-
borg í Spönginni í Grafarvogi og
sjái um útboð vegna hennar. Menn-
ingarmiðstöðinni er ætlað að hýsa
starfsemi sem ekki tengist þjón-
ustu við aldraða beint. Í skipulags-
skrá fyrir Eir segir að markmið og
hlutverk stofnunarinnar sé að
reisa og reka hjúkrunarheimili er
veiti öldruðum umönnun og hjúkr-
un. Sigurður Helgi segir einnig að
starfsemin sem verður í menn-
ingarmiðstöðinni sé að mestu leyti
nátengd öðru starfi aldraðra sem
staðsett verður í Spönginni.
Í október var gengið frá vilja-
yfirlýsingu um byggingu menn-
ingarmiðstöðvarinnar. Engin sam-
þykkt borgarráðs var fyrir þeirri
ráðstöfun. Björn Ingi Hrafnsson,
formaður ráðsins, segir að mistök
hafi verið gerð í orðalagi viljayfir-
lýsingarinnar en hún sé ekki bind-
andi á neinn hátt. Hún fjalli aðeins
um það sem á að ræða og mikil
vinna sé enn eftir. Viljayfirlýsing-
in verður látin standa og Eir mun
sjá um útboðið ef samningar nást.
Samfylkingin lagði fram fyrir-
spurn til borgarstjóra vegna máls-
ins á fundi ráðsins í gær.
Síðustu tvö árin sem
eftir eru af forsetatíð George W.
Bush þarf hann að starfa í náinni
samvinnu við Demókrataflokkinn.
Þetta verða mikil umskipti, því
undanfarin sex ár hefur hann nán-
ast aldrei sýnt nokkurn minnsta
samstarfsvilja við demókrata í
neinum málum.
Hann hefur farið hörðum orðum
um Nancy Pelosi, sem verður leið-
togi demókrata á þinginu næstu tvö
árin, og hún hefur ekki sparað stóru
orðin um forsetann heldur, þannig
að mörgum þykir forvitnilegt að sjá
hvernig samstarf þeirra verður.
Bæði hafa þau samt sýnt ótví-
ræðan sáttavilja eftir kosningarn-
ar, enda er mikið í húfi hjá báðum.
Bandaríska dagblaðið Washington
Post segir engu líkara en Bush
hafi fundið til léttis eftir að hafa
tapað þingmeirihlutanum, „eins
og úrslitin hafi gert honum kleift
að hætta að láta eins og allt sé í
besta lagi, sem æ meir var farið að
stangast á við hinn pólitíska raun-
veruleika.“
Ekki þykja miklar líkur á því að
hann komi þeim stefnumálum
sínum, sem honum sjálfum eru
kærust, í gegnum þingið, svo sem
varanlegri skattalækkun. Þegar
við bætist að demókratar ætla sér
að láta nefndir þingsins fara vand-
lega ofan í saumana á flestu því
sem úrskeiðis hefur farið í stríðs-
rekstrinum í Írak, auk þess sem
grafið verður upp hvernig farið
hefur verið með fangana í Guant-
anamo og víðar um heim í leyni-
legum fangelsum CIA, þá má
búast við að forsetinn eigi tvö
býsna erfið ár í vændum.
Demókratar hafa hins vegar
líka miklu að tapa, því þeir gætu
sem hægast misst þingmeirihlut-
ann aftur eftir tvö ár ef kjósendur
fá það á tilfinninguna að þeir ætli
bara að vera til trafala en komi
engum góðum málum í fram-
kvæmd.
Framferði þeirra á þinginu
mun líka hafa veruleg áhrif á það
hvernig væntanlegum forseta-
frambjóðanda flokksins vegnar í
forsetakosningunum árið 2008.
Bush skiptir um gír
Bush forseti á erfið tvö ár í vændum þar sem demókratar hafa náð meirihluta í
báðum deildum þingsins í fyrsta sinn í tólf ár. Bush virðist fús til samstarfs við
Demókrataflokkinn og er engu líkara en tapið sé honum ákveðinn léttir.
Nýjung!
Sykurskert
Hrísmjólk
Það er alltaf staður og
stund fyrir Hrísmjólk og nú
fæst Hrísmjólkin sykurskert
með tveimur nýjum bragðtegundum.
Hrísmjólk með jarðarberjasósu
og hindberja- og trönuberjasósu.
Sykurskert
Nýjung!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Ferðamálaráð Íslands
hefur samþykkt að beina því til
samgönguráðherra að fjárfram-
lög til landkynningar á næsta
ári verði stóraukin og stefnt að
því að fjármunir til markaðs-
sóknar verði um 300 milljónir
árlega.
Sturla Böðvarsson segist
fagna þessum tillögum sem
hann mun skoða nánar.
Þá leggur ferðamálaráð til að
hlutlaus aðili verði fenginn til
að fá heildarmynd af áhrifum
hvalveiða í atvinnuskyni á
íslenska ferðaþjónustu og
ímynd landsins á erlendum
mörkuðum.
300 milljónir í
landkynningu